47. fundur framkvæmda- og veitustjórnar
47. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn miðvikudaginn 28. nóvember 2012 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.
Mætt: Gunnar Egilsson, formaður, D-lista,
Ingvi Rafn Sigurðsson, nefndarmaður, D-lista,
Eggert Valur Guðmundsson, nefndarmaður, S-lista,
Jón Tryggvi Guðmundsson, tækni- og veitustjóri,
Andrés Rúnar Ingason, varamaður, V-lista,
Guðjón Guðmundsson, varamaður, D-lista.
Dagskrá:
Almenn afgreiðslumál |
||
1. |
1210108 - Lyfta í íþróttahús Vallaskóla |
|
Stjórnin fór í vettvangsskoðun í íþróttahúsið við Vallaskóla og kannaði möguleika á uppsetningu lyftu fyrir fatlaða einstaklinga. Framkvæmdastjóra falið að vinna að nánari útfærslu að stigalyftu í íþróttahúsi Vallaskóla, skv. valkosti nr. 1 í skýrslu frá Verkfræðistofu VGS. Tekið verður tillit til kostnaðar framkvæmdarinnar við lokaframsetningu fjárfestingaráætlunar ársins 2013. |
||
|
||
2. |
1211133 - Starfslýsingar fyrir nýtt skipurit |
|
Stjórnin fór yfir nýtt skipurit fyrir framkvæmda- og veitusvið. Stjórnin leggur til að auglýst verði nýtt starf deildarstjóra framkvæmda og þjónustu. |
||
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:07
Gunnar Egilsson
Ingvi Rafn Sigurðsson
Eggert Valur Guðmundsson
Jón Tryggvi Guðmundsson
Andrés Rúnar Ingason
Guðjón Guðmundsson