Bæjarráð - 46 |
Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, 05.09.2019 og hófst hann kl. 17:00 |
|
Fundinn sátu: Eggert Valur Guðmundsson formaður, S-lista, Tómas Ellert Tómasson bæjarfulltrúi, M-lista, Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista, Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri |
|
Formaður leitaði afbrigða að taka á dagskrá afsöl fyrir Austurveg 55-57 og tímaplan vegna komandi fjárhagsáætlunarvinnu og samninga við Rarik ohf vegna lagningar á jarðstreng í borholu við Ingólfsfjall. Var það samþykkt samhljóða. |
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
Almenn erindi |
1. 1902273 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2019 |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
Gestir |
Ingibjörg Garðarsdóttir, fjármálastjóri - 17:00 |
|
|
2. 1908246 - Starfsmannamál - launað námsleyfi veturinn 2019-2020 |
Bæjarráð samþykkir að veita námsleyfið, enda falli ekki til kostnaður vegna afleysinga af þessum sökum. |
|
|
|
3. 1903181 - Rekstrarleyfisumsögn - River Apartments |
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. |
Umsókn um rekstarleyfi Jórutún 6.pdf |
|
|
|
4. 1908066 - Rekstrarleyfisumsögn - Bakki hostel & apartments |
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. |
Umsókn um rekstarleyfi Eyrargata 51-53.pdf |
|
|
|
5. 1908245 - Greinar um Árborg í ritinu Ísland 2020, atvinnuhættir og menning |
Bæjarráð hafnar þátttöku í verkefninu. |
|
|
|
6. 1907014 - Ímyndar- og kynningarherferð fyrir Selfoss, Stokkseyri og Eyrarbakka |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
7. 1909017 - Skýrsla Dattaca Labs |
Lagt fram til kynningar. |
Skýrsla frá Dattaca Labs.pdf |
|
|
|
8. 1908031 - Afsal af lóðunum - Austurvegur 55 og 57 |
Bæjarráð samþykkir framlögð afsöl og felur bæjarstjóra að skrifa undir. |
|
|
|
9. 1908021 - Tímaplan vegna fjárhagsáætlunarvinnu |
Fundir bæjarfulltrúa með sviðsstjórum og bæjarstjóra vegna fjárhagsáætlunar 2020 verða haldnir klukkan 15:00 mánudagana 16. og 23. september. Bæjarstjóra falið að boða til fundanna. |
|
|
|
10. 1909006 - Samningur - lagning á jarðstreng í borholu við Ingólfsfjall |
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við verkið að því gefnu að fullt samráð verði haft við hagsmunaðila. |
|
|
|
|
Fundargerðir |
11. 1908010F - Fræðslunefnd - 13 |
|
|
|
12. 1908011F - Eigna- og veitunefnd - 7 |
12.2. 1907064 - Gatnagerð í landi Bjarkar 1.áfangi
Tilboð opnuð 28.08.2019 kl 11:00
Eftirfarandi tilboð bárust:
Háfell 672.651.921
Gröfutækni 671.146.850
Aðalleið 718.401.910
Nesey 748.000.000
Borgarverk 718.000.000
Kostnaðaráætlun 758.954.370
Lagt er til við bæjarráð að tilboði lægstbjóðanda verði tekið svo framarlega sem hann uppfylli skilyrði sem tiltekin eru í útboðsgögnum.
Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð samþykkir að tilboði Gröfutækni, kr. 671.146.850, verði tekið svo framarlega sem öll skilyrði eru uppfyllt.
|
12.3. 1908158 - Kaup á búnaði í Gimli á Stokkseyri
Vísað til bæjarráðs til afgreiðslu
Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð samþykkir kaup á búnaðinum, fáist hann fyrir krónur 250.000, enda rúmast kostnaðurinn innan fjárhagsáætlunar.
|
12.7. 1803082 - Miðbær Selfoss 2018
Endurskipun í Skipun í vinnuhóp varðandi framkvæmdir í miðbæ Selfoss.
Nú þegar að Sigtún Þróunarfélag hefur hafið framkvæmdir í miðbæ Selfoss óskar bæjarstjóri eftir því að gerð verði sú breyting á samstarfshóp um uppbyggingu miðbæjarins, sem stofnað var til á 8. fundi bæjarráðs þann 8. September 2018, að í hans stað komi sviðsstjóri Mannvirkja- og umhverfissviðs.
Nauðsynlegt er að gott samstarf skapist milli framkvæmdaaðila og bæjaryfirvalda um framgang verksins með reglulegum fundum og fundargerðum sem lagðar verða fram fyrir Eigna- og veitunefnd til kynningar og afgreiðslu mála sem upp kunna að koma á meðan að framkvæmdum stendur sem varða sveitarfélagið. Þannig má best tryggja hagsmuni íbúa og skilvirka og gagnsæja stjórnsýslu.
Samstarfshópurinn mun funda annan miðvikudag í mánuði kl. 16, að Austurvegi 67.
Forsvarsmenn Sigtúns þróunarfélags hafa lýst sig samþykka breytingunni.
Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð samþykkir að sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs taki sæti í samráðshópnum fyrir hönd Árborgar í stað bæjarstjóra. Fundargerðir verði teknar til umfjöllunar í Eigna- og veitunefnd.
|
12.8. 1112102 - Menningarsalurinn í Hótel Selfoss
Frumdrög og kostnaðaráætlun vegna fullnaðarfrágangs Menningarsalar í Hótel Selfoss lögð fram.
Forsendur áætlunargerðar gera ráð fyrir að salurinn verði hannaður fyrir „náttúrulegan hljómburð“ og þannig miðað við að gera hljóðvist sem besta fyrir algengustu notkun, s.s. fyrir popp-, rokk- og djasstónleika, söngleiki, leiksýningar, kvikmyndasýningar og ráðstefnur. Ljóst er að vegna stærðartakmarkana salarins hvað varðar lofthæð verður hljómburður sinfónískrar tónlistar og kórsöngs þó síðri. Ekki er þó lokað fyrir þann möguleika síðar að setja upp hljómburðarkerfi s.k. „aktífa akústík“ ef slík þörf verður til staðar. Tekið hefur verið tillit til þeirra framkvæmda sem fara þarf í þannig að rekstur salarins geti hafist, s.s. frágang innanhúss, tæknikerfi og búnað ásamt endurbótum á stoðrýmum og í lóð. Kostnaðaráætlun m.v. verðlag í júlí 2019 reiknast 472 Mkr.
Skrifstofustjóri Mennta- og menningarmálaráðuneytis hefur fengið kostnaðaráætlunina í hendurnar.
Brunabótamat salarins í því ástandi sem hann er, er 553 Mkr. Brunabótamat er vátryggingarfjárhæð húseignar eða áætlaður kostnaður við að endurbyggja eign sem eyðileggst í eldi. Því má áætla að Svf. Árborg hafi nú þegar lagt til ríflega 550 Mkr. í menningarsalinn.
Forsætisráðherra, Mennta- og menningarmálaráðherra ásamt skrifstofustjóra Mennta- og menningarmálaráðuneytis, aðrir ráðherrar í ríkisstjórn og þingmenn Suðurkjördæmis hafa heimsótt og skoðað aðstæður í Menningarsalnum.
Er forsætisráðherra skoðaði salinn sl. vor varð henni að orði að ófullgerður Menningarsalur Suðurlands á Selfossi væri eitt best geymda leyndarmál Suðurlands, en salurinn hefur staðið fokheldur í þrjátíu og þrjú ár. Ráðherra var þá bjartsýn á að eitthvað færi að gerast í málefnum salarins.
Eigna- og veitunefnd hvetur Mennta- og menningarmálaráðherra og aðra ráðherra í Ríkisstjórn Íslands ásamt þingmönnum Suðurkjördæmis að Menningarsalurinn verði settur á fjárlög fyrir árið 2020 og að veitt verði myndarlegu framlagi til verksins svo koma megi salnum í blómlega menningarstarfsemi sem allra fyrst.
Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð tekur undir bókun 7. fundar eigna- og veitunefndar og hvetur Mennta- og menningarmálaráðherra og aðra ráðherra í Ríkisstjórn Íslands ásamt þingmönnum Suðurkjördæmis að Menningarsalurinn verði settur á fjárlög fyrir árið 2020 og að veitt verði myndarlegu framlagi til verksins svo koma megi salnum í blómlega menningarstarfsemi sem allra fyrst.
|
|
|
|
13. 1908014F - Umhverfisnefnd - 4 |
|
|
|
14. 1908008F - Skipulags og byggingarnefnd - 27 |
14.2. 1906177 - Umsókn um byggingarleyfi að Hraunhellu 14 Selfossi, erindið hefur verið grenndarkynnt og engar athugasemdir borist. Umsækjendur: Sævar Andri Árnason og Hafdís Ingvarsdóttir
Lagt er til við bæjarstjórn að skipulagsbreytingin verði samþykkt.
Niðurstaða þessa fundar
|
14.3. 1905087 - Umsagnarbeiðni vegna byggingaáforma að Bankavegi 8 Selfossi, erindið hefur verið grenndarkynnt og samkomulag hefur hefur náðst um byggingaráforminn. Umsækjandi: Sigfús Kristinsson
Erindið var grenndarkynnt og málsaðilar skiluðu undirrituðu samkomulagi. Lagt er til við bæjarstjórn að skipulagsbreytingin verði samþykkt.
Niðurstaða þessa fundar
|
14.5. 1908088 - Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir staðsetningu á Ærslabelg á Selfossvelli. Umsækjandi. Sveitarfélagið Árborg
Lagt er til við bæjarráð að framkvæmdaleyfið verði samþykkt.
Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi vegna Ærslabelgs á Selfossvelli.
|
14.6. 1907018 - Ósk um umbætur á hesthúsahverfi liður 4 og 5, bæjarráð vísaði erindinu til skipulags- og byggingarnefndar.
Liður 4: Lagt er til við bæjarstjórn að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir hesthúsahverfið á Selfossi.
Liður 5: Nefndið leggur til að erindinu verði vísað til starfshóps um endurskoðun aðalskipulags.
Niðurstaða þessa fundar
|
14.12. 1908138 - Umsókn um lóðina Túngata 2 Eyrarbakka. Umsækjandi: Hafdís Brandsdóttir
Lagt er til við bæjarráð að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda.
Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni Túngötu 2, Eyrarbakka, til umsækjanda, Hafdísar Brandsdóttur.
|
14.13. 1906013 - Tillaga að aðal- og deiliskipulagsbreytingu í Austurbyggð, tillagan hefur verið auglýst, og umsagnir hafa borist.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt að teknu tilliti til athugasemda og umsagna sem bárust.
Niðurstaða þessa fundar
|
14.15. 1810115 - Kynning á niðurstöðum útboðs á heildarendurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030
Kynnt er niðurstaða útboðs á vinnu ráðgjafa við endurskoðun aðalskipulags Árborgar. Efla hf. átti það tilboð sem var metið hagstæðast skv. skilmálum útboðsgagna og er lagt til við bæjarráð að samþykkt verði að ganga til samninga við Eflu hf. um ráðgjafavinnu við endurskoðun aðalskipulags. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að starfshópur verði skipaður.
Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
|
|
|
|
|
Fundargerðir til kynningar |
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:25 |
|