95. fundur bæjarráðs
95. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn fimmtudaginn 5. júní 2008 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10
Mætt:
Margrét Katrín Erlingsdóttir, formaður, B-lista
Jón Hjartarson, bæjarfulltrúi, V-lista
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi, D-lista
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri
Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari
Dagskrá:
Fundargerðir til staðfestingar:
1. 0801047 - Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar
148.fundur haldinn 23.maí 2008
Fundargerðin staðfest.
2. 0801040 - Fundargerð landbúnaðarnefndar
11.fundur haldinn 26.maí 2008
Fundargerðin staðfest.
3. 0801034 - Fundargerð félagsmálanefndar
27.fundur haldinn 26.maí 2008
Fundargerðin staðfest.
Almenn erindi
4. 0805137 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi - Rauða húsið
Afgreiðslu erindisins er frestað þar til umsögn skipulags- og byggingarnefndar liggur fyrir.
5. 0805150 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi - Veiðisafnið
Afgreiðslu erindisins er frestað þar til umsögn skipulags- og byggingarnefndar liggur fyrir.
6. 0804046 - Greinagerð fjölskyldumiðstöðvar um akstur í tengslum við íþróttaæfingar
Bæjarráð samþykkir tillögu í a-lið greinargerðarinnar um samfelldan skóladag barna í 1. til 4. bekk, og felur fjölskyldumiðstöð að vinna að undirbúningi samfellds skóladags 1. til 4. bekkjar fyrir skólaárið 2009-2010. Jafnframt felur bæjarráð fjölskyldumiðstöð að gera tillögu að lausnum vegna ferða barna í íþrótta- og tómstundastarf innan sveitarfélagsins og leggja fyrir bæjarráð.
Erindi til kynningar
7. 0805032 - Dagur barnsins 25. maí 2008
Lagt fram.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 8:30
Margrét Katrín Erlingsdóttir
Jón Hjartarson
Eyþór Arnalds
Ragnheiður Hergeirsdóttir
Ásta Stefánsdóttir