Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


8.8.2018

2. fundur skipulags- og byggingarnefndar

2. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn fimmtudaginn 26. júlí 2018 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.  Mætt: Sigurjón Vídalín Guðmundsson, formaður, Á-lista Guðrún Jóhannsdóttir, nefndarmaður, M-lista Sigurður Þorvarðarson, nefndarmaður, S-lista Ari B. Thorarensen, nefndarmaður, D-lista Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Ástgeir Rúnar Sigmarsson, aðstoðarbyggingarfulltrúi  Sigurjón Vídalín Guðmundsson var í sambandi með fjarfundabúnaði. Ástgeir Rúnar Sigmarsson ritaði fundargerð. Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1.   1807103 - Umsókn um lóðina Ólafsvellir 26. Umsækjandi: Gísli ehf.
  Samþykkt að úthluta lóðinni til umsækjanda.
     
2.   1807076 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnuskúr að Hraunhellu 8. Umsækjandi: Contrade ehf.
  Samþykkt að veita stöðuleyfi á meðan á verktíma stendur, þó ekki lengur en til eins árs.
     
3.   1807056 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir hús í byggingu að Gagnheiði 47. Umsækjandi: Vörðufell ehf.
  Samþykkt að veita stöðuleyfi til loka maí.
     
4.   1807025 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir sumarhús til geymslu að Gagnheiði 27: Umsækjandi: Ferðafélag Íslands
  Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs, staðsetning verður í samráði við byggingarfulltrúa.
     
5.   1807104 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir fimm kennslustofur að Háheiði 3. Umsækjandi: Eðalbyggingar ehf.
  Samþykkt að veita stöðuleyfið til fimm mánaða.
     
6.   18051364 - Fyrirspurn um byggingarleyfi fyrir bílskúr að Túngötu 6, erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa, dags. 29.05.2018. Fyrirspyrjandi: Sverrir Ingimundarson
  Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við fyrirspyrjanda.
     
7.   18051741 - Fyrirspurn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Gauksrima 8, erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa, dags. 29.05.2018. Fyrirspyrjandi: Anne Bruun Hansen
  Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir Lóurima 7 og Gauksrima 10-22
     
8.   1804280 - Erindi frá Bent Larsen um breytingar á deiliskipulagi Álalækjar 1-11. Erindi hefur verið grenndarkynnt og athugasemdir borist.
  Lagt er til við bæjarstjórn að hafna erindi Bent Larsen um breytingar á deiliskipulagi fyrir Álalæk 1-11.
     
9.   1703301 - Aðalskipulagsbreyting að Lambatanga
  Breyting á aðalskipulagi Árborgar 2010-2030 vegna Kotleysutanga L165554 (Lambatanga). Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Árborgar þar sem breytt er landnýtingu á spildu í norðausturjaðri Stokkseyrar, Kotleysa-Tangi L165554, sem mun fá nafnið Lambatangi. Nýtingunni verður breytt úr svæði fyrir frístundabyggð í íbúðarsvæði á u.þ.b. 11.400 m2 svæði. Tillagan felur ekki í sér breytingu á meginstefnu aðalskipulags enda er spildan staðsett í mikilli nálægð við þéttbýli á Stokkseyri. Með tillögunni er lagt til að landnotkun verði breytt til samræmis við það hvernig spildan er nýtt í dag en á henni stendur eitt íbúðarhús. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á umfangi landnýtingar. Á spildunni eru ekki náttúru- eða menningarminjar. Tillagan að breyttri nýtingu spildunnar sem um ræðir felur ekki í sér breytingar á því hvernig spildan er nýtt í dag svo áhrif breytingar á nærliggjandi svæði eru nær engin.
     
10.   1804321 - Aðalskipulagsbreyting að Þóristúni 1
  Breyting á aðalskipulagi Árborgar 2010-2030 vegna Þóristúns 1. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Árborgar þar sem breytt er landnýtingu á lóðinni við Þóristún 1 á Selfossi en lóðin er skráð 863 m2. Nýtingu lóðarinnar verður breytt úr íbúðarsvæði í miðsvæði. Tillagan felur ekki í sér breytingu á meginstefnu aðalskipulags enda er lóðin staðsett á mörkum íbúðarsvæðis, miðsvæðis og svæðis fyrir stofnanir. Með tillögunni er lagt til að landnotkun verði breytt til samræmis við það hvernig lóðin hefur verið nýtt en á lóðinni hefur verið starfrækt gistiheimili um árabil en breytingar eru ekki á umfangi landnýtingar. Á lóðinni eru ekki náttúru- eða menningarminjar. Áhrif breytingarinnar á nærliggjandi umhverfi eru hverfandi enda er verið að breyta landnotkun í samræmi við það hvernig lóðin er og hefur verið nýtt. Líklegt er að verðmæti lóðarinnar aukist með auknum heimildum til nýtingar en áhrifin á verðmæti aðliggjandi lóða/fasteigna eru talin hverfandi.
     
11.   1709001 - Tillaga að breyttu deiliskipulagi að Votmúla II. Tillagan hefur verið auglýst og athugasemd borist.
  Skipulags- og byggingarfulltrúa ásamt bæjarlögmanni falið að leggja fram tillögu að svari við framkominni athugasemd.
     
12.   1804013 - Tillaga að breyttu deiliskipulagi að Austurvegi 67. Tillagan hefur verið auglýst og engar athugasemdir borist.
  Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.
     
13.   1609215 - Tillaga að deiliskipulagi í Björkurstykki. Tillagan hefur verið auglýst og engar athugasemdir hafa borist.
  Frestað og óskað eftir kynningu frá skipulagshöfundi.
     
  Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:15  
Sigurjón Vídalín Guðmundsson   Guðrún Jóhannsdóttir
Sigurður Þorvarðarson   Ari B. Thorarensen
Magnús Gíslason   Bárður Guðmundsson
Ástgeir Rúnar Sigmarsson    

Þetta vefsvæði byggir á Eplica