Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


31.5.2007

46. fundur bæjarráðs

 

46. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn 31.05.2007 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10

 

Mætt:
Jón Hjartarson, formaður, V-lista
Margrét Katrín Erlingsdóttir, bæjarfulltrúi B-lista
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi D-lista
Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari

 

Formaður bæjarráðs bauð Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúa D-lista, velkominn til starfa í bæjarráði.

 

Eyþór þakkaði góðar móttökur á fallegum degi.

 

Dagskrá:

 

1. Fundargerðir til staðfestingar:

 

 


a.


0702011
Fundargerð umhverfisnefndar



frá 23.05.07


b.


0702072
Fundargerð atvinnuþróunarnefndar Árborgar



frá 23.05.07


c.


0701068
Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar



frá 24.05.07

 

1a) -liður 2, 0704080, bæjarráð tekur undir tillögu umhverfisnefndar um söfnun og skil á pappír frá íbúum Árborgar og felur framkvæmda- og veitusviði að leita samvinnu við Sorpstöð Suðurlands um framkvæmd verksins.

Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:

„Það er fagnaðarefni að nú verði íbúum Árborgar boðið upp á svokallaðar grænar tunnur til endurvinnslu á pappír. Rétt er að minnast þess að á fyrsta fundi umhverfinefndar sem haldinn var 19.07. 2006 lagði Elfa Dögg Þórðardóttir bæjarfulltrúi D-lista fram tillögu þess efnis að gerðar yrðu starfsreglur um endurvinnslu úrgangs í sveitarfélaginu. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks munu áfram stuðla að aukinni umhverfisvitund og endurvinnslu íbúa og stofnana sveitarfélagsins."

 

1c) -liður 16, 0704084, bæjarráð samþykkir að tillaga um deiliskipulag Fagurgerðis 1-3 verði auglýst.
-liður 17, 0704133, bæjarráð samþykkir að tillaga um deiliskipulag Byggðarhorns, lóðar 27, verði auglýst.
-liður 18, 0704132, bæjarráð samþykkir að tillaga um aðalskipulag Byggðarhorns, lóðar 27, verði auglýst.
-liður 19, 0701161, bæjarráð felur umhverfisnefnd að fjalla um tillögu skipulags- og byggingarnefndar um iðnaðarsvæði við Stokkseyri með hliðsjón af náttúruvernd.
-liður 20, 0604059, bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afmarka þann hluta skipulagsins við Kaðlastaði sem er ætlaður fyrir íbúðir aldraðra og auglýsa þann hluta.
-liður 21, 0705094, bæjarráð samþykkir að deiliskipulagstillaga vegna tjaldsvæðis á Stokkseyri verði auglýst.
-liður 22, 0612033, bæjarráð samþykkir tillögu að deiliskipulagi Nýja-bæjar, land nr. 202077.
-liður 23, 0611068, bæjarráð frestar afgreiðslu á tillögu að deiliskipulagi lands norðan og austan sjúkrahúss í landi Laugardæla.
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:

„Enn á ný snýr meirihluti bæjarráðs við ákvörðun fagnefndar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem meirihluti bæjarráðs fer gegn ákvörðun Skipulags- og byggingarnefndar. Ljóst er að meirihlutinn er ósamstíga í ákvörðunum og hlýtur þetta verklag að valda óvissu þeirra sem treysta á stjórnkerfi sveitarfélagsins.

Byggðaþróun á Selfossi teygir sig nú nær mörkum Flóahrepps og er æ mikilvægara að skipulagsmál séu hugsuð í samhengi. Deiliskipulag í landi Laugardæla innan marka Árborgar sýna glöggt mikilvægi þess sbr. lið 20 í fundargerð Skipulags- og byggingarnefndar dags 25. 5. 2007. Vegtengingar innan hverfa og fyrirhuguð tvöföldun Suðurlandsvegar kallar á að sameining sveitarfélaganna sé skoðuð alvarlega eins og bæjarfulltrúar D-listans hafa bent á. Afar mikilvægt er að samstarf nágrannasveitarfélaganna sé gott og náið".

Gert var fundarhlé.

Margrét K. Erlingsdóttir, B-lista, lagði fram svohljóðandi bókun f.h. meirihlutans:
Bæjarráð er framkvæmdaráð sveitarfélagsins og ber ábyrgð á staðfestingu skipulagsmála. Á 37. fundi bæjarráðs var samþykkt að auglýsa skipulag lands norðan og austan sjúkrahúss í landi Laugardæla með skilyrðum um að vegtenging við Laugardælaveg yrði frágengin. Engar upplýsingar liggja fyrir um það, því er nauðsynlegt að fresta afgreiðslu þar til fullnaðar upplýsingar um vegtengingar liggja fyrir enda öryggi væntanlegra íbúa haft í fyrirrúmi.

Jón Hjartarson, V-lista, lagði fram bókun f.h. meirihlutans:
Á fundi bæjarráðs 10.05.2007 var samþykkt tillaga meirihlutans um að leita eftir viðræðum við sveitarstjórn Flóahrepps um samvinnu og sameiningu sveitarfélaganna. Ekki hafa borist nein viðbrögð við þessari samþykkt enn sem komið er.
Meirihluti bæjarráðs telur nauðsynlegt að viðræður um sameiningu fari fram sem allra fyrst.
-liður 24, bæjarráð heimilar að tillaga að deiliskipulagi að Dvergasteinum verði auglýst.
-liður 25, 0608006, bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar til Mest ehf. að Hrísmýri 8.

 

Fundargerðirnar staðfestar.

 

2. Fundargerðir til kynningar:

 

 


a.


0701067
Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands



frá 15.05.07

 

  Lögð fram.

 

 3. 0611037
Samkomulag um námsvist í grunnskólum Árborgar -

Bæjarráð staðfestir samninginn.

 


4. 0705082
Samkomulag um afnot af félagsmiðstöðinni Zelsíuz á Selfossi. -

Bæjarráð staðfestir samninginn.

 

5. 0705127
Beiðni um fjárveitingu vegna námskeiðahalds starfsmanna í félagslegri heimaþjónustu -

Bæjarráð samþykkir fjárveitingu að fjárhæð kr. 499.000 vegna námskeiðshalds starfsmanna í félagslegri heimaþjónustu. Fjárveitingin verði tekin af liðnum "óráðstafað" í fjárhagsáætlun. Að loknu námskeiðshaldi geri verkefnisstjóri félagslegra úrræða bæjarráði grein fyrir stöðu mála.

Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með tveimur atkvæðum. Eyþór Arnalds, D-lista, situr hjá.

Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi D-lista, lagði fram svohljóðandi bókun:
Mikilvægt er að gerð verði úttekt á starfsmannahaldi í félagslegri heimaþjónustu. Ljóst er að talsverð óánægja hefur verið um skeið meðal starfsfólks sem hefur áhrif á þjónustu íbúa í Grænumörk. Þá er óvíst að tilfallandi námskeið dugi til að bæta úr.


6. 0703158
Úthlutun byggðakvóta 2006/2007 - bréf Sjávarútvegsráðuneytisins um úthlutun til sveitarfélagsins -

Bæjarráð felur bæjarritara að afla svara frá sjávarútvegsráðuneytinu um það með hvaða hætti umsókn um byggðakvóta fyrir Stokkseyri var afgreidd. Hafi umsókninni verið hafnað, svo sem álykta má út frá gögnum á heimasíðu Fiskistofu, verði farið fram á rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun.
Bæjarráð leggur mikla áherslu á að byggðakvóti sem úthlutaður hefur verið Eyrarbakka, alls 44 þorskígildistonn, sbr. bréf sjávarútvegráðuneytisins frá 21. maí 2007, nýtist til fulls og að aflinn verði unninn innan sveitarfélagsins. Þar sem aðstæður eru með nokkuð sérstökum hætti í sveitarfélaginu telur bæjarráð nauðsynlegt að vikið verði frá ákvæðum í reglugerð nr. 439/2007 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2006/2007. Bæjarráð telur að málefnalegar og staðbundnar ástæður séu fyrir hendi, svo sem greinir hér á eftir, og telur það í samræmi við hagsmuni byggðalagsins að vikið verði frá ákvæðum reglugerðarinnar með eftirgreindum hætti:
a. Með vísan til heimildar í 6. gr. reglugerðarinnar er þess farið á leit við ráðherra að vikið verði frá þeirri skyldu að fiskiskip landi til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlags afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þeirra aflaheimilda sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerðinni og úthlutun skuli ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði sé uppfyllt. Þess er farið á leit að ráðherra heimili að vikið verði frá þessu skilyrði með þeim hætti að skylda til löndunar innan hlutaðeigandi byggðarlags verði ekki svo fortakslaus sem gert er ráð fyrir í 6. gr., heldur verði heimilað að fiskiskip landi til vinnslu innan Sveitarfélagsins Árborgar. Helgast þessi tillaga af þeirri staðreynd að á Eyrarbakka er ekki starfrækt fiskvinnsla nú sem stendur, en fiskvinnsla er aftur á móti starfrækt á Stokkseyri. Er því ljóst að ekki er unnt að uppfylla skilyrðið um löndun til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlags að óbreyttu og byggðakvóti byggðarlagsins muni ekki nýtast nema heimilað verði að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins í stað byggðarlagsins. Sveitarfélagið Árborg er eitt atvinnusvæði og vegalengdir milli byggðarlaga stuttar.
b. Með vísan til heimildar í 2. gr. reglugerðarinnar er þess farið á leit að ef fiskiskip sem skráð eru á Eyrarbakka 1. maí 2007, og koma til greina við úthlutun byggðakvóta, geta ekki uppfyllt skilyrði um að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins, sbr. a-lið hér að framan, heimili ráðherra að vikið verði frá því skilyrði að fiskiskip sem fær úthlutun sé skráð í viðkomandi byggðarlagi, í þessu tilviki Eyrarbakka. Í stað þess verði gert að skilyrði að fiskiskip sem fá úthlutun sé skráð í Sveitarfélaginu Árborg. Aðstæður í Sveitarfélaginu Árborg eru með þeim hætti, svo sem að framan greinir, að á Eyrarbakka er ekki fiskvinnsla sem stendur og því ekki um það að ræða að unnt sé að vinna aflann í heimabyggð að óbreyttu. Þá munu aðeins 2-3 fiskiskip vera skráð í sveitarfélaginu, 1-2 á Eyrarbakka. Í sveitarfélaginu er starfrækt ein fiskvinnsla, auk harðfiskverkunar. Hætta er á að byggðakvóti byggðarlagsins nýtist ekki ef ekki verður heimilað að úthluta til fiskiskipa sem skráð eru í sveitarfélaginu, komi til þess að fiskiskip skráð á Eyrarbakka geti ekki uppfyllt skilyrði það sem farið er fram á að verði sett um löndun til vinnslu innan sveitarfélagsins.

Bæjarritara og bæjarstjóra er falið að óska eftir viðræðum við sjávarútvegsráðherra um sanngjarnar forsendur úthlutunar byggðakvóta til byggðarlaga í Sveitarfélaginu Árborg.

Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi D-lista, lýsti því yfir að hann fagni því að málinu sé fylgt eftir af festu og eindrægni.


7. 0504050
Svör við fyrirspurnum Þórunnar Jónu Hauksdóttur, bæjarfulltrúa D-lista um uppbyggingu Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri frá 44. fundi -

1. Skýrslan vegna flóðasvæðisins á Eyrarbakka hefur ekki verið tilbúin og hefur þess vegna ekki verið kynnt.
2. Staðsetningin er meira miðsvæðis á Eyrarbakka en núverandi skólahús. Umrætt svæði var ekki inni í myndinni sem byggingarsvæði þegar ákvörðun um uppbyggingu BES var tekin, enda lágu rannsóknir á svæðinu ekki fyrir.
3. Nei.
4. Leitað verður eftir samstarfi við viðeigandi aðila um stofnun Skólasögusafn Íslands, það er vel viðeigandi að hafa það safn í húsnæði skóla sem er elsti skóla landsins.
5. Málið er enn á könnunarstigi og því liggur kostnaðarmat ekki fyrir.


8. 0704144
Beiðni unglingaráðs Knattspyrnudeildar UMF Selfoss um stuðning við ýmis verkefni - áður á dagskrá 43. fundar -

Bæjarráð samþykkir beiðni unglingaráðs knattspyrnudeildar Umf. Selfoss um afnot af húsnæði, þ.e. að Skólavöllum 3, og ókeypis aðgang í sund vegna Ofur-fótboltaskólans.
Bæjarráð samþykkir beiðni unglingaráðs knattspyrnudeildar Umf. Selfoss um afnot af húsnæði Vallaskóla og ókeypis aðgang í sund vegna Meistaradeildar Olís.

Tillögurnar voru samþykktar samhljóða.

Gert var fundarhlé.

Bæjarráð hafnar beiðni unglingaráðs knattspyrnudeildar um að unglingar í vinnuskólanum séu eingöngu í starfi hjá deildinni. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra Fjölskyldumiðstöðvar og yfirverkstjóra umhverfisdeildar að funda með framkvæmdastjóra Umf. Selfoss vegna málsins og gera bráðabirgðasamkomulag um vinnuframlag unglinga vinnuskólans til félagsins á komandi sumri í samræmi við framlag síðustu ára.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra Fjölskyldumiðstöðvar að móta reglur vegna umsókna og styrkja til íþrótta- og æskulýðsfélaga í formi vinnu unglinga úr vinnuskóla Árborgar.

Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með tveimur atkvæðum. Eyþór Arnalds, D-lista, situr hjá og gerði grein fyrir atkvæði sínu:
Ég tel rétt að verða við beiðni ungmennafélagsins hvað varðar unglinga á vinnuskólaaldri, enda er bent á fordæmi um slíkt í Hafnarfirði. Námskeið sem um ræðir hefst n.k. mánudag, 4. júní, kl. 9 og því skammur tími til að vinna málið áfram. Mikilvægt er að sveitarfélagið hlúi sem allra best að fótboltaskólanum sem og öðru æskulýðsstarfi. Brýnt er að setja reglur um málið og vonandi taka þær gildi sem fyrst.



9. Erindi til kynningar:

 

 a) 0705109
Æskulýðslög nr. 70/2007 -

Bæjarráð vísar lögunum til íþrótta- og tómstundanefndar til kynningar og felur verkefnisstjóra íþrótta-, forvarnar- og menningarmála að senda lögin til íþrótta og æskulýðsfélaga í sveitarfélaginu.

b) 0705121
Ársskýrsla Ungmennafélags Selfoss 2006 -

Lögð fram.


c) 0705101
Ársskýrsla Byggðasafns Árnesinga 2006 –

 

Lögð fram.


 

 Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl. 10:32.

 

 


Jón Hjartarson


 


Margrét K. Erlingsdóttir


Eyþór Arnalds


 


Ásta Stefánsdóttir

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica