109. fundur bæjarráðs
109. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn fimmtudaginn 20. september 2012 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10.
Mætt: Eyþór Arnalds, formaður, D-lista, Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, S-lista, Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista, Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, V-lista, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð.
Formaður leitaði afbrigða til að taka á dagskrá ályktun um löggæslumál og trúnaðarmál.
Var það samþykkt samhljóða. 
Dagskrá:
| 
 Fundargerðir til staðfestingar  | 
||
| 
 1.  | 
 1201020 - Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar  | 
|
| 
 40. fundur haldinn 12. september  | 
||
| 
 Fundargerðin staðfest.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 Fundargerðir til kynningar  | 
||
| 
 2.  | 
 1202030 - Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga  | 
|
| 
 799. fundur haldinn 7. september  | 
||
| 
 Lagt fram.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 3.  | 
 1209077 - Fundargerðir vegna stækkunar á verknámshúsi við FSu  | 
|
| 
 1. fundur haldinn 12. september  | 
||
| 
 Bæjarráð fagnar því að skriður sé kominn á undirbúningsvinnu við byggingu verknámshúss við Fjölbrautaskóla Suðurlands.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 4.  | 
 1201084 - Fundargerð Skólaskrifstofu Suðurlands  | 
|
| 
 141. fundur haldinn 13. september  | 
||
| 
 Lagt fram.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 Almenn afgreiðslumál  | 
||
| 
 5.  | 
 1203166 - Tillaga um breyttan fundartíma bæjarráðs  | 
|
| 
 Bæjarráð samþykkir að fundartími bæjarráðs í næstu viku verði fluttur yfir á miðvikudaginn 26. september kl. 08:10 vegna fjármálaráðstefnu.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 6.  | 
 1209073 - Fyrirspurn OpenStreetMap um aðgang að kortum sveitarfélagsins  | 
|
| 
 Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og byggingarfulltrúa til skoðunar.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 7.  | 
 1209054 - Beiðni Velferðarráðuneytisins um umsögn um drög að heilbrigðisáætlun  | 
|
| 
 Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að fara yfir erindið.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 8.  | 
 1209056 - Tilkynning atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um úthlutun byggðakvóta 2012-2013  | 
|
| 
 Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að sækja um byggðakvóta.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 9.  | 
 1206073 - Samningur við ISS ehf um útboð á ræstingum 2012-2015  | 
|
| 
 Bæjarráð staðfestir samninginn.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 10.  | 
 1112093 - Kaupsamningur og afsal við Sandvíkursetur ehf vegna sölu á Sandvíkurskóla  | 
|
| 
 Bæjarráð staðfestir samninginn.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 11.  | 
 1209064 - Erindi Halls Halldórssonar vegna meistaraflokks kvenna í handbolta  | 
|
| 
 Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 12.  | 
 1209097 - Beiðni um viðbótarfjárframlag vegna framkvæmda við endurnýjun gangstétta við Birkivelli  | 
|
| 
 HS-veitur og Míla hafa óskað eftir samstarfi við sveitarfélagið vegna endurnýjunar á lögnum og yfirborðsfrágangi gangstétta á Birkivöllum. Bæjarráð samþykkir að leggja 3ja mkr. framlag á móti framlagi HS og Mílu til endurbóta á gangstétt við Birkivelli.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 13.  | 
 1209098 - Beiðni um flutning fjármagns á milli ára vegna brúargerðar yfir Hraunsá vegna göngustígs  | 
|
| 
 Lagt var til að bæjarráð samþykki að 3,5 mkr af áætluðu framlagi ársins 2013 verði flutt yfir á árið 2012. Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með tveimur atkvæðum. Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, sat hjá. Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, óskaði eftir að bókað yrði: Það er skoðun undirritaðs að mikilvægt sé að unnið sé eftir samþykktri fjárfestingaáætlun vegna fjárfestingaverkefna sem varða ekki grunnþjónustu sem sveitarfélagið veitir.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 14.  | 
 1209127 - Staða löggæslumála  | 
|
| 
 Bæjarráð Árborgar tekur undir áhyggjur lögreglunnar í Árnessýslu, sem komið hafa fram í fjölmiðlum að undanförnu, um stöðu löggæslumála í Árnessýslu. Bæjarráð hvetur stjórnvöld til að tryggja nægjanlegt framlag til löggæslumála. 
  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 15.  | 
 1209128 - Trúnaðarmál  | 
|
| 
 Fært í trúnaðarbók.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 Erindi til kynningar  | 
||
| 
 16.  | 
 1202241 - Skýrsla Varasjóðs húsnæðismála um stöðu leiguíbúða sveitarfélaga 2011  | 
|
| 
 Lagt fram.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 17.  | 
 1209096 - Greinargerð um kirkjugarð Selfoss 1943-2012  | 
|
| 
 Lagt fram.  | 
||
| 
 
  | 
||
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:00.
  
| 
 Eyþór Arnalds  | 
 
  | 
 Elfa Dögg Þórðardóttir  | 
| 
 Eggert V. Guðmundsson  | 
 
  | 
 Helgi Sigurður Haraldsson  | 
| 
 Þórdís Eygló Sigurðardóttir  | 
 
  | 
 Ásta Stefánsdóttir  |