Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


27.3.2014

176. fundur bæjarráðs

176. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn fimmtudaginn 27. mars 2014  í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10. 

Mætt: Sandra Dís Hafþórsdóttir, varaformaður, Ari B. Thorarensen, bæjarfulltrúi, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, S-lista, Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri.  

Formaður leitaði afbrigða að taka á dagskrá beiðni um viðbótarfjárveitingu vegna fjárfestingaráætlunar. Var það borið undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 

Dagskrá: 

Fundargerðir til staðfestingar

1.

1401095 - Fundargerð íþrótta- og menningarnefndar

 

16. fundur haldinn 12. mars

 

Fundargerðin staðfest.

 

   

2.

1401093 - Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar

 

73. fundur haldinn 19. mars

 

Fundargerðin staðfest.

 

   

Fundargerðir til kynningar

3.

1402107 - Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands

 

155. fundur 14. mars 2014

 

Fundargerðin lögð fram.

 

   

Almenn afgreiðslumál

4.

1403258 - Erindi frá starfshópi á vegum Ungmennafélags Stokkseyrar, upplýsinga- og söguskilti, göngustígar o.fl.

 

Bæjarráð þakkar hugmyndirnar, sótt hefur verið um styrk í framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna gerðar upplýsingaskilta. Unnið er að gerð söguskilta sem sett verða upp í sumar. Í fjárhagsáætlun þessa árs er gert ráð fyrir framkvæmdum við lóð skólans á Stokkseyri og felur bæjarráð umsjónarmanni umhverfis- og framkvæmda að vinna að undirbúningi framkvæmdanna. Hugmyndum um framkvæmdir, göngustíga og útivistarsvæði er vísað til framkvæmda- og veitustjórnar.

 

   

5.

1304084 - Rekstraryfirlit, 12 mánuðir 2013

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

6.

1403276 - Rekstraryfirlit janúar 2014

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

7.

1402200 - Umsóknir um rekstur tjaldsvæðis á Stokkseyri, auglýst var í héraðsblöðum og á heimasíðu sveitarfélagsins, alls bárust átta umsóknir

 

Bæjarráð felur menningar- og frístundafulltrúa að ræða við umsækjendur.

 

   

8.

1309180 - Niðurstöður jafnlaunakönnunar

 

Í framhaldi af samþykkt um að vinna könnun á launamun kynjanna hjá sveitarfélaginu var Capacent fengið til að vinna launagreiningu fyrir sveitarfélagið. Niðurstöðurnar liggja nú fyrir. Ekki er kynbundinn munur á grunnlaunum starfsmanna hjá sveitarfélaginu, launamunur á heildarlaunum er 3 til 4% konum í óhag. Bæjarráð felur kjaranefnd að greina niðurstöður frekar.

 

   

9.

1401001 - Beiðni Þrastar Þorsteinssonar um land á leigu til ræktunar á hvönn

 

Bæjarráð samþykkir að ráðstafa 5 ha landspildu innan þess svæðis sem afmarkað er á uppdrætti með erindinu til ræktunar hvannar.

 

   

10.

1403230 - Styrkbeiðni Sundsambands Íslands, dags. 17.03.2014 - boðsundskeppni milli grunnskóla

 

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

 

   

11.

1403245 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi, dags. 18.03.2014, um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi, gististaðurinn Helgafell, Eyrarbakka

 

Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og byggingarnefndar.

 

   

12.

1403292 - Forvarnastefna Sveitarfélagsins Árborgar

 

Bæjarráð vísar forvarnastefnu til íþrótta- og menningarnefndar.

 

   

13.

1403293 - Drög að skipulagi æskulýðssjóðs Árborgar

 

Bæjarráð vísar drögum að skipulagi æskulýðssjóðs Árborgar til íþrótta- og menningarnefndar.

 

   

14.

1007011 - Húsnæðismál varðandi safn mjólkuriðnaðarins og upplýsingamiðstöð

 

Bæjarráð felur framkvæmdastjóra sveitarfélagsins og menningar- og frístundafulltrúa að vinna áfram að málinu.

 

   

15.

1401181 - Sunnulækjarskóli-milligólf í anddyri

 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna verkefnisins.

 

   

Erindi til kynningar

16.

1401023 - Hlutverk og skilgreining Selfossflugvallar til framtíðar, upplýsingar um áætlaðan kostnað við endurbætur flugbrauta

 

Bæjarráð samþykkir að fá fulltrúa Flugklúbbs Selfoss á næsta fund.

 

   

 

Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 9:20

 

Sandra Dís Hafþórsdóttir

 

Ari B. Thorarensen

Eggert Valur Guðmundsson

 

Helgi Sigurður Haraldsson

Þórdís Eygló Sigurðardóttir

 

Ásta Stefánsdóttir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica