27. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar
27. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn mánudaginn 12. desember 2011 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 12:10
Mætt:
Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður, D-lista,
Ingvi Rafn Sigurðsson, nefndarmaður, D-lista,
Eggert Valur Guðmundsson, nefndarmaður, S-lista,
Bjarni Harðarson, nefndarmaður, V-lista,
Jón Tryggvi Guðmundsson, tækni- og veitustjóri,
Samúel Smári Hreggviðsson, varamaður D-lista.
Dagskrá:
1. 1111097 - Gjaldskrá Selfossveitna 2011
Stjórn Selfossveitna samþykkir 12,5% hækkun gjaldskrár.
Greinargerð:
Verðlag hefur breyst með þeim hætti að byggingarvísitala frá 2010 hefur hækkað um 10,7 % sl. 12 mánuði skv. vef Hagstofu Íslands. Gert er ráð fyrir að verðbólga næsta árs verði yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.
Gjaldskrá Selfossveitna er ekki vísitölubundin og því er fyrirséð er að hækka þurfi gjaldskrána til að vega upp á móti hækkandi rekstrar- og framkvæmdakostnaði til að áætlanir um hæfilegan rekstrarafgang til framkvæmda fái staðist.
Stærstu framkvæmdir næsta árs eru m.a. borun eftir heitu vatni og 1. áfangi í tvöföldun aðveitulagnar frá Laugardælum. Gert er ráð fyrir á annað hundrað milljónum í nauðsynlegar fjárfestingar árið 2012.
Bjarni Harðarson og Eggert Valur Guðmundsson voru í símasambandi á fundinum.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 12:34
Elfa Dögg Þórðardóttir
Ingvi Rafn Sigurðsson
Eggert Valur Guðmundsson
Bjarni Harðarson
Jón Tryggvi Guðmundsson
Samúel Smári Hreggviðsson