28. fundur skipulags- og byggingarnefndar
28. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn miðvikudaginn 5. september 2012 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:15
Mætt: Eyþór Arnalds, formaður, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, varaformaður, D-lista, Hjalti Jón Kjartansson, nefndarmaður D-lista, Grétar Zóphóníasson, nefndarmaður S-lista, Íris Böðvarsdóttir, nefndarmaður B-lista, Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, Gísli Davíð Sævarsson, aðstoðarbyggingarfulltrúi, Birkir Pétursson, starfsmaður.
Dagskrá:
| 
 Samþykktir byggingarfulltrúa  | 
||
| 
 1.  | 
 1206053 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi að Skipum 4, Stokkseyri. Umsækjandi: Gunnar Þ Jónsson. Hagaseli 18, 109 Reykjavík.  | 
|
| 
 Samþykkt.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 2.  | 
 1208110 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir spennistöð, dæluskúr og uppsetningu á mjólkurtönkum á lóð MS Selfossi. Umsækjandi: MS Selfossi. Austurvegi 65, 800 Selfoss.  | 
|
| 
 Samþykkt.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 3.  | 
 1208116 - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir nýrri utanhússklæðningu og einangrun húss að Engjavegi 63, Selfossi. Umsækjandi: Ásta Hróbjartsdóttir, Engjavegi 63, 800 Selfoss.  | 
|
| 
 Samþykkt.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 Erindi til kynningar:  | 
||
| 
 4.  | 
 1208123 - Kynntar hugmyndir að deiliskipulagi Austurvegar milli Rauðholts og Langholts.  | 
|
| 
 Tillaga að deiliskipulagi lögð fram til kynningar, tillagan verður borin undir lóðarhafa.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 Almenn afgreiðslumál  | 
||
| 
 5.  | 
 1208027 - Svæðaskipulag , umræður og upplýsingar  | 
|
| 
 Farið var yfir stöðu skipulagsmála.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 6.  | 
 1208120 - Fyrirspurn um breytta notkun á húsnæði að Tryggvagötu 40 Selfossi. Umsækjandi:Víðir Freyr Guðmundsson Kálfhólum 9, 800 Selfoss  | 
|
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd getur ekki fallist á breytta notkun á húsnæðinu þar sem það samrýmist ekki deiliskipulagi svæðisins, samanber bókun bæjarstjórnar Selfoss, dagsett 9. mars 1989.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 7.  | 
 1208119 - Óskað er eftir leyfi fyrir landnámshænum að Hafnartúni Selfossi. Umsækjandi: Bjartmar Freyr Jóhannesson, Hafnartúni, 800 Selfoss  | 
|
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarráð að leyfi verði veitt.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 8.  | 
 1208118 - Ósk um lokun á göngustíg fyrir framan Sigtún 25, 26 og 27, Selfossi. Umsækjandi: Hrafnhildur Jóhannesdóttir, Sigtúni 27, 800 Selfoss  | 
|
| 
 Erindinu hafnað þar sem um er að ræða mikilvæga tengingu milli íbúðarhverfis og skóla.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 9.  | 
 1208115 - Umsókn um leyfi fyrir breyttri notkun að Austurvegi 52, Selfossi. Umsækjandi Vöruþjónustan ehf  | 
|
| 
 Lagt er til að erindið verður grenndarkynnt í Vallholti 21, 25, 27 og 29, Hrísholti og Merkilandi.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 10.  | 
 1208114 - Fyrirspurn um breytingar á lóð að Kerhólum 9-17 Selfossi. Umsækjandi:Eðalbyggingar ehf Gagnheiði 61 , 800 Selfoss  | 
|
| 
 Lagt er til að erindið verði grenndarkynnt í Kerhólum.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 11.  | 
 1208122 - Fyrirspurn um leyfi til endurbyggingar húsnæðis að Eyravegi 35, Selfossi. Umsækjandi: Pro-Ark teiknistofa  | 
|
| 
 Erindinu frestað, skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afla frekari gagna.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 12.  | 
 0908042 - Ósk um að afsala sér hluta lóðar að Álftarima 16-26 Selfossi, áður á fundi 24.júlí sl.  | 
|
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 13.  | 
 1208132 - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg frá Stokkseyri að Hraunsá ásamt göngubrú yfir ána. Umsækjandi: Sveitarfélagið Árborg, Austurvegi 2, 800 Selfoss  | 
|
| 
 Samþykkt. Nefndin lýsir yfir ánægju með að verkefnið sé komið á framkvæmdarstig.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 14.  | 
 1209009 - Umsókn um lóðina Berghóla 1-7 Selfossi. Umsækjandi: Súperbygg ehf, Eyravegi 31 Selfoss  | 
|
| 
 Samþykkt er að úthluta lóðinni.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 15.  | 
 1111015 - Friðlýsing landssvæða í Flóa  | 
|
| 
 Nefndin mælir með friðlýsingu fuglafriðlands í Flóa og sér ekki annmarka á friðlýsingu Flóagaflsmýrar, önnur svæði þarfnast nánari skoðunar.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 16.  | 
 1106045 - Tillaga að breyttu aðalskipulagi og deiliskipulagi búgarðabyggðar í Byggðarhorni.  | 
|
| 
 Nefndin leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt í samræmi við 2. málgrein 30. greinar skipulagslaga.  | 
||
| 
 
  | 
||
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:20
| 
 Eyþór Arnalds  | 
 
  | 
 Tómas Ellert Tómasson  | 
| 
 Hjalti Jón Kjartansson  | 
 
  | 
 Grétar Zóphóníasson  | 
| 
 Íris Böðvarsdóttir  | 
 
  | 
 Bárður Guðmundsson  | 
| 
 Gísli Davíð Sævarsson  | 
 
  | 
 Birkir Pétursson  |