28. fundur framkvæmda- og veitustjórnar
28. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014 haldinn miðvikudaginn 18. janúar 2012 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10
Mætt:
Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður, D-lista,
Ingvi Rafn Sigurðsson, nefndarmaður, D-lista,
Eggert Valur Guðmundsson, nefndarmaður, S-lista,
Jón Tryggvi Guðmundsson, tækni- og veitustjóri,
Andrés Rúnar Ingason, áheyrnarfulltrúi,
Samúel Smári Hreggviðsson, varamaður, D-lista.
Andrés Rúnar situr fundinn í fjarveru Bjarna Harðarsonar sem áheyrnarfulltrúi.
Dagskrá:
1. 1201079 - Heitavatnsöflun-borverk 2012
Tækni- og veitustjóri kynnti skýrslur frá ÍSOR varðandi heitavatnsöflun. Stjórnin felur tækni-og veitustjóra að vinna áfram að málinu.
2. 1104175 - Fundargerðir hverfisráðs Stokkseyrar 2011
Fundargerð hverfisráðs Stokkseyrar lögð fram. Hverfisráðið gerir athugasemdir við ástand íþróttahússins á Stokkseyri og götuna Sólvelli. Ákveðið er að farið verði í framkvæmdir við úrbætur á þaki íþróttahússins og leggja bundið slitlag á Sólvelli í samræmi við fjárhagsáætlun 2012.
3. 1103050 - Miðbæjarskipulag Eyrarbakka
Lögð voru fram drög að útboðsgögnum vegna endurnýjunar á gangstétt og lýsingu við Eyrargötu. Stjórnin samþykkir að kynna fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir hverfisráði Eyrarbakka og íbúum.
4. 1103053 - Hjólreiðasamgöngur í Árborg
Formaður stjórnar gerði grein fyrir fundi með hagsmunafélagi hjólreiðamanna í Sveitarfélaginu Árborg.
Stjórnin leggur áherslu á að gert sé ráð fyrir hjólreiðastígum og góðu aðgengi fyrir hjólreiðafólk við skipulagsvinnu og framkvæmdir í sveitarfélaginu.
5. 1010065 - Verklagsreglur við snjómokstur
Tækni- og veitustjóri fór yfir framkvæmd snjómoksturs í sveitarfélaginu það sem af er vetri. Stjórnin þakkar starfsmönnum fyrir vel unnin störf við erfiðar aðstæður.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:30.
Elfa Dögg Þórðardóttir
Ingvi Rafn Sigurðsson
Eggert Valur Guðmundsson
Jón Tryggvi Guðmundsson
Andrés Rúnar Ingason
Samúel Smári Hreggviðsson