Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


31.5.2018

44. fundur fræðslunefndar

44. fundur fræðslunefndar Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn þriðjudaginn 15. maí 2018 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 16:30.  Mætt: Sandra Dís Hafþórsdóttir, formaður, D-lista Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista Brynhildur Jónsdóttir, nefndarmaður, D-lista Arna Ír Gunnarsdóttir, nefndarmaður, S-lista Guðrún Þóranna Jónsdóttir, nefndarmaður, B-lista Magnús Jóhannes Magnússon, fulltrúi skólastjóra Kristín Fjóla Bergþórsdóttir, fulltrúi kennara Kristín Eiríksdóttir, fulltrúi leikskólastjóra Málfríður Erna Samúelsdóttir, fulltrúi foreldra leikskóla María Ágústsdóttir, fulltrúi foreldra Brynja Hjörleifsdóttir, fulltrúi starfsmanna leikskóla Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1.   18051065 - Fjölmenningarleg menntun í Árborg
  Hrund Harðardóttir, kennsluráðgjafi, kynnti upplýsingaplaggið og vinnu faghópsins. Þar eru gagnlegar upplýsingar sem nýtast m.a. við móttöku barna af erlendum uppruna í leik- og grunnskólum í Árborg.
     
2.   18051074 - Fjölgun stöðugilda hjá skólaþjónustu Árborgar
  Erindi fræðslustjóra um fjölgun um eitt stöðugildi sálfræðings hjá skólaþjónustu vegna mikillar fjölgunar nemenda að undanförnu. Fræðslunefnd mælist til að bæjarráð samþykki erindið.
     
3.   1708133 - Undirbúningur að byggingu skóla í Björkurstykki
  1) Lokaskýrsla vinnuhóps til kynningar. Fræðslunefnd þakkar hópnum og verkefnisstjóranum, Birnu Sigurjónsdóttur, fyrir góða vinnu. 2) Bókun bæjarráðs þar sem óskað er eftir að fræðslusvið tilnefni tvo fulltrúa sviðsins í byggingarnefnd. Samþykkt að tilnefna Hrund Harðardóttur, kennsluráðgjafa, og Helgu Sighvatsdóttur, skólastjóra Tónlistarskóla Árnesinga, en þær tóku báðar virkan þátt í hugmyndavinnu vinnhópsins.
     
4.   1804305 - Jafnréttisáætlun leikskóla Árborgar 2018-2021
  Jafnréttisáætlun lögð fram en hún er hluti af starfsmannahandbókum leikskólanna. Fræðslunefnd samþykkir áætlunina.
     
5.   1804177 - Beiðni um endurnýjað stöðugildi deildarstjóra Vallaskóla
  Erindi frá skólastjóra Vallaskóla til bæjarráðs sem var tekið fyrir 26. apríl sl. Bæjarráð vísaði erindinu til fræðslunefndar sem mælist til að það verði samþykkt. Eins og kunnugt er hefur nemendafjölgun verið veruleg í skólanum að undanförnu sem kallar m.a. á enn öflugra stjórnendateymi.
     
Erindi til kynningar
6.   1611240 - Skólastefna Árborgar
  Vinnuplagg stýrihóps til umsagnar. Fræðsluefnd samþykkir að lokavinnan verði unnin á þessum grunni.
     
7.   1804120 - Breyting á skóladagatali BES v/námsferðar til Hollands
  Skýringar skólastjóra sem kallað var eftir á 43. fundi fræðslunefndar. Samkvæmt þeim er rökstuðningur til staðar fyrir þeim breytingum sem þegar hafa verið samþykktar.
     
8.   1802031 - Fundargerðir hverfisráðs Sandvíkurhrepps 2017-2018
  Fræðslustjóri kynnti helstu niðurstöður funda sem hann og skólastjóri Sunnulækjarskóla áttu annars vegar með GT og hins vegar með fulltrúum foreldra. Fræðslunefnd mælir með að frá og með næsta hausti verði þrír bílar notaðir í skólaakstri að morgni en fyrirkomulag verði að mestu óbreytt eftir hádegi. Þannig sé komið til móts við óskir notenda um að stytta þann tíma sem börnin eru í bílunum. Kostnaðaraukning er rétt innan við 250 þúsund á mánuði.
     
9.   1804197 - Endurmenntunarsjóður grunnskóla skólaárið 2018-2019
  Til kynningar. Framlag sjóðsins til skólaþjónustu Árborgar v/endurmenntunarnámskeiða á næsta skólaári verður kr. 1.008.000.-
     
10.   1804340 - Skóladagur Árborgar 2018
  Til kynningar. - Dagskrá fyrirlestra og menntabúða. - Niðurstöður könnunar sem var lögð fyrir þátttakendur. Almenn ánægja var með skóladaginn og margir segja hann kominn til að vera. Þarna skapist gott tækifæri til faglegs samtals milli starfsmanna skólanna, milli skólastiga og við skólaþjónustu.
     
11.   1802201 - Samstarfsfundur leikskólastjóra og fræðslustjóra
  Til kynningar. - Fundargerð frá 16. apríl 2018. - Fundargerð frá 8. maí 2018.
     
12.   1802006 - Samráðsfundir skólastjóra og fræðslustjóra
  Fundargerð frá 24. apríl 2018 til kynningar.
     
13.   1804309 - Rannsókn á ART aðferðinni
  Mat Rannsóknarstofnunar Háskóla Íslands í barna- og fjölskylduvernd á ART út frá sjónarhóli þátttökubarna, foreldra þeirra og kennara. Meginniðurstöður matsins sýna að með úrræðinu náist það markmið að draga úr hegðunarvandkvæðum og árásarhneigð barna. Fræðslunefnd fagnar þessum niðurstöðum og sendir ART teyminu bestu hamingjuóskir.
     
14.   1803010 - Skólaráð Vallaskóla
  Fundargerð frá 24. apríl 2018 til kynningar.
     
15.   18051135 - Olweusarkönnun 2017-2018 - skýrsla verkefnisstjóra
  Til kynningar.
     
16.   1804169 - Upplýsingaöryggisstefna nemendaskrár BES
  Til kynningar.
     
17.   1804389 - Ályktun frá 90. ársfundi SSK
  Til kynningar.
     
18.   1804387 - Styrkur - ný persónuverndarlöggjöf, innleiðing í skólum og frístundastarfi
  Til kynningar.
     
19.   1804358 - Námsleyfi grunnskólakennara og skólastjóra 2018-2019
  Til kynningar. Formaður fræðslunefndar þakkar nefndarmönnum kærlega fyrir gott og árangursríkt samstarf og óskar skólasamfélaginu í Árborg velfarnaðar á komandi árum.
     
  Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl. 18:20  
Sandra Dís Hafþórsdóttir   Magnús Gíslason
Brynhildur Jónsdóttir   Arna Ír Gunnarsdóttir
Guðrún Þóranna Jónsdóttir   Magnús Jóhannes Magnússon
Kristín Fjóla Bergþórsdóttir   Kristín Eiríksdóttir
Málfríður Erna Samúelsdóttir   María Ágústsdóttir
Brynja Hjörleifsdóttir   Þorsteinn Hjartarson
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica