Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


29.9.2016

84. fundur bæjarráðs

84. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn fimmtudaginn 29. september 2016 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10.  Mætt: Gunnar Egilsson, formaður, D-lista, Ari B. Thorarensen, bæjarfulltrúi, D-lista, Eyrún Björg Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi, Æ-lista, Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista, Eggert Valur Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi, S-lista, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð. Dagskrá:
Fundargerðir til staðfestingar
1. 1601004 - Fundargerðir félagsmálanefndar
23. fundur haldinn 14. júlí 24. fundur haldinn 20. september
Fundargerðirnar staðfestar.
2. 1601008 - Fundargerð íþrótta- og menningarnefndar
22. fundur haldinn 7. september
Fundargerðin staðfest.
3. 1601003 - Fundargerð fræðslunefndar
24. fundur haldinn 8. september
Fundargerðin staðfest.
4. 1601007 - Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar
31. fundur haldinn 21. september
Fundargerðin staðfest.
Fundargerðir til kynningar
5. 1603305 - Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu 5-1603305-8-fundur 5-1603305-9-fundur
8. fundur haldinn 7. september 9. fundur haldinn 20. september
Fundargerðirnar lagðar fram.
6. 1603057 - Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 6-1603057
842. fundur haldinn 2. september
Fundargerðin lögð fram.
7. 1602003 - Fundargerð stjórnar SASS 7-1602003
511. fundur haldinn 2. september
Fundargerðin lögð fram.
8. 1601362 - Fundargerð stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
247. fundur haldinn 6. september 8-1601362
Fundargerðin lögð fram.
9. 1601449 - Fundargerð fagráðs Tónlistarskóla Árnesinga
177. fundur haldinn 21. september 9-1601449
Fundargerðin lögð fram.
Almenn afgreiðslumál
10. 1609171 - Beiðni Jóns Ingvars Bragasonar, framkvæmdastjóra 15th World Scout Moot, dags. 21. september 2016, um aðstöðu fyrir allt að 800 þátttakendur á 15. heimsskátamóti sumarið 2017 til að reisa tjaldbúðir o.fl. 10-1609171
Bæjarráð samþykkir erindið og felur menningar- og frístundafulltrúa að ganga frá samningi um verkefnið.
11. 1609077 - Erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dags. 6. september 2016, varðandi byggðakvóti fiskveiðiársins 2016-2017 11-1609077
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra sveitarfélagsins að sækja um byggðakvóta.
12. 1410065 - Beiðni frá Vegagerðinni, dags. 22. september 2016, um staðfestingu á þátttöku Sveitarfélagsins Árborgar í kostnaði við sjóvarnaverkefni við Baugsstaðarjómabúið og á Eyrarbakka 12-1410065
Bæjarráð staðfestir þátttöku sína í framkvæmdum við sjóvarnir við Baugsstaðarjómabú og við Eyrargötu 49, Eyrarbakka.
13. 1501110 - Beiðni formanns og framkvæmdastjóra UMFS, dags. 31. ágúst 2016, um samstarf við gerð skýrslu um þarfir og kostnað vegna uppbyggingar íþróttamiðstöðvar á Selfossi 13-1501110
Bæjarráð samþykkir að skipa vinnuhóp til að vinna að þarfagreiningu og framtíðarsýn vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja. Bæjarráð óskar eftir tilnefningum vegna tveggja fulltrúa frá UMFS í starfshópinn fyrir 15. október nk. Fulltrúar annarra íþróttafélaga verða kallaðir til samráðs við hópinn.
14. 1609158 - Erindi frá Samúel Smára Hreggviðssyni, dags. 19. september 2016, um atbeina sveitarfélagsins við að fá lagðan ljósleiðara í Sandvíkurhverfi 14-1609158
Bæjarráð óskar eftir fundi með Mílu vegna verkefnisins.
15. 1609088 - Ljósleiðaravæðing sveitarfélaga, erindi frá Mílu, dags. 10. september 2016, upplýsingar vegna ljósleiðaravæðingar 15-1609088
Bæjarráð óskar eftir fundi með Mílu vegna lagningar ljósleiðara í dreifbýli í Árborg.
16. 1603176 - Rekstraryfirlit sveitarfélagsins fyrir janúar til júlí og yfirlit yfir útsvarstekjur og greiðslur frá Jöfnunarsjóði
Lagt fram til kynningar.
17. 1607035 - Beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 8. júlí 2016, um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi - gististaður í flokki I, heimagisting, á Kirkjuvegi 21, Selfossi 17-1607035
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um erindið.
18. 1609085 - Styrkbeiðni Héraðsskjalasafns Árnesinga, dags. 9. september 2016, vegna ljósmyndaverkefnis á Héraðsskjalasafni 18-1609085
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.
19. 1609112 - Fyrirspurn UNGSÁ (Ungmennaráðs Sveitarfélagsins Árborgar) um menningarsalinn 19-1609112
Vísað til bæjarráðs frá bæjarstjórn
Bæjarráð vísar erindinu til íþrótta- og menningarnefndar.
20. 1609113 - Tillaga UNGSÁ um bíllausa viku 20-1609113
Visað til bæjarráðs frá bæjarstjórn
Bæjarráð vísar erindinu til framkvæmda- og veitustjórnar.
21. 1609114 - Tillaga UNGSÁ um plastpokalausa Árborg 21-1609114
Visað til bæjarráðs frá bæjarstjórn
Bæjarráð vísar erindinu til framkvæmda- og veitustjórnar.
22. 1609115 - Tillaga UNGSÁ um lífsleiknistíma í grunnskólum 22-1609115
Vísað til bæjarráðs frá bæjarstjórn
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslunefndar.
23. 1609116 - Tillaga UNGSÁ um fræðslu um geðheilbrigðismál í grunnskólum Árborgar
Vísað til bæjarráðs frá bæjarstjórn
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmála- og fræðslunefndar.
24. 1609117 - Tillaga UNGSÁ um fræðsluefni um stéttarfélög fyrir ungmenni 24-1609117
Vísað til bæjarráðs frá bæjarstjórn
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslunefndar.
25. 1609118 - Tillaga UNGSÁ um æfingasvæði fyrir akstur og akstursíþróttir 25-1609118
Vísað til bæjarráðs frá bæjarstjórn
Bæjarráð vísar erindinu til íþrótta- og menningarnefndar.
26. 1609176 - Ályktun Félags atvinnurekenda, dags. 22. september 2016, um þróun fasteignamats atvinnuhúsnæðis og álagningu fasteignaskatta 26-1609176
Lagt fram.
27. 1608166 - Tillaga um að óskað verði eftir viðræðum við ASÍ um uppbyggingu íbúða í Sveitarfélaginu Árborg 27-1608166
Bæjarráð Árborgar felur framkvæmdastjóra sveitarfélagsins að óska eftir viðræðum við ASÍ eða stéttarfélög innan ASÍ um mögulega uppbyggingu íbúða í sveitarfélaginu í samræmi við áherslur Almenna íbúðafélagsins, húsnæðissjálfseignarstofnunar, sem stofnað var á grundvelli laga nr. 52/2016 um almennar íbúðir.
28. 1402260 - Umboð vegna kaupa Sveitarfélagsins Árborgar á hlut Héraðsnefndar Árnesinga í Hrísholti 8, Selfossi 28-1402260
Bæjarráð veitir Ástu Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra sveitarfélagsins, fullt og ótakmarkað umboð til þess að ganga frá samningi við Héraðsnefnd Árnesinga um kaup Sveitarfélagsins Árborgar á 60% hlut Héraðsnefndar í Hrísholti 8, Selfossi.
Erindi til kynningar
29. 1609150 - Boð á 30 ára afmælishátíð íþróttafélagsins Suðra hinn 2. október nk. 29-1609150
Lagt fram til kynningar.
30.   1606170 - Tilkynning Minjastofnunar, dags. 14. september 2016, um úthlutun styrks til að undirbúa tillögur að verndarsvæði í byggð á Eyrarbakka frá Einarshafnarhverfi að Háeyrarvöllum 12 30-1606170
Bæjarráð þakkar fyrir styrkveitinguna og felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu.
31. 1509252 - Tilkynning Minjastofnunar, dags. 15. september 2016, um friðlýsingu Ísólfsskála á Stokkseyri 31-1509252
Lagt fram til kynningar.
          Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:30.
Gunnar Egilsson Ari B. Thorarensen
Eyrún Björg Magnúsdóttir Helgi Sigurður Haraldsson
Eggert Valur Guðmundsson Ásta Stefánsdóttir
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica