Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


21.4.2017

39. fundur framkvæmda- og veitustjórnar

39. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn þriðjudaginn 11. apríl 2017 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.   Mætt: Gunnar Egilsson, formaður, D-lista Ragnheiður Guðmundsdóttir, nefndarmaður, D-lista Ingvi Rafn Sigurðsson, nefndarmaður, D-lista Eggert Valur Guðmundsson, nefndarmaður, S-lista Helgi Sigurður Haraldsson, nefndarmaður, B-lista Jón Tryggvi Guðmundsson, framkvæmda- og veitustjóri   Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1.   1704056 - Gámasvæði 2017
  Baldvin Árnason frá Eflu og Kristján Jóhannesson verkstjóri þjónustumiðstöðvar, komu á fundinn og kynntu áætlanir um framkvæmdir ársins á gámasvæðinu við Víkurheiði. Gert er ráð fyrir að malbika ramp, steypa plan undir gáma og undirbúa smíði á nýjum rampi fyrir hágáma.
     
2.   1703298 - Göngustígar í Árborg 2017
  Kynnt var niðurstaða opnunar tilboða í göngustíga í Árborg 2017. Samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Gröfuþjónustu Steins.
     
3.   1703146 - Sláttur og hirðing á Eyrarbakka og Stokkseyri 2017
  Kynnt niðurstaða útboðsins Sláttur og hirðing á Eyrarbakka og Stokkseyri 2017.
     
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:15  
Gunnar Egilsson   Ragnheiður Guðmundsdóttir
Ingvi Rafn Sigurðsson   Eggert Valur Guðmundsson
Helgi Sigurður Haraldsson   Jón Tryggvi Guðmundsson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica