Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


17.5.2016

27. fundur framkvæmda- og veitustjórnar

27. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn miðvikudaginn 27. apríl 2016 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.  Mætt: Gunnar Egilsson, formaður, D-lista, Ragnheiður Guðmundsdóttir, nefndarmaður, D-lista, Ingvi Rafn Sigurðsson, nefndarmaður, D-lista, Viktor Pálsson, nefndarmaður, S-lista, Helgi Sigurður Haraldsson, nefndarmaður, B-lista, Jón Tryggvi Guðmundsson, framkvæmda- og veitustjóri.   Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 1604240 - Ársreikningur Selfossveitna 2015
Ólafur Gestsson endurskoðandi frá PwC kom inn á fundinn og kynnti ársreikning Selfossveitna. Rekstur félagsins var með svipuðu móti í ár og síðastliðið ár. Á árinu varð hagnaður af rekstri Selfossveitna bs sem nam 37,2 mkr. samkvæmt rekstrarreikningi, en það svarar til 7,25% ávöxtunar eigin fjár. Eignir Selfossveitna bs í árslok 2015 voru samkvæmt efnahagsreikningi 1.231,6 mkr. og heildarskuldir 717,3 mkr. Eigið fé nam því 514,4 mkr. og er eiginfjárhlutfall 42%.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 8:50 Gunnar Egilsson Ragnheiður Guðmundsdóttir Ingvi Rafn Sigurðsson Viktor Pálsson Helgi Sigurður Haraldsson Jón Tryggvi Guðmundsson  

Þetta vefsvæði byggir á Eplica