8.8.2018
3. fundur framkvæmda- og veitustjórnar
3. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn 19. júlí 2018 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 17:00.
Mætt:
Tómas Ellert Tómasson, formaður, M-lista
Álfheiður Eymarsdóttir, nefndarmaður, Á-lista
Viktor Pálsson, nefndarmaður, S-lista
Sveinn Ægir Birgisson, nefndarmaður, D-lista
Ragnheiður Guðmundsdóttir, nefndarmaður, D-lista
Jón Tryggvi Guðmundsson, framkvæmda- og veitustjóri
Í upphafi fundar var samþykkt að taka inn á dagskrá kostnaðaráætlun viðhalds fasteigna í eigu Svf. Árborgar.
Dagskrá:
Almenn afgreiðslumál |
1. |
1807099 - Kostnaðaráætlun viðhalds fasteigna í eigu Svf. Árborgar |
|
Formaður stjórnar fór yfir kostnaðaráætlun viðhalds fasteigna í eigu Svf. Árborgar.
SAMANDREGNAR NIÐURSTÖÐUR
Gerð var kostnaðaráætlun viðhalds og endurbóta fyrir tímabilið 2010 til 2030 fyrir nær allar fasteignir sem eru með skráð brunabótamat og eru í eigu Svf. Árborgar og skýrsluhöfundur hafði upplýsingar um.
Markmiðið með skýrslunni var í fyrsta lagi að finna núvirt endurstofnverð fasteigna í eigu Svf. Árborgar, í öðru lagi að áætla viðhalds- og endurbótakostnað á tímabilinu 2010-2030 fyrir fasteignir skv. aðferðum sem lýst er í Brunabótamatsskýrslu 2016.
Samanlagt núvirt endurstofnverð fasteigna í eigu Sv.f. Árborgar sem eru með skráð brunabótamat er áætlað 18.3 milljarðar.
Samanlagður viðhalds- og endurbótakostnaður fyrir árin 2010-2030 skv. aðferðum sem lýst er í skýrslu er áætlaður 5.1 milljarður.
Viðhalds- og endurbótakostnaður er áætlaður 275 m.kr. að meðaltali á ári á tímabilinu 2018-2030 fyrir þær fasteignir sem nú þegar eru í notkun. |
|
|
|
2. |
1807090 - Eignavefur/hugbúnaður fyrir umsýslu á fasteignum í eigu Svf. Árborgar |
|
Formaður kynnti fyrir stjórn hugbúnað sem Reykjavíkurborg notar fyrir eignaumsjón. Með því að nota slíkan eignaumsjónarhugbúnað eða sambærilegan getur dregið úr rekstrarkostnaði fasteigna. Þá næst einnig fram aukin skilvirkni í verkferlum og starfsvenjum.
Framkvæmdastjóra falið að afla frekari gagna, upplýsinga um kostnað og fá kynningu á hugbúnaði sem er í boði. |
|
|
|
3. |
1807092 - Hugbúnaður vegna verkefnisstjórnunar á framkvæmda- og veitusviði |
|
Formaður kynnti fyrir stjórn hugbúnað (PIAB) sem Reykjavíkurborg notar til aðstoðar við stýringu verkefna. Sveitarfélaginu býðst að fá kynningu á hugbúnaðinum frá þeim aðila sem er að innleiða slíkt kerfi fyrir Reykjavíkurborg. Kerfið getur nýst öllum sviðum og deildum sveitarfélagsins. Stefnt er að því að kynning fari fram í haust. |
|
|
|
4. |
1807089 - Samningur við Rarik um lagningu þriggja fasa rafmagns í Svf. Árborg |
|
Álfheiður Eymarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Formanni og framkvæmdastjóra falið að ræða við Rarik um efni samningsins. Afgreiðslu frestað til næsta fundar. |
|
|
|
5. |
1612166 - Samningur um jarðhitaréttindi Oddgeirshólum |
|
Stjórnin samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög á milli Selfossveitna bs. og Hitaveitufélags Hraungerðishrepps um vatnsöflun og jarðhitaréttindi í landi jarðarinnar Oddgeirshóla.
Framkvæmdastjóra falið að ganga frá samningi. |
|
|
|
6. |
1807093 - Staða framkvæmda á framkvæmda- og veitusviði 2018 |
|
Framkvæmdastjóri lagði fram lista yfir verklegar framkvæmdir í Sveitarfélaginu Árborg. |
|
|
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 19:00
Tómas Ellert Tómasson |
|
Álfheiður Eymarsdóttir |
Viktor Pálsson |
|
Sveinn Ægir Birgisson |
Ragnheiður Guðmundsdóttir |
|
Jón Tryggvi Guðmundsson |