33. fundur fræðslunefndar
33. fundur fræðslunefndar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn fimmtudaginn 30. maí 2013 í Norðursal, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 17:15.
Mætt: Sandra Dís Hafþórsdóttir, formaður, D-lista, Grímur Arnarson, varaformaður, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir, nefndarmaður, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, nefndarmaður, S-lista, Andrés Rúnar Ingason, nefndarmaður, V-lista, Magnús Jóhannes Magnússon, fulltrúi skólastjóra, Eygló Aðalsteinsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra, Már Ingólfur Másson, fulltrúi kennara, Málfríður Garðarsdóttir, fulltrúi foreldra grunnskóla, Gunnar Már Kristjánsson, fulltrúi foreldra leikskóla, Ingibjörg Harpa Sævarsdóttir, fulltrúi starfsmanna, Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri.
Dagskrá:
Almenn afgreiðslumál |
||
1. |
1109098 - Skólastefna Sveitarfélagsins Árborgar |
|
Fræðslunefnd samþykkir nýja skólastefnu samhljóða en hún er vegvísir fyrir starf leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu og skapar ákveðinn ramma fyrir helstu áherslur. |
||
|
||
Erindi til kynningar |
||
2. |
1304079 - Kynning á innleiðingu á spjaldtölvum í Vallaskóla |
|
Már Ingólfur Másson og Leifur Viðarsson, kennarar í Vallaskóla, kynntu nokkra námsmöguleika sem spjaldtölvur hafa upp á að bjóða. Fræðslunefnd þakkar þeim fyrir góða kynningu. Samþykkt að skipa starfshóp um notkun á upplýsingatækni í skólastarfi sveitarfélagsins. Fræðslustjóra falið að fylgja málinu eftir í leik- og grunnskólum. |
||
|
||
3. |
1109098 - Skólastefna Sveitarfélagsins Árborgar |
|
Fjórar fundargerðir stýrihóps til kynningar frá 16. apríl, 22. apríl, 6. maí og 16. maí 2013. |
||
|
||
4. |
1304165 - Aðalnámskrá fyrir greinasvið grunnskóla |
|
Frétt mennta- og menningarmálaráðuneytis frá 17. apríl 2013 um innleiðingu á breytingum í skólastarfi samkvæmt nýjum námskrám til kynningar. |
||
|
||
5. |
1301027 - Fundir leikskólastjóra, sérkennslufulltrúa og fræðslustjóra |
|
Fundargerð frá 14. maí 2013 til kynningar. |
||
|
||
6. |
1301026 - Samráðsfundir skólastjóra og fræðslustjóra |
|
Til kynningar fundargerð samráðsfundar með skólastjórnendum í FSu frá 14. maí 2013. |
||
|
||
7. |
1203083 - Foreldrafélag Sunnulækjarskóla |
|
Fréttabréf í apríl 2013 til kynningar. |
||
|
||
8. |
1305240 - Samskipti skóla og trúfélaga |
|
Tillögur til kynnningar frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, dags. 30. apríl 2013, um með hvaða hætti skuli staðið að samskiptum skóla og trúfélaga á öllum skólastigum. |
||
|
||
9. |
1204180 - Álfheimafréttir |
|
Fréttabréf í maí 2013 til kynningar. Þar er m.a. fundargerð foreldraráðs frá 7. maí 2013. |
||
|
||
10. |
1304117 - Fréttabréf Jötunheima |
|
Fréttabréf í maí 2013 til kynningar. |
||
|
||
11. |
1304118 - Fréttabréf Brimvers og Æskukots |
|
Fréttabréf í maí 2013 til kynningar. |
||
|
||
12. |
1209005 - Talþjálfunarverkefni í leik- og grunnskólum Árborgar |
|
Upplýsingar um stöðu talþjálfunarverkefnis sem voru kynntar í bæjarráði 16. maí 2013. |
||
|
||
13. |
1206087 - Barnabær - samstarfsverkefni skólasamfélagsins á Eyrarbakka og Stokkseyri. |
|
Fræðslunefnd óskar öllum aðilum skólasamfélagsins á Eyrarbakka og Stokkseyri til hamingju með hvatningarverðlaun Heimilis og skóla 2013 fyrir stóra samstarfsverkefnið Barnabæ. Barnabæjarblaðið einnig lagt fram til kynningar en allir eru velkomnir í heimsókn í Barnabæ á morgun, föstudag, frá kl. 9:30 til 12:00. |
||
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 19:00.
Sandra Dís Hafþórsdóttir |
|
Grímur Arnarson |
Brynhildur Jónsdóttir |
|
Arna Ír Gunnarsdóttir |
Andrés Rúnar Ingason |
|
Magnús Jóhannes Magnússon |
Eygló Aðalsteinsdóttir |
|
Már Ingólfur Másson |
Málfríður Garðarsdóttir |
|
Gunnar Már Kristjánsson |
Ingibjörg Harpa Sævarsdóttir |
|
Þorsteinn Hjartarson |