Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


22.8.2014

1. fundur framkvæmda- og veitustjórnar

1. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn miðvikudaginn 16. júlí 2014  að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10. 

Mætt:
Gunnar Egilsson, formaður, D-lista,
Ragnheiður Guðmundsdóttir, nefndarmaður, D-lista,
Ingvi Rafn Sigurðsson, nefndarmaður, D-lista,
Viktor Pálsson, nefndarmaður, S-lista,
Helgi Sigurður Haraldsson, nefndarmaður, B-listi,
Jón Tryggvi Guðmundsson, framkvæmda- og veitustjóri.

Dagskrá: 

Almenn afgreiðslumál

1.

1407062 - Gámasvæði Árborgar Víkurheiði 4 - opnunartímar 2014

 

Stjórnin samþykkir að framkvæma talningu á fjölda gesta á gámasvæðið við Víkurheiði. Meirihluti stjórnar ákveður að opnunartíminn verður áfram óbreyttur, mánudaga-laugardaga 13:00-18:00. Lokað á sunnudögum. Fulltrúar B og S lista leggja til að opnunartími verði færður framar á laugardögum.

 

   

2.

1305237 - Fráveita Árborgar, skilgreining viðtaka og vöktunarplan

 

Minnisblað frá Mannvit varðandi vöktun gerlamagns og efnainnihalds fráveituvatns á Selfossi og í Ölfusá í júní 2014 lagt fram til kynningar.

 

   

3.

1311160 - Hreinsistöð fráveitu við Geitanesflúðir í Ölfusá

 

Framkvæmda- og veitustjóri upplýsti um stöðu mála. Beðið er eftir niðurstöðu úr deiliskipulagsvinnu.

 

 

 

4.

1405395 - Endurnýjun hitaveitu í Bankavegi og breytingar vegna nýrrar sundlaugar

 

Stjórnin samþykkir að fara í endurnýjun á hitaveitulögn samhliða öðrum framkvæmdum við Bankaveg. Við þessa framkvæmd verða til fleiri bílastæði við Sandvíkursetur og Sundhöll Selfoss.

 

   

5.

1407098 - Kosning varaformanns og ritara framkvæmda-og veitustjórnar 2014-2018

 

Stjórnin samþykkir að Ingvi Rafn Sigurðsson verði varaformaður stjórnarinnar og að starfsmaður framkvæmdastjóra riti fundargerð.

 

   

 

Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:50
 

Gunnar Egilsson

 

Ragnheiður Guðmundsdóttir

Ingvi Rafn Sigurðsson

 

Viktor Pálsson

Helgi Sigurður Haraldsson

 

Jón Tryggvi Guðmundsson


Þetta vefsvæði byggir á Eplica