Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


21.9.2018

8.  fundur framkvæmda- og veitustjórnar

8.  fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn 13. September 2018 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 18:00.  Mætt: Tómas Ellert Tómasson, formaður, M-lista Álfheiður Eymarsdóttir, nefndarmaður, Á-lista Viktor Pálsson, nefndarmaður, S-lista Sveinn Ægir Birgisson, nefndarmaður, D-lista Ragnheiður Guðmundsdóttir, nefndarmaður, D-lista Jón Tryggvi Guðmundsson, framkvæmda- og veitustjóri Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1.   1711264 - Viðbygging við Leikskólann Álfheima
    Yfirfarin tilboð voru lögð fram til kynningar. Tilboðin voru opnuð 5. sept. sl. Heildartilboðsfjárhæðir voru eins og hér segir: Smíðandi 514.163.850 kr.- m.vsk. Vörðufell 511.762.848 kr.- m.vsk. Kostnaðaráætlun 375.066.460 kr.- m.vsk. Lægsta tilboð eftir yfirferð er frá Vörðufelli og er um 36,4% yfir kostnaðaráætlun. Bjóðandi er bundinn af tilboði sínu í 4 vikur frá því að tilboð voru opnuð. Ákvörðun um afgreiðslu málsins verður tekin innan gildistíma tilboða.
     
2.   1809011 - Húsnæðismál grunnskóla í sveitarfélaginu
  Farið yfir húsnæðismál grunnskóla í sveitarfélaginu. Formaður kynnti hugmyndir um breytingar innanhúss í Vallaskóla vegna mötuneytisaðstöðu.
     
   Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 20:30  
Tómas Ellert Tómasson   Álfheiður Eymarsdóttir
Viktor Pálsson   Sveinn Ægir Birgisson
Ragnheiður Guðmundsdóttir   Jón Tryggvi Guðmundsson
   

Þetta vefsvæði byggir á Eplica