3. fundur íþrótta- og tómstundanefndar
3. fundur íþrótta- og tómstundanefndar, kjörtímabilið 2006-2010, haldinn miðvikudaginn 20. september 2006, kl. 17:15 í ráðhúsi Árborgar.
Mætt: Grímur Arnarson, Kristín Hrefna Halldórsdóttir, Helgi S. Haraldsson, Elín Harpa Valgeirsdóttir,Gylfi Þorkelsson ogGrímur Hergeirsson.
1. mál: Endurgjaldslaus aðgangur barna og unglinga að sundstöðum.
Umræður um málið. Nefndin telur ekki tímabært að veita börnum og unglingum endurgjaldslausan aðgang að sundstöðum sveitarfélagsins umfram það sem nú er. Nefndin ræddi einnig hugsanlega möguleika á lengdri kvöldopnun íSundhöll Selfosst.d. eitt kvöld í viku. Samþykkt að beina því til verkefnisstjóra að vinna að málinu.
2. mál: 2003000070
Stefna Sveitarfélagsins Árborgar í íþrótta- og tómstundamálum. Endurskoðun
Nefndin telur rétt að stefna Sveitarfélagsins Árborgar í íþrótta- og tómstundamálum eigi að vera lifandi og í stöðugri endurskoðun. Samþykkt að leita eftir athugasemdum og tillögum um endurbætur á stefnunni hjá íþrótta- og tómstundafélögum í sveitarfélaginu og taka stefnuna í framhaldi af því til skoðunar.
3. mál: 0608179
Beiðni um upplýsingar um minnihlutahópa í íþróttum. Erindi frá ÍSÍ. Vísað til ÍTÁ af bæjarráði 07.09.06.
Nefndin felur verkefnisstjóra íþrótta-, forvarna- og menningarmála að svara erindinu með hliðsjón af viðkomandi stefnum sveitarfélagsins.
4. mál: Uppbygging íþróttamannvirkja.
Upplýst að KSÍ sparkvöllur við Barnaskólann á Eyrarbakka væri að mestu tilbúinn og vígsla hans fyrirhuguð á næstunni.
Einnig upplýst að unnið sé að lokafrágangi á raflýsingu á gervigrasvellinum við Engjaveg á Selfossi og framkvæmdum við völlinn því í þann mund að ljúka.
Nefndin fagnar því að kominn sé sparkvöllur á Eyrarbakka og fullkominn gervigrasvöllur á Selfossi.
Meirihluti nefndarmanna samþykkir að nú þegar verði hafist handa við uppbyggingu aðalleikvangsins við Engjaveg á Selfossi. Elín Harpa Valgeirsdóttir sat hjá.
Gylfi Þorkelssonlagði fram svohljóðandi bókun um málið.
“Ég ítreka það viðhorf að halda beri nú þegar áfram undirbúningi að nýju fjölnota íþrótta- og tómstundasvæði í sveitarfélaginu þar sem m.a. verði gert ráð fyrir fjölnota íþróttahúsi, sundlaugarmannvirki og aðalleikvangi fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir.”
5. mál: Önnur mál.
a) Niðurgreiðsla æfinga- og tómstundagjalda.
Nefndin felur verkefnisstjóra íþrótta- forvarna og menningarmála að vinna tillögur að reglum og útfærslu á framkvæmd.
b) Ungmennahús.
Upplýst var að starfshópur um undirbúning á opnun ngmennahúss á Selfossi muni koma saman í næstu viku.
Fundi slitið kl.. 19:10
Grímur Arnarson
Kristín Hrefna Halldórsdóttir
Gylfi Þorkelsson
Helgi S. Haraldsson
Elín Harpa Valgeirsdóttir
Grímur Hergeirsson