50. fundur framkvæmda- og veitustjórnar
50. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn miðvikudaginn 13. febrúar 2013 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.
Mættir: Gunnar Egilsson, formaður, D-lista, Ingvi Rafn Sigurðsson, nefndarmaður, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, nefndarmaður, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, nefndarmaður, S-lista, Andrés Rúnar Ingason, nefndarmaður, V-lista, Jón Tryggvi Guðmundsson, veitustjóri.
Dagskrá:
Almenn afgreiðslumál |
||
1. |
1008004 - Vatnsöflun úr Árbæjarlandi |
|
Sigurður Sigurjónsson, bæjarlögmaður, og Páll Bjarnason komu inn á fundinn og ræddu stöðu mála varðandi vatnsöflun úr Árbæjarlandi. |
||
|
||
2. |
1008052 - Vatnsöflun í Ingólfsfjalli |
|
Farið var yfir möguleika á vatnsöflun úr Ingólfsfjalli. |
||
|
||
3. |
1301313 - Deiliskipulagstillaga Austurvegar milli hringtorga |
|
Tillaga að deiliskipulagi Austurvegar á milli hringtorga lögð fram til kynningar. Stjórnin óskar eftir að hönnuður kynni tillöguna á næsta fundi. |
||
|
||
4. |
1212089 - Ráðning - deildarstjóri framkvæmda og þjónustu |
|
Auður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra framkvæmda og þjónustu. Auður er boðin velkomin til starfa. |
||
|
||
5. |
1203068 - Aðgengi fatlaðra nemenda |
|
Til þess að koma til móts við þarfir fatlaðs fólks og auðvelda aðgengi samþykkir stjórnin að setja lyftur í gamla Barnaskólann á Stokkseyri og íþróttahúsið við Vallaskóla. |
||
|
||
6. |
1302072 - Starfsmannamál 2013 - Selfossveitur |
|
Starfsmannamál rædd í tengslum við verkefni ársins. Ýmis stór verkefni eru fram undan á árinu, m.a. borun í Ósabotnum, virkjun á ÞK-17, lagning hitaveitu í dreifbýli, endurnýjun stofnlagnar í Austurvegi, kaldavatnsöflun, umsjón með mælaskiptum o.fl. Rætt um þörf á ráðningu verkefnastjóra til að halda utan um fyrirliggjandi verkefni. |
||
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl. 10:34
Gunnar Egilsson |
|
Ingvi Rafn Sigurðsson |
Tómas Ellert Tómasson |
|
Eggert Valur Guðmundsson |
Andrés Rúnar Ingason |
|
Jón Tryggvi Guðmundsson |