Bæjarstjórn - 30 |
Haldinn í gegnum fjarfundarbúnað, 16.12.2020 og hófst hann kl. 17:00 |
|
Fundinn sátu: Helgi Sigurður Haraldsson forseti bæjarstjórnar, Eggert Valur Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista, Tómas Ellert Tómasson bæjarfulltrúi, M-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, Á-lista, Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Kjartan Björnsson bæjarfulltrúi, D-lista, Ari B. Thorarensen bæjarfulltrúi, D-lista, Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri, Helga María Pálsdóttir bæjarritari. |
|
Fundargerð ritaði: Helga María Pálsdóttir, bæjarritari |
|
Forseti bæjarstjórnar setur fundinn og kallar eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Ari B. Thorarensen, D-lista leggur fram eftirfarandi bókun:
Ég mótmæli þeirri ákvörðun forseta að hafa fundinn í fjarfundi. Við erum 9 fulltrúar og bæjarstjóri og getum viðhaldið allar sóttvarnarreglur.
Forseti óskar eftir að taka inn á afbrigðum tvö mál af fundi skipulags- og byggingarnefndar frá því í dag, 16. desember og er vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn. Deiliskipulagsbreyting, Víkurheiði málsnr. 1909188 og Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Árbakka málsnr. 1905502.
Er það borið undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum. |
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
Almenn erindi |
1. 2011247 - Innkaupareglur Sveitarfélagsins Árborgar |
Gunnar Egilsson, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, M-lista, Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, Ari B. Thorarensen, D-lista, Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Á-lista taka til máls.
Lagt er til að málinu verði frestað. Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
|
Frestað |
|
|
|
2. 1901289 - Reglur um leikskólaþjónustu |
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Ari B. Thorarensen, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri og Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista taka til máls.
Reglurnar eru bornar undir atkvæði og samþykktar samhljóða með 9 atkvæðum. |
Reglur um leikskóla Árborgar - 9. des. 2020.pdf |
|
|
|
3. 2002046 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2020 - Viðauki 9 |
Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri tekur til máls.
Viðauki nr. 9 er borinn undir atkvæði og samþykktur með 5 atkvæðum. 4 bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá. |
|
|
|
4. 1905502 - Tillaga að aðalskipulagsbreytingu Árbakka |
Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista tekur til máls.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
|
|
|
|
5. 1909188 - Deiliskipulagsbreyting - Víkurheiði |
Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista, Gunnar Egilsson, D-lista, Kjartan Björnsson, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, M-lista og Ari B. Thorarensen, D-lista taka til máls.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum. |
|
|
|
|
7. 2012065 - Útsvarsprósenta 2021 |
Lögð er fram eftirfarandi tillaga um útsvarsprósentu: Miðað er við að útsvarshlutfall fyrir árið 2021 verði hámarksútsvar þ.e. 14,52% af útsvarsstofni.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum. 4 bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá. |
|
|
|
8. 2007034 - Fjárhagsáætlun 2021-2024 |
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, tekur til máls og kynnir breytingar á fjárhagsáætlun og 3ja ára áætlun milli umræðna.
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri, Gunnar Egilsson, D-lista, Kjartan Björnsson, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, M-lista, Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista, Arna ír Gunnarsdóttir, S-lista, Ari B. Thorarensen, D-lista og Eggert Valur Guðmundsson, S-lista taka til máls.
Fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun eru bornar undir atkvæði og samþykktar með 5 atkvæðum gegn 4 atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista.
Kjartan Björnsson, D-lista gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun: Það er erfitt að greiða atkvæði með eða á móti fjárhagsáætlun þegar margt sem horfir til framfara og er nauðsynlegt að setja fjármuni í er inni í áætluninni fyrir næsta ár. En þar sem lokaafgreiðsla áætlunarinnar er afgreidd með viðlíka halla þannig að ekkert slíkt hefur áður sést er þó ekki boðlegt. Menningarsalur Suðurlands fær þó brautargengi í fjárhagsáætluninni og lýsi ég yfir sérstakri ánægju með fjármuni Sveitarfélags og ríkis í löngu tímabæran Menningarsalinn.Fjárfestingarliðurinn er of stór miðað við fjárhagsstöðuna hjá sveitarfélaginu að mínu mati í heild sinni og því get ég ekki greitt atkvæði með fjárhagsáætluninni.
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram f.h. bæjarfulltrúa D-lista eftirfarandi bókun: Bæjarfulltrúar D-lista greiða atkvæði gegn fjárhagsáætlun. Algerlega ábyrgðarlaust er að skila áætlun fyrir næsta ár með nærri hálfs milljarðs halla á rekstri. Ekki hefur verið unnið að hagræðingu eins og þurft hefði að gera og bent var á við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun. Fjárfestingaráætlun upp á rúma fjóra milljarða er líka með öllu óraunhæf miðað við skuldasöfnun meirihlutans. Enn á ný eru áætlaðar tekjur af lóðasölu umfram það sem líkur eru á að takist að afla, líkt og á þessu ári og því síðasta.Óábyrgt er að byggja áætlun um fjárfestingar á óraunhæfri áætlun um lóðagjöld. Rekstur sveitarfélagsins er ekki lengur sjálfbær og stefnir í óefni. Ari Björn Thorarensen bæjarfulltrúi D-lista, Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi D-lista, Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi D-lista, Kjartan Björnsson bæjarfulltrúi D-lista.
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram f.h. bæjarfulltrúa meirihlutans eftirfarandi bókun: Framlögð fjárhagsáætlun fyrir árin 2021-2024, ber keim af þeirri fjárhagslegu stöðu sem uppi er á Íslandi vegna afleiðinga kórónuveirunnar. Fjárhagsáætlunin ber einnig merki þeirrar miklu uppbyggingar og fólksfjölgunar sem átt hefur sér stað í sveitarfélaginu ásamt spá um áframhaldandi fjölgun íbúa. Milli fyrri og seinni umræðu fjárhagsáætlunar hefur verið farið enn frekar yfir alla rekstrarþætti og skoðað í þaula fjöldi nýrra stöðugilda vegna nýrra skólaeininga ásamt tilfærslum á stöðugildum frá þeim sem fyrir eru í rekstri. Ljóst er að launahækkanir vegna nýrra kjarasamninga á árinu hafa töluverðan kostnaðarauka í för með sér. Væntanlegar skerðingar á framlögum jöfnunarsjóðs munu svo að sjálfsögðu hafa verulega neikvæð áhrif á reksturinn.
Niðurstaða fjárhagsáætlunar ársins 2021 er að hallinn verður um 3,5% hlutfall af tekjum en 8 af 10 stærstu sveitarfélögum landsins skila fjárhagsáætlunum næsta árs með halla að meðaltali upp á um 7% hlutfall af tekjum. Þar sést að erfiður rekstur sveitarfélaga á þessum tímum er ekkert einsdæmi í okkar sveitarfélagi. Sterkar líkur eru á að tekjur vegna útsvars og jöfnunarsjóðsframlags ættu að vera hærri en raunin er í framlagðri fjárhagsáætlun, en þar sem skýrari upplýsingar frá Jöfnunarsjóði og Fjársýslu vegna útsvarsuppgjör hafa ekki borist á þessum tímapunkti verður það skoðað betur. Þegar þessar upplýsingar liggja fyrir gæti það leitt til viðauka og breytinga á tekjum á nýju ári.
Við sem leggjum þessa fjárhagsáætlun fram höfum fulla trú á að með henni sé verið að styrkja sveitarfélagið enn frekar sem góðan kost til búsetu, með góðri þjónustu og frekari uppbyggingu innviða.
Eggert Valur Guðmundsson bæjarfulltrúi S-lista. Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi S-lista. Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi Á-lista. Tómas Ellert Tómasson bæjarfulltrúi M-lista. Helgi Sigurður Haraldsson bæjarfulltrúi B-lista. |
Sveitarfélagið Árborg fjárhagsáætlun 2021-2024 seinni umræða.pdf |
Viðauki við greinargerð fjárhagsáætlun 2021-2024 seinni umræða.pdf |
|
|
|
|
Fundargerðir |
9. 2011013F - Eigna- og veitunefnd - 35 |
Tómas Ellert Tómasson, M-lista og Gunnar Egilsson, D-lista taka til máls undir lið nr. 3, Mat á umhverfisáhrifum við hreinsistöð fráveitu við Geitanesflúðir. |
|
|
|
10. 2011017F - Frístunda- og menningarnefnd - 15 |
|
|
|
11. 2011018F - Bæjarráð - 96 |
|
|
|
12. 2011014F - Skipulags og byggingarnefnd - 57 |
|
|
|
13. 2012004F - Bæjarráð - 97 |
|
|
|
|
|
Bæjarstjórn Árborgar sendir starfsmönnum og íbúum öllum hugheilar jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. |
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:26 |
|