50. fundur framkvæmda- og veitustjórnar
50. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn miðvikudaginn 13. febrúar 2013 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.
Mættir: Gunnar Egilsson, formaður, D-lista, Ingvi Rafn Sigurðsson, nefndarmaður, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, nefndarmaður, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, nefndarmaður, S-lista, Andrés Rúnar Ingason, nefndarmaður, V-lista, Jón Tryggvi Guðmundsson, veitustjóri.
Dagskrá:
| 
 Almenn afgreiðslumál  | 
||
| 
 1.  | 
 1008004 - Vatnsöflun úr Árbæjarlandi  | 
|
| 
 Sigurður Sigurjónsson, bæjarlögmaður, og Páll Bjarnason komu inn á fundinn og ræddu stöðu mála varðandi vatnsöflun úr Árbæjarlandi.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 2.  | 
 1008052 - Vatnsöflun í Ingólfsfjalli  | 
|
| 
 Farið var yfir möguleika á vatnsöflun úr Ingólfsfjalli.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 3.  | 
 1301313 - Deiliskipulagstillaga Austurvegar milli hringtorga  | 
|
| 
 Tillaga að deiliskipulagi Austurvegar á milli hringtorga lögð fram til kynningar. Stjórnin óskar eftir að hönnuður kynni tillöguna á næsta fundi.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 4.  | 
 1212089 - Ráðning - deildarstjóri framkvæmda og þjónustu  | 
|
| 
 Auður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra framkvæmda og þjónustu. Auður er boðin velkomin til starfa.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 5.  | 
 1203068 - Aðgengi fatlaðra nemenda  | 
|
| 
 Til þess að koma til móts við þarfir fatlaðs fólks og auðvelda aðgengi samþykkir stjórnin að setja lyftur í gamla Barnaskólann á Stokkseyri og íþróttahúsið við Vallaskóla.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 6.  | 
 1302072 - Starfsmannamál 2013 - Selfossveitur  | 
|
| 
 Starfsmannamál rædd í tengslum við verkefni ársins. Ýmis stór verkefni eru fram undan á árinu, m.a. borun í Ósabotnum, virkjun á ÞK-17, lagning hitaveitu í dreifbýli, endurnýjun stofnlagnar í Austurvegi, kaldavatnsöflun, umsjón með mælaskiptum o.fl. Rætt um þörf á ráðningu verkefnastjóra til að halda utan um fyrirliggjandi verkefni.  | 
||
| 
 
  | 
||
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl. 10:34
| 
 Gunnar Egilsson  | 
 
  | 
 Ingvi Rafn Sigurðsson  | 
| 
 Tómas Ellert Tómasson  | 
 
  | 
 Eggert Valur Guðmundsson  | 
| 
 Andrés Rúnar Ingason  | 
 
  | 
 Jón Tryggvi Guðmundsson  |