Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


15.3.2019

28. fundur bæjarráðs

  28. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn fimmtudaginn 14. mars 2019 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 17:00. Mætt:                        Eggert Valur Guðmundsson, formaður, S-lista Sigurjón Vídalín Guðmundsson, bæjarfulltrúi, Á-lista Gunnar Egilsson, bæjarfulltrúi, D-lista Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1903038 - Umsögn - tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar 1-1903038
  Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 6. mars, þar sem boðið er upp á umsögn um tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar, mál 86.
  Lagt fram til kynningar.
     
2. 1903100 - Umsögn - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn 2-1903100
  Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 11. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), mál 90.
  Lagt fram til kynningar.
     
3. 1903035 - Stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum 2019 3-1903035
  Tilkynning frá Íbúðalánasjóði um að búið sé að opna fyrir umsóknir um stofnframlög.
  Lagt fram til kynningar.
     
4. 1902193 - Rekstrarleyfisumsögn - Tryggvaskáli 4-1902193
  Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 19. febrúar, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi til sölu veitinga í flokki III veitingahús - Tryggvaskáli. Samþykkt var að veita jákvæða umsögn á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarnefndar 27. febrúar sl.
  Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um að rekstrarleyfið verði veitt.
     
5. 1903016 - Rekstrarleyfisumsögn - Central Apartment 5-1903016
  Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 4. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi gististaður án veitinga í flokki II - Eyravegur 7, Selfossi. Samþykkt var að veita jákvæða umsögn á 15. fundi skipulags- og byggingarnefndar.
  Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um að rekstrarleyfið verði veitt.
     
6. 1703281 - Mat á umhverfisáhrifum við hreinsistöð fráveitu við Geitanesflúðir 6-1703281
  Ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögu að matsáætlun - Hreinsistöð fráveitu á Selfossi.
  Lagt fram til kynningar.
     
7. 1903021 - Endurskoðun samgönguáætlunar Suðurlands 2019-2028 7-1903021
  Sveitarfélagið Árborg - Helstu forgangsverkefni SASS í samgöngumálum.
  1. Hver eru þrjú helstu forgangsverkefni í nýframkvæmdum er varða samgöngur í sveitarfélaginu ykkar? * Hringtorg og undirgöng á Eyrarvegi við Suðurhóla á Selfossi * Ný brú yfir Ölfusá * Umferðarmannvirki vegna þungaumferðar sunnan Selfoss (Tenging hringvegar við Þorlákshöfn)2. Hver eru þrjú helstu forgangsverkefni í rekstri og viðhaldi samgöngumannvirkja í sveitarfélaginu ykkar? * Umferð gangandi og hjólandi um núverandi Ölfusárbrú verði bætt * Ástand Eyravegar er slæmt og aðkallandi að Vegagerðin fari í gagngerar endurbætur * Austurvegur á Selfossi þarfnast mikilla endurbóta3. Ef horft er á Suðurland sem heild, hvaða þrjár samgönguframkvæmdir myndi sveitarstjórn ykkar setja fremst á blað, aðrar en í ykkar sveitarfélagi? * Tvöföldun Suðurlandsvegar verði hraðað sem kostur er * Uppbygging og endurbætur á Þrengslavegi með breikkun vegar og bættri veglínu * Uppbygging hafnarmannvirkja í Þorlákshöfn4. Hver er afstaða sveitarstjórnar er varða áætlanir ríkisstjórnar um veggjöld? * Afstaða Árborgar liggur ekki fyrir þar sem endanleg útfærsla á álagningu veggjalda er ekki ljós 5. Hvaða sýn hefur sveitarstjórn á fyrirkomulag almenningssamgangna á Suðurlandi? * Ríkissjóður þarf að leggja mun meira fé í almenningssamgöngur svo auka megi tíðni ferða og bjóða ódýr fargjöld svo að almenningur fari að líta á þær sem raunhæfan valkost.
     
8. 1903073 - Svæðisskipulag Suðurhálendisins 8-1903073
  Beiðni frá SASS, dags. 8. mars sl., um tilnefningu tveggja kjörinna fulltrúa og eins kjörins til vara frá hverju bæjar- og sveitarfélagi á Suðurlandi sem á land að Suðurhálendinu. Fulltrúarnir verða svo boðaðir á fund um hugmyndir um gerð svæðisskipulags fyrir Suðurhálendið.
  Fulltrúar Árborgar verða Ari Björn Thorarensen og Helgi S. Haraldsson. Varamaður verður Sigurjón V. Guðmundsson.
     
9. 1903071 - Samráðsvettvangur Sóknaráætlunar Suðurlands 2020-2024 9-1903071
  Beiðni frá SASS, dags. 15. febrúar, þar sem óskað er eftir tilnefningu á samráðsvettvagn Sóknaráætlunar Suðurlands 2020-2024. Sveitarfélögin á Suðurlandi eru beðin um að tilnefna fjóra fulltrúa á samráðsvettvanginn/fundinn, tvo kjörna fulltrúa og tvo aðra fulltrúa úr sveitarfélaginu. Samráðsvettvangur Sóknaráætlunar Suðurlands 2020 - 2024 verður haldinn á Hótel Selfossi 4. apríl 2019, klukkan 12.00 - 16:00.
  Bæjarráð tilnefnir fyrir hönd Svf. Árborgar sem fulltrúa í samráðsvettvang Sóknaráætlunar 2020-2024: Tómas Ellert Tómasson,bæjarfulltrúa, Kjartan Björnsson, bæjarfulltrúa, Braga Bjarnason, Jónu Sólveigu Elínardóttur.
     
10. 1710064 - Heilsueflandi samfélag
  Minnisblað frá Braga Bjarnasyni, menningar- og frístundafulltrúa
  Bæjarráð samþykkir að skipa stýrihóp Sveitarfélagsins Árborgar um verkefnið Heilsueflandi samfélag. Fulltrúar í hópnum eru eftirfarandi: - Guðmundur Kr. Jónsson, fulltrúi íþrótta- og menningarnefndar, eldri borgari - Páll Sveinsson, fulltrúi úr grunnskólum Árborgar - Ásrún Aldís Hreinsdóttir, fulltrúi úr Ungmennaráði - Díana Gestsdóttir, fulltrúi búsettur á Selfossi og tengd heilsueflandi leikskólum - Esther Guðmundsdóttir, fulltrúi búsettur á Eyrarbakka Bragi Bjarnason verður starfsmaður hópsins
     
Fundargerð
11. 1902019F - Skipulags og byggingarnefnd - 15 
  Bæjarráð óskar eftir því við skipulags- og byggingarnefnd að unnar verði reglur um leyfisveitingar vegna reksturs gistiheimila í sveitarfélaginu. Tillaga að reglum verði lögð fyrir bæjarráð fyrir lok apríl mánaðar.
  11.8 1902208 - Tillaga að deiliskipulagi fyrir Vonarland Stokkseyri.
 
  Niðurstaða skipulags- og byggingarnefndar 
  Lagt til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst.Sigurjón Vídalín Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
   
 
  11.18 1811139 - Ósk um deiliskipulag - Vöttur
 
  Niðurstaða skipulags- og byggingarnefndar 
  Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst.
   
 
     
Fundargerðir til kynningar
12. 1903090 - Fundargerðir hverfisráðs Eyrarbakka 12-1903090
  25. fundur hverfisráðs Eyrarbakka, haldinn 10. mars 2019, ásamt tillögum að breytingum á samþykktum fyrir hverfisráð Sveitarfélagsins Árborgar
  Bæjarráð þakkar metnaðarfulla tillögu hverfisráðs Eyrarbakka að nýjum samþykktum hverfisráða Árborgar en frestar frekari umfjöllun um tillöguna þar til öðrum hverfisráðum hefur gefist kostur á að koma á framfæri sínum tillögum um þær.
     
  Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 18:15  
Eggert Valur Guðmundsson   Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Gunnar Egilsson   Gísli Halldór Halldórsson
     

Þetta vefsvæði byggir á Eplica