Fundargerð ritaði: Helga María Pálsdóttir, bæjarritari
Formaður leitaði afbrigða að taka á dagskrá eitt mál. Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lausar kennslustofur að Sólvöllum 6, sem tekin var fyrir á 25. fundi skipulags- og byggingarnefndar.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 1905393 - Undirbúningur útboðs á raforkukaupum
Erindi frá Ríkiskaupum. Ríkiskaup eru að undirbúa útboð á raforkukaupum. Sambærilegur rammasamningur er nú í gildi fyrir ríkisstofnanir RS Raforka. Að þessu sinni vilja Ríkiskaup bjóða þeim sveitarfélögum sem þess óska og eru aðilar að rammasamningakerfi Ríkiskaupa að taka þátt í útboðinu. Ríkiskaup reikna með því að útboðið verði auglýst í júní og samningur verði kominn á í september 2019.
Bæjarráð óskar eftir því við bæjarstjóra að lagt verði fyrir bæjarráð minnisblað um stöðu raforkukaupa sveitarfélagsins.
2. 1907048 - Landsfundur jafnréttisnefnda 2019
Erindi frá Jafnréttisstofu, dags. 5. júlí. Jafnréttisstofa í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Garðabæ boðar til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga 4. - 5. september nk.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð hvetur kjörna fulltrúa til að taka þátt.
3. 1906147 - Ítrekun á beiðni um aukningu á kvóta fyrir tónlistarkennslu í Árborg
Erindi frá Tónlistarskóla Árnesinga, dags. 24. júlí, þar sem ítrekuð er ósk um aukna tónlistarkennslu í Sveitarfélaginu Árborg frá hausti 2019.
Bæjarráð samþykkir að bæta við 12 klst í kennslukvóta frá ágúst 2019 til áramóta. Fjármálastjóra er falið að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun að upphæð 3.036.000,- á næsta fundi bæjarráðs.
4. 1908021 - Tímaáætlun fjármálastjóra vegna fjárhagsáætlunar 2020-2023
Lagt fram til kynningar tímaplan fjármálastjóra vegna fjárhagsáætlunar 2020-2023.
7. 1907060 - Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir lausar kennslustofur - Sólvellir 6
Niðurstaða skipulags- og byggingarnefndar: Skipulags- og byggingarnefnd vill lýsa yfir óánægju sinni með framkvæmdir vegna lausra kennslustofa við Álfheima. Nefndin hafði áður frestað afgreiðslu málsins vegna staðsetningu kennslustofanna, engu að síður var haldið áfram framkvæmdum enda voru þær hafnar áður en umsókn um framkvæmdarleyfi barst nefndinni. Í ljósi aðstæðna er samt sem áður lagt til við bæjarráð að framkvæmdarleyfið verði samþykkt. Greidd voru atkvæði og afgreiðslan samþykkt með þremur atkvæðum. Fulltrúar D-lista sátu hjá. Fulltrúar D-lista lýsa yfir óánægju með staðsetningu kennslustofanna.
Bæjarráð samþykkir framkvæmdarleyfi vegna lausra kennslustofa við Álfheima. Fulltrúi D-lista sat hjá.
Fundargerð
5. 1907007F - Skipulags og byggingarnefnd - 25
Fundargerð samþykkt.
Samþykkt
5.3. 1907065 - Umsókn um breytingu á lóðum að Keldnakoti Umsækjandi. Ríkiseignir
Lagt er til við bæjarstjórn að umbeðnar lóðabreytingar verði samþykktar.
Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð samþykkir umbeðnar lóðabreytingar.
5.4. 1907090 - Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir æfingarvöll á Íþróttavallarsvæði við Engjaveg. Umsækjandi: Sveitarfélagið Árborg.
Skipulags- og byggingarnefnd vill lýsa yfir óánægju sinni með að framkvæmdir vegna æfingavallar séu hafnar áður en samþykkt framkvæmdarleyfi liggi fyrir. Lagt er til við bæjarráð að framkvæmdarleyfið verði samþykkt með þeim fyrirvara að við sandtöku í Eyrabakkafjöru verði gróðurhulu ekki raskað, þar með talið melgresi.
Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð samþykkir að framkvæmdaleyfi verði veitt og leggur áherslu á að grónu landi verði ekki raskað við framkvæmdina.
Fulltrúi D-lista tekur undir bókun skipulags- og byggingarnefndar.