Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


16.8.2007

56. fundur bæjarráðs

 

56. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn fimmtudaginn 16. ágúst 2007 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10

 

Mætt:
Margrét Katrín Erlingsdóttir, formaður, B-lista
Jón Hjartarson, bæjarfulltrúi, V-lista
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi, D-lista
Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari

 

Formaður leitaði afbrigða til að taka á dagskrá skólareglur Árborgar. Var það samþykkt samhljóða.

 

Dagskrá:

 

Fundargerðir til staðfestingar:

 

1. 0703038 - Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar
frá 31.07.07


-liður 2, Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi D-lista, lagði til að aldursgreindar upplýsingar um íbúafjölda yrðu lagðar fram í bæjarráði, mánaðarlega. Var það samþykkt samhljóða.


2. 0701068 - Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 09.08.07

Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi D-lista, óskaði eftir að bókað yrði: Mikilvægt er að fundargerðir sem liggja til samþykktar í bæjarráði séu réttar og í samræmi við það sem samþykkt er í nefndum. Í undirritaðri fundargerð eru 17 liðir og er hún dagsett 9.8. 2007 en útsend fundargerð er í 21 lið, en efst í fundargerðinni er sérstaklega getið um tillögu sem tekin er fyrir sem 22. mál en málið vantar í útsendri fundargerð. Þar sem bæjarráð er framkvæmdastjórn sveitarfélagsins er brýnt að réttar fundargerðir séu lagðar fyrir til samþykktar, ekki síst þar sem að dæmi eru um að bæjarráð hefur snúið ákvörðunum fagnefnda.
Formaður bæjarráðs lagði fram tillögu um að fyrir bæjarráð komi framvegis undirritaðar fundargerðir nefnda í stað endurrita. Var það samþykkt samhljóða.
-liður 11, í undirritaðri fundargerð (liður 16 í endurriti) 0705094, bæjarráð samþykkir deiliskipulagstillögu vegna tjaldsvæðis á Stokkseyri.
-liður 16, í undirritaðri fundargerð (liður 21 í endurriti) 0706090, bæjarráð samþykkir samruna Votmúla 1 og lands með landnúmerið 166215 ásamt skiptingu Votmúla 1.
-liður 17, 0708037, í undirritaðri fundargerð (liður 22 í endurrit), bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar um uppsetningu umferðarborða og umferðarviku í tengslum við skólagöngu barna. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra framkvæmda- og veitusviðs að láta setja upp umferðarborða og verkefnisstjóra fræðslumála  að vinna að umferðarviku í samráði við lögreglu.


Fundargerðir til kynningar:

 

3. 0702070 - Fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs frá 27.06.07

Bæjarráð lýsir ánægju með ákvörðun aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands með að kaupa hlut í kjötmjölsverksmiðjunni Förgun ehf og staðfestir samþykktina fyrir sína hönd.

 

Almenn erindi

 

4. 0707160 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um leyfi til reksturs gististaðar vegna Kvöldstjörnunnar, Stjörnusteinum 7, Stokkseyri

Afgreiðslu erindisins er frestað þar til þeim skilyrðum sem skipulags- og byggingarnefnd hefur sett hefur verið fullnægt.


5. 0703158 - Svar Sjávarútvegsráðuneytisins við fyrirspurn um afgreiðslu umsóknar um byggðakvóta fyrir Stokkseyri

Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi D-lista, lagði til að samþykkt yrði að bæjarráð óski eftir fundi með sjávarútvegsráðherra til að ræða málið. Bæjarritari verði einnig á fundinum.
Samþykkt samhljóða.


6. 0708056 - Reglur Sveitarfélagsins Árborgar um skólamáltíðir.

Bæjarráð samþykkir reglur um skólamáltíðir.


7. 0706035 - Fundir bæjarstjórnar sumarið 2007

Bæjarráð samþykkir að fresta bæjarstjórnarfundi sem ákveðið hafði verið að halda 22. ágúst n.k. til 29. ágúst n.k. kl. 17.


Erindi til kynningar

 

8. 0708023 - Evrópsk samgönguvika 2007

Lagt fram.


Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi D-lista, þakkaði Margréti K. Erlingsdóttur fyrir samstarfið í bæjarráði, en þetta er síðasti bæjarráðsfundur hennar.

 

Jón Hjartarson, bæjarfulltrúi V-lista, tók undir þakkirnar.

 

Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:20.

 

Margrét Katrín Erlingsdóttir                 
Jón Hjartarson
Eyþór Arnalds                        
Ásta Stefánsdóttir



 

 

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica