42. fundur leikskólanefndar
42. fundur leikskólanefndar Árborgar haldinn í Ráðhúsi Árborgar þann 15. febrúar 2006
Formaður nefndarinnar setti fundinn kl. 18:10
Mættir: Arna Ír Gunnarsdóttir, Róbert Sverrisson, Sigríður Óskarsdóttir, Heiðdís Gunnarsdóttir, leikskólafulltrúi, Auður Hjálmarsdóttir; fulltrúi starfsmanna, Sigmundur Sigurgeirsson; fulltrúi foreldra.
1. Endurskoðun Leikskólastefnu Árborgar
Farið var yfir stefnuna og hún rædd. Nefndarmeðlimir geta komið með athugasemdir fyrir næsta fund.
2. Fundargerð leikskólafulltrúa og leikskóastjóra dags. 14. febrúar s.l.
Leikskólafulltrúi dreifði fundargerð til kynningar.
3. Samvera í Álfheimum í tengslum við opnun nýrrar deildar 16. febrúar n.k.
Nefndarmeðlimir eru hvattir til að mæta við opnun deildarinnar.
4. Önnur mál
a) Leikskólafulltrúi dreifði fréttabréfum frá Álfheimum janúar, febrúar, Æskukoti janúar, febrúar og Brimveri febrúar.
Fundi slitið kl. 19:00
Fundargerð ritaði Róbert Sverrisson
Arna Ír Gunnarsdóttir
Róbert Sverrisson
Sigríður Óskarsdóttir
Heiðdís Gunnarsdóttir, leikskólafulltrúi
Auður Hjálmarsdóttir, fulltrúi starfsmanna
Sigmundur Sigurgeirsson, fulltrúi foreldra