Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


6.10.2016

85. fundur bæjarráðs

85. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn fimmtudaginn 6. október 2016 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10.  Mætt: Gunnar Egilsson, formaður, D-lista, Ari B. Thorarensen, bæjarfulltrúi, D-lista, Eyrún Björg Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi, Æ-lista, Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista, Eggert Valur Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi, S-lista, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð. Dagskrá: 

Fundargerðir til staðfestingar
1. 1601007 - Fundargerðir framkvæmda- og veitustjórnar
  32. fundur haldinn 28. september 33. fundur haldinn 29. september
  Fundargerðin staðfest.
     
Fundargerðir til kynningar
2. 1603305 - Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu
  10. fundur haldinn 28. september 2016
  Lagt fram.
     
3. 1601362 - Fundargerð stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands 2016
  248. fundur haldinn 28. september
  Lagt fram.
     
Almenn afgreiðslumál
4. 1609199 - Erindi frá Gallup, dags. 27. september 2016, varðandi árlega könnun Gallup á þjónustu sveitarfélaga og beiðni um þátttöku Sveitarfélagsins Árborgar 4-1609199
  Bæjarráð samþykkir að taka þátt í þjónustukönnuninni.
     
5. 1608083 - Erindi frá Þjóðská Íslands, dags. 27. september 2016, umsókn um að verða tekinn á kjörskrá
  Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að færa inn breytingu á kjörskrá.
     
6. 1608083 - Staðfesting á kjörskrá vegna alþingiskosninga 2016
  Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að staðfesta kjörskrá.
     
7. 1506088 - Undirskriftalisti íbúa við Votmúlaveg, beiðni um atbeina sveitarfélagsins við að þrýsta á Vegagerðina um vegabætur við Votmúla 7-1506088
  Á fundi bæjarráðs Árborgar hinn 18. ágúst sl. var samþykkt ályktun til Vegagerðarinnar um að þegar í stað verði hafist handa við færslu Votmúlavegar norður fyrir bæina Austurkot og Votmúla. Bæjarráð ítrekar að ráðist verði í þessa framkvæmd og fer fram á að við gerð fjárlagatillagna Vegagerðarinnar fyrir næsta ár verði gert ráð fyrir fjármagni til verkefnisins. Bæjarráð mun óska eftir fundi með Vegagerðinni á næstunni til að ræða málefni Votmúlavegar og önnur samgöngumál í sveitarfélaginu.
     
Erindi til kynningar
8. 1609211 - Tilkynning, dags. 27. september 2016, um ágóðahlutagreiðslu Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands til Sveitarfélagsins Árborgar 8-1609211
  Lagt fram til kynningar.
     

Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 08:45.

Gunnar Egilsson   Ari B. Thorarensen
Eyrún Björg Magnúsdóttir   Helgi Sigurður Haraldsson
Eggert Valur Guðmundsson   Ásta Stefánsdóttir

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica