6. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2026 - 2030
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 21. október 2026 í
Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi1. 2601307 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2026
Tillaga frá 14. fundi bæjarráðs, dags. 15. október sl. liður 2. Viðauki við fjárhagsáætlun 2026. Viðauki nr. 3. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja viðauka 3. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlunSveitarfélagsins Árborgar 2026. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Sveitarfélagsins Árborgar (A og B hluta) er neikvæð um kr. 65.298.501,- og lækkar rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta um kr. 65.298.501,- og er áætlaður kr. 108.990.000,-. Áhrif viðaukans á A hluta er neikvæð um kr. 65.298.501,- og lækkar því handbært
fé um kr. 65.298.501,- eftir að viðauki er samþykktur.
2. 2511417 - Endurskoðun á reglum Árborgar um fjárhagsaðstoð
Tillaga frá 2. fundi velferðarnefndar frá 29. september sl. liður 2. Endurskoðun á reglum Árborgar um fjárhagsaðstoð. Lagt er til samþykktar smávægilegar breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Velferðarnefnd samþykkir samhljóða breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.3. 1603084 - Verndarsvæði í byggð - Eyrarbakki
Tillaga frá 6. fundi skipulagsnefndar frá 14. október, liður 1. Verndarsvæði í byggð - Eyrarbakki. Lögð er fyrir fund skipulagsnefndar uppfærð og lagfærð tillaga að greinargerð fyrir Verndarsvæði í byggð. Meðfylgjandi greinargerð er húsakönnunarskýrsla auk uppfærðrar fornleifaskráningar á Eyrarbakka. Sumarið 2015 voru samþykkt á Alþingi, lög nr. 87/2015 um verndarsvæði í byggð. Meginmarkmið laganna er að stuðla að vernd og varðveislu byggðar sem talin er hafa sögulegt gildi. Árið 2016 senda inn erindi Magnús Karel Hannesson og Inga Lára Baldvinsdóttir þar sem þau benda á hin nýju lög og hvetja sveitarfélagið til að hefja vinnu sem nái þá sérstaklega utan um Eyrarbakka m.t.t. hverfisverndar, húsakönnunar o.s.frv. Árið 2016 er sótt um og fékkst styrkur frá Húsafriðunarnefnd, til að vinna tillögur að "Verndarsvæði í byggð" Fram til ársins 2020 er unnið að gerð húsakönnunar, fornleifaskráningar og greinargerðar um Verndarsvæði í byggð. Landform ehf. sá um utanumhald á vinnslu tillögunnar. Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 21.10.2020 tillögu að Verndarsvæði í byggð, til auglýsingar í samræmi við lög og reglugerð nr.575/2016. Þá var tillagan kynnt sérstaklega íbúum á Eyrabakka með kynningarfundi í mars 2021. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti tillöguna 11.8.2021 til auglýsingar í samræmi við 2. gr. reglugerðar nr. 575/2016. Bæjarstjórn Árborgar staðfesti þann 18.8.2021 fundargerð skipulags- og byggingarnefndar og samþykkti einnig að auglýsa tillöguna með áberandi hætti í sex vikur eins og kveðið er á um í reglugerð. Tillagan var auglýst frá 8.9.2021 með athugasemdafresti til 20.10.2021. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma. Skipulagsnefnd Árborgar fagnar því að komin sé lokaniðurstaða í verkefnið Verndarsvæði í byggð - Eyrarbakka". Í samræmi við leiðbeiningar forsætisráðuneytisins sem fer með málaflokkinn er ekki talin þörf á að auglýsatillöguna að nýju þótt svo að töluverður tími sé liðinn frá því að hún lauk auglýsinga og kynningarferli. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með þeim lagfæringum sem gerðar hafa verið og mælist til þess við Bæjarstjórn Árborgar að
samþykkja tillöguna til endanlegrar samþykktar hjá forsætisráðherra.
4. 2610191 - Uppbygging á sveitarfélagamörkum Sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps
Erindi frá oddvitum Flóahrepps og Sveitarfélagsins Árborgar, dags. 16. október 2026, um mögulega framtíðaruppbyggingu landssvæðis austan við Selfoss. Um er að ræða um 100 ha landsvæði sem Sveitarfélagið Árborg keypti árið 2014 sem er innan sveitarfélagamarka Flóahrepps og heyrir því undir skipulags- og stjórnsýsluvald Flóahrepps. Svæðið liggur meðfram nýjum Suðurlandsvegi og hefur verið rætt um uppbyggingu þar fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, kirkjugarð og græn svæði til útivistar og afþreyingar. Bæjarstjóri leggur til að hafnar verði formlegar viðræður um sameiginlega sýn og samkomulag um uppbyggingu landssvæðisins og stofnaður vinnuhópur.5. 2610192 - Skipan í samstarfshóp vegna uppbyggingar á sveitarfélagamörkum
Sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps ásamt drögum að erindisbréfi Drög að erindisbréfi vinnuhóps um útfærslu uppbyggingar á landssvæði austan Selfoss. Hópinn skipi þrír fulltrúar frá hvoru sveitarfélagi. Vinnuhópurinn skal móta tillögur að samkomulagi milli Sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps um uppbyggingu á um 100 ha landsvæði austan við Selfoss. Svæðið er í eigu Sveitarfélagsins Árborgar en er innan sveitarfélagamarka Flóahrepps og heyrir því undir skipulags- og stjórnsýsluvald Flóahrepps. Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja erindisbréfið og kjósa þrjá fulltrúa ívinnuhópinn.
6. 1904353 - Erindisbréf Umhverfisnefndar
Tillaga frá 3. fundi umhverfisnefndar frá 28. september sl. liður 1. Erindisbréf Umhverfisnefndar. Farið yfir drög að erindisbréfi og er því vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn með framkomnum athugasemdum. Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja erindisbréfið.7. 2302189 - Erindisbréf menningarnefndar
Tillaga frá 1. fundi menningarnefndar frá 17. september sl. liður 2. Erindisbréf menningarnefndar. Lögð eru fram drög að erindisbréfi nefndarinnar. Nefndin samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar því til afgreiðslu í bæjarstjórn. Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja erindisbréfið.8. 2311414 - Erindisbréf fyrir Öldungaráð
Tillaga frá 1. fundi öldungaráðs frá 23. september sl. liður 1. Endurskoðun á erindisbréfi fyrir Öldungaráð. Farið yfir erindisbréf Öldungaráðs. Lagt er til við bæjarstjórna að samþykkja erindisbréfið.Fundargerðir
9. 2609001F - Skipulagsnefnd - 44. fundur haldinn 16. september.
10. 2609017F - Menningarnefnd - 1
1. fundur haldinn 17. september.
11. 2609023F - Bæjarráð - 12
12. fundur haldinn 1. október.
12. 2609030F - Umhverfisnefnd - 3
3. fundur haldinn 28. september.
13. 2609024F - Skipulagsnefnd - 5
5. fundur haldinn 30. september.
14. 2609026F - Velferðarnefnd - 2
2. fundur haldinn 29. september.
15. 2610002F - Bæjarráð - 13
13. fundur haldinn 7. október.
16. 2610008F - Bæjarráð - 14
14. fundur haldinn 15. október.
Bragi Bjarnason
bæjarstjóri

