Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 38

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
06.06.2019 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Eggert Valur Guðmundsson formaður, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, Á-lista,
Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Formaður leitaði afbrigða að taka á dagskrá rekstrarleyfisumsögn á Eyravegi 11-13 - Hotel South Coast.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1406038 - Deiliskipulag við 18 holu golfvöll á Svarfhólsvelli
Upplýsingar frá umhverfis- og tæknisviði uppsveita, dags. 22. maí, vegna deiliskipulags á golfvellinum við Svarfhólsvöll.
Lagt fram til kynningar.
Afgreiðsla skipulagsnefndar Flóahrepps, vegna Svarfhólsvallar, deiliskipulag golfvallar.pdf
2. 1905017 - Umsögn - grænbók um stefnu ríkisins í málefnum sveitarfélaga
Hvatning frá stjórn sambandsins til allra sveitarfélaga að taka grænbókina til umræðu og senda inn umsögn um málið. Frestur til að skila inn umsögn hefur verið framlengdur til 11. júní nk.
Lagt fram til kynningar.
FW: Samþykkt stjórnar sambandsins um Grænbók um stefnu um málefni sveitarfélaga.pdf
Grænbók um stefnu um málefni sveitarfélaga og aukalandsþing.pdf
Grænbók um stefnu um málefni sveitarfélaga apríl 2019.pdf
FW: Grænbók um stefnu í málefnum sveitarfélaga birt í samráðsgátt.pdf
3. 1905280 - Framkvæmdaleyfisumsókn vegna endurgerðar Smáratúns
Erindi frá 20. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 22. maí sl., liður 7.13. Lagt er til við bæjarráð að framkvæmdaleyfið verði veitt. Umsækjandi er Sveitarfélagið Árborg, kt. 650598-2029.
Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi vegna endurgerðar Smáratúns.
4. 1904172 - Lóðarumsókn - Eyrarbraut 51
Tillaga frá 20. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 22. maí sl., liður 7.7. Beiðni um vilyrði fyrir lóðunum að Eyrarbraut 51, 53 og 55, Stokkseyri. Lagt er til við bæjarráð að beiðni um vilyrði verði hafnað. Umsækjandi Unnar Már Hjaltason.
Bæjarráð hafnar beiðni um vilyrði fyrir lóðunum að Eyrarbraut 51, 53 og 55, Stokkseyri, að tillögu skipulags- og byggingarnefndar.
5. 1906034 - Ósk um samstarf vegna þátttöku handknattleiksdeildar Umf. Selfoss í Meistaradeild Evrópu 2019-2020
Erindi frá deildastjóra menningar- og frístundadeildar, dags. 2. júní, um mögulegt samstarf sveitarfélagsins vegna þátttöku handknattleiksdeildar Umf. Selfoss í Meistaradeild Evrópu 2019-2020.
Bæjarráð fagnar frábærum árangri handknattleiksdeildar Umf. Selfoss og styður heilshugar þá fyrirætlan þeirra að takast á við sterkustu lið Evrópu í handknattleik. Bæjarráð óskar liðinu góðs gengis.
Bæjarráð samþykkir því ósk handknattleiksdeildar Umf. Selfoss um stuðning við þátttöku í Meistaradeild Evrópu 2019-2020. Í því felst að standa straum af kostnaði vegna keppnisaðstöðu samkvæmt meðfylgjandi minnisblaði deildarstjóra frístunda- og menningarmála dags. 2. júní, allt að 7 milljónum króna. Bæjarstjóra falið að ganga frá viðauka og leggja fyrir bæjarstjórn.
Þátttaka Hkd. Umf. selfoss í Meistardeild Evrópu 2019 - Minnisblað BB 3.júní´19.pdf
6. 1906041 - Húsnæði Tónlistarskóla Árnesinga
Erindi frá stjórnendum Tónlistarskóla Árnesinga, dags. 4. júní, þar sem farið er þess á leit við sveitarfélagið að kannað verði með húsnæðismál fyrir skólann á Selfossi.
Bæjarráð bendir á að fyrirætlanir eru um að Tónlistarskóli Árnesinga fái aðtöðu í nýjum Björkurskóla. Bæjarstjóra falið að hafa samband við leigusala núverandi húsnæðis um úrbætur.
Húsnæðismál Selfossi 2019.pdf
7. 1902274 - Rekstrarleyfisumsögn - Hotel South Coast
Beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 26. febrúar, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi til sölu á gistingu í flokki IV hótel á Eyravegi 11-13. Umsækjandi Bárukór ehf, kt. 540119-1710.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að rekstrarleyfi verði veitt Hotel South Coast til sölu gistingar í flokki IV á Eyrarvegi 11-13.
Beiðni um umsögn um rekstarleyfi - Eyravegi 11-13.pdf
Fundargerðir
8. 1901031 - Bygging leikskóla við Engjaland 21
4. fundur haldinn 3. júní
Lagt fram til kynningar.
4. fundur v. leikskóla v Engjaland 3.6.2019.pdf
9. 1901335 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2019
871. fundur haldinn 29. maí.
Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 871.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:35 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica