23.8.2018
3. fundur skipulags- og byggingarnefndar
3. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn miðvikudaginn 22. ágúst 2018 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 13:00.
Mætt:
Sigurður Þorvarðarson, nefndarmaður, S-lista
Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista
Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá:
Almenn afgreiðslumál |
1. |
1603203 - Breyting á aðalskipulagi fyrir miðbæ Selfoss. |
|
Tillaga að breytingu aðalskipulags miðbæjar Selfoss við hringtorg var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða þannig:
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að staðfest verði breyting á aðalskipulagi fyrir miðbæ Selfoss sem samþykkt var í íbúakosningu þann 18. ágúst sl. |
|
|
|
2. |
1507134 - Breyting á deiliskipulagi fyrir miðbæ Selfoss. |
|
Tillaga að breytingu deiliskipulags miðbæjar Selfoss var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða þannig:
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að staðfest verði breyting á deiliskipulagi fyrir miðbæ Selfoss sem samþykkt var í íbúakosningu þann 18. ágúst sl. |
|
|
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 13:30
Sigurður Þorvarðarson |
|
Magnús Gíslason |
Álfheiður Eymarsdóttir |
|
Ari Már Ólafsson |
Helga Þórey Rúnarsdóttir |
|
Ástgeir Rúnar Sigmarsson |