Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


18.4.2013

31. fundur fræðslunefndar

31. fundur fræðslunefndar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn fimmtudaginn 11. apríl 2013  í Norðursal, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 17:15. 

Mætt: Sandra Dís Hafþórsdóttir, formaður, D-lista, Grímur Arnarson, varaformaður, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir, nefndarmaður, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, nefndarmaður, S-lista, Andrés Rúnar Ingason, nefndarmaður, V-lista, Guðbjartur Ólason, fulltrúi skólastjóra, Eygló Aðalsteinsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra, Guðrún Thorsteinsson, fulltrúi kennara, Gunnar Már Kristjánsson, fulltrúi foreldra leikskóla, Ingibjörg Harpa Sævarsdóttir, fulltrúi starfsmanna, Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri. 

 Dagskrá: 

Erindi til kynningar

1.

1209091 - Foreldrakönnun í leikskólum

 

Fræðslustjóri kynnti helstu niðurstöður. Könnunin var gerð í janúar og febrúar 2013 af skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Markmið könnunarinnar var að skoða viðhorf foreldra til leikskólans, daglegra viðfangsefna, áherslna, skipulags og upplýsingaflæðis. Könnunin sýnir m.a. að mikill meirihluti foreldra er almennt ánægður með leikskólastarfið en 98% svarenda telja að barninu líði vel í leikskólanum. Unnið verður nánar með niðurstöðurnar í hverjum leikskóla og á fræðslusviði. Einnig verða skýrslurnar aðgengilegar á heimasíðu Árborgar bæði heildarskýrsla fyrir sveitarfélagið og skýrsla hvers leikskóla.

 

   

2.

1303040 - Skólavogin

 

Kynning á helstu niðurstöðum foreldrakönnunar í grunnskólum sem var lögð fyrir í febrúar 2013. Hver skóli vinnur nánar með niðurstöðurnar og þegar hafa skólastjórar og fræðslustjóri farið yfir helstu niðurstöður á samráðsfundum sínum.

 

 

   

3.

1304123 - Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2013-2014

 

Úthlutun úr sjóðnum til fræðslusviðs og tveggja grunnskóla í Árborg verður samtals kr. 611.000.- Um er að ræða sex símenntunarverkefni. Eitt verkefnið nefnist Heiltæk forysta og samstarfsnet skóla í Árborg sem verður í umsjón menntavísindasviðs HÍ. Skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar grunnskólanna munu sækja námskeiðið og einnig verður stjórnendum í leikskólum boðið að taka þátt. Þá hljóta þrjú símenntunarverkefni í Sunnulækjarskóla styrk og tvö í Vallaskóla.

 

   

4.

1301027 - Fundir leikskólastjóra, sérkennslufulltrúa og fræðslustjóra

 

Fundargerð frá 19. mars 2013 til kynningar.

 

   

5.

1304044 - Fundur leikskólakennara, leikskólastjóra, sérkennslufulltrúa, formanns fræðslunefndar og fræðslustjóra

 

Fundargerð frá 26. mars 2013 til kynningar.

 

   

6.

1304165 - Aðalnámskrá fyrir greinasvið grunnskóla

 

Auglýsing mennta- og menningarmálaráðuneytisins frá 18. mars 2013 til kynningar.

 

   

7.

1204180 - Álfheimafréttir

 

Grænn apríl 2013 til kynningar. Í Álfheimafréttum er m.a. fundargerð foreldraráðs frá 7. mars 2013.

 

   

8.

1304119 - Foreldrafélag Sunnulækjarskóla

 

Fréttabréf frá febrúar og mars 2013 til kynningar. Þar kemur m.a. fram að félagið hefur opnað Facebooksíðu.

 

   

9.

1304118 - Fréttabréf Brimvers og Æskukots

 

Fréttabréf í apríl 2013 til kynningar.

 

   

10.

1304117 - Fréttabréf Jötunheima

 

Fréttabréf í mars-apríl 2013 til kynningar.

 

   

11.

1304120 - Skólaráð Vallaskóla

 

Fundargerð frá 12. mars 2013 til kynningar.

 

   

12.

1302081 - Efling skólastarfs og sérfræðiþjónusta skóla í Árborg

 

Til kynningar:

- Bréf framkvæmdastjóra og fræðslustjóra, dags. 28.2.2013, til aðildarsveitarfélaga SKS.

- Svarbréf frá Bláskógabyggð,Hrunamannahreppi, Grímsnes- og Grafningshreppi og Mýrdalshreppi.

- Bréf Kennarafélags Suðurlands, dags. 13.3.2013, til Sveitarfélagsins Árborgar.

 

 

Undirrituð harma þann brest sem upp er kominn í samstarfi Sveitarfélagsins Árbogar og nágrannasveitarfélaga vegna úrsagnar sveitarfélagsins úr Byggðasamlagi  um Skólaskrifstofu Suðurlands. Ljóst er að úrsögnin hefur haft víðtæk neikvæð áhrif. Undirrituð telja að koma hefði mátt í veg fyrir þessa óþarfa óeiningu ef farið hefði verið að tilmælum okkar um samræður við nágrannasveitarfélögin áður en tekin var endanleg ákvörðun um málið.

Andrés Rúnar Ingason, fulltrúi V-lista,                                                          Arna Ír Gunnarsdóttir, fulltrúi S-lista.

 

   

13.

1303127 - Bréf fræðslustjóra, dags. 18.3.2013, og svar framkvæmdastjóra Skólaskrifstofu

 

Til kynningar.

 

   

14.

1301198 - Fundargerðir Skólaskrifstofu Suðurlands 2013

 

Til kynningar 148. stjórnarfundur haldinn 25. mars 2013.

 

   

 

Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 19:00
  

Sandra Dís Hafþórsdóttir

 

Grímur Arnarson

Brynhildur Jónsdóttir

 

Arna Ír Gunnarsdóttir

Andrés Rúnar Ingason

 

Guðbjartur Ólason

Eygló Aðalsteinsdóttir

 

Guðrún Thorsteinsson

Gunnar Már Kristjánsson

 

Ingibjörg Harpa Sævarsd.

Þorsteinn Hjartarson

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica