Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


2.11.2018

7. fundur skipulags- og byggingarnefndar

7. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn miðvikudaginn 17. október 2018 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10. Mætt: Sigurjón Vídalín Guðmundsson, formaður, Á-lista Guðrún Jóhannsdóttir, nefndarmaður, M-lista Sigurður Þorvarðarson, nefndarmaður, S-lista Ari B. Thorarensen, nefndarmaður, D-lista Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Guðmundur Ármann Pétursson mætti á fundinn og kynnti áform 1765 ehf um sjóbaðsaðstöðu á Eyrarbakka. Leitað var afbrigða að taka málið fyrir á fundi og var það samþykkt. Dagskrá: Almenn afgreiðslumál 1. 1810104 - Fyrirspurn til byggingarnefndar vegna nýrrar starfsstöðvar Eðalbyggingar að Háheiði 3, Selfossi. Fyrirspyrjandi: Eðalbyggingar ehf. Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir lóðarhöfum að Háheiði1, 5 og 7 og Gagnheiði 55 og 57. 2. 1810101 - Fyrirspurn til byggingarnefndar vegna sólskála að Sigtúni 2, Selfossi. Fyrirspyrjandi: Guðjón Þ. Sigfússon fyrir hönd lóðarhafa Óskað er eftir fullunnum teikningum til grenndarkynningar. 3. 1810116 - Fyrirspurn um nýtingu og skiptingu lóðarinnar að Miðtúni 15, Selfossi. Fyrirspyrjandi: Sæmundur Gíslason Óskað er eftir umsögn framkvæmda- og veitusviðs. Afgreiðslu frestað að öðru leyti. 4. 1810052 - Fyrirspurn til byggingarnefndar um atvinnulóð á Selfossi. Fyrirspyrjandi: Steinn Ólason Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við fyrirspyrjanda. 5. 1810053 - Umsókn um lóðina að Ólafsvöllum 22 Stokkseyri. Umsækjandi: Dariusz Wludarski Hafnað þar sem búið er að úthluta lóðinni. 6. 1809251 - Umsókn um lóðina að Urriðalæk 21, Selfossi. Umsækjandi: Eðalbyggingar ehf. Samþykkt að úthluta lóðinni. 7. 1809247 - Umsókn um lóðina að Sílalæk 18, Selfossi. Umsækjandi: Sigfinnur Þ. Lúðvíksson Samþykkt að úthluta lóðinni. 8. 1809272 - Umsókn um lóðina að Víkurheiði 3, Selfossi. Umsækjandi: Flekar byggingafélag Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjanda. 9. 1810046 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir gámi að Suðurbraut 23, Tjarnarbyggð. Umsækjandi: Andri Karl Tómasson Samþykkt að veita leyfið til 6 mánaða. 10. 1810083 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Lambhaga 30, Selfossi. Umsækjendur: Valdimar Hjaltason og Hrefna M. Hagbarðsdóttir Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir lóðarhöfum að Lambhaga 20, 22, 28, 32 og 34. 11. 1810111 - Ósk um jöfnun á byggingarreit að Sílalæk 1-3, Selfossi. Umsækjandi: Birkir Bragason Samþykkt. 12. 1803028 - Deiliskipulagsbreyting fyrir Nýjabæ, Sandvíkurhreppi. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að kynna skipulagið fyrir íbúum Nýjabæjarhverfis. 13. 1704004 - Deiliskipulagstillaga fyrir Grænuvelli og nágrenni, Selfossi Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst. 14. 1810115 - Tillaga um endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030 Skipulags- og byggingarnefnd Árborgar leggur til við bæjarstjórn að hafist verði handa við endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030. 15. 1810003F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa 15.1 - Ósk um umsögn um staðsetningu ökutækjaleigu að Eyravegi 15b, Selfossi. Umsagnaraðili: Samgöngustofa. Niðurstaða afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa Frestað. 15.2 - Ósk um umsögn um rekstrarleyfi til sölu gistingar í flokki II að Túngötu 9, Eyrarbakka. Umsagnaraðili: Sýslumaðurinn á Suðurlandi. Niðurstaða afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa Frestað. 15.3 - Umsókn um byggingarleyfi að Stjörnusteinum 7, Stokkseyri. Umsækjendur: Jóhanna Ingadóttir og Stefán Erlendsson. Niðurstaða afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum. 15.4 - Umsókn um byggingarleyfi að Lambhaga 30. Umsækjendur: Valdimar Hjaltason og Hrefna M. Hagbarðsdóttir Niðurstaða afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa Vísað til skipulags- og byggingarnefndar. 15.5 - Umsókn um byggingarleyfi að Víkurheiði 11. Umsækjandi: Byggingarfélagið Hamar ehf. Niðurstaða afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum. 15.6 - Umsókn um byggingarleyfi að Álalæk 9-11. Umsækjandi: Stórefli ehf. Niðurstaða afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum. 15.7 - Fyrirspurn vegna viðbyggingar að Víðivöllum 15 Selfossi. Fyrirspyrjandi: Hákon Þór Svavarsson Niðurstaða afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa Óskað eftir fullgildum aðaluppdráttum. 16. 1712164 - Beiðni um vilyrði - uppbygging ofan við fjöruna á Eyrarbakka Lagt er til við bæjarráð að stofnuð verði 3ja hektara lóð samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti og henni úthlutað til 1765 ehf. Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:00 Sigurjón Vídalín Guðmundsson Guðrún Jóhannsdóttir Sigurður Þorvarðarson Ari B. Thorarensen Magnús Gíslason Bárður Guðmundsson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica