Bæjarráð - 29 |
Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, 21.03.2019 og hófst hann kl. 17:00 |
|
Fundinn sátu: Eggert Valur Guðmundsson formaður, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, Á-lista, Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista, Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
Almenn erindi |
1. 1903177 - Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa D-lista - Ósk um að fá Ólaf Gestsson endurskoðanda á fund bæjarráðs |
Í ljósi breyttra forsenda telur bæjarráð rétt að endurmeta fjárfestingaáætlun sveitarfélagsins 2019-2022 og kanna hvort ástæða er til að gera breytingar frá þeirri áætlun sem samþykkt var í desember síðastliðinn. Á fyrstu mánuðum ársins hafa verið samþykktir miklir viðaukar vegna útgjalda í sorpmálum vegna breyttra aðstæðna. Einnig hefur reynst nauðsynlegt að samþykkja frekari viðauka, vegna stofnframlaga og annarra útgjalda. Þessir viðaukar hafa lækkað áætlaðan afgang ársins 2019 umtalsvert. Það má einnig ætla að fyrir liggi nýjar kostnaðarupplýsingar um einhverjar af þeim fjárfestingum sem ráðgerðar eru í fjárfestingaáætlun og jafnvel nýjar upplýsingar um fyrirsjáanlega framvindu í gatnagerð ársins. Loks eru blikur á lofti í efnahagslífinu og ástæða til að meta hvort það kallar á sérstök viðbrögð.
|
|
|
Gestir |
Ingibjörg Garðarsdóttir fjármálastjóri - 17:00 |
Ólafur Gestsson, endurskoðandi - 17:00 |
|
|
2. 1903178 - Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa D-lista - Upplýsingar um gatnagerðargjöld af lóðum í Álalæk |
Bæjarstjóri lagði fram umbeðnar upplýsingar.
Gunnar Egilsson óskaði eftir að upplýsingarnar yrðu bókaðar í fundargerð: Álalækur 1-3, úthlutað til: Hótel Geysir ehf. 481293-2519, greitt, eigandi í dag: Húshás ehf. Álalækur 5-7, úthlutað til: Akurhólar ehf. 421216-0370, greitt, eigandi í dag: Stórefli ehf. Álalækur 9-11, úthlutað til: BG eignir ehf. 450109-0610, greitt, eigandi í dag: Stórefli ehf.
Eggert V. Guðmundsson og Sigurjón V. Guðmundsson lögðu fram eftirfarandi bókun: Það hlýtur að vera einstakt mál að kjörinn fulltrúi leggi fram fyrirspurn á opinberum vettvangi án rökstuðnings, um það hvort einstakir framkvæmdaaðilar eða viðskiptamenn sveitarfélagsins hafi greitt álögð gjöld, og einnig sú fyrirspurn bæjarfulltrúans um hvaða aðili hafi séð um að greiða. Einnig vekur það furðu að það þurfi að óska eftir upplýsingum á fundi bæjarráðs hvaða aðilar fá úthlutanir fyrir einstökum byggingalóðum. Upplýsingar um lóðaúthlutanir og byggingaleyfi í sveitarfélaginu eru aðgengilegar öllum í fundargerðum skipulags og bygginganefndar, og ætti því að vera auðvelt fyrir bæjarfulltrúan að fá allar þær upplýsingar sem hann kýs um lóðaúthlutanir í sveitarfélaginu með einföldum hætti. Eggert Valur Guðmundsson S lista Sigurjón V Guðmundsson Á lista
|
|
|
|
3. 1902257 - Fundarboð - Veiðifélag Árnesinga 2019 |
Bæjarráð samþykkir að Gunnar Egilsson mæti á aðalfund Veiðifélags Árnesinga og fari með atkvæði Sveitarfélagsins Árborgar. |
|
|
|
4. 1903117 - Umsögn - frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
5. 1903135 - Umsögn - frumvarp til laga um fiskeldi, áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl. |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
|
Fundargerðir til kynningar |
6. 1903124 - Fundargerðir Bergrisans bs. 2019 |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
7. 1903142 - Fundargerðir almannavarnanefndar Árnessýslu 2019 |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
8. 1901176 - Fundargerðir stjórnar SASS 2019 |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
9. 1901039 - Fundargerðir stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands 2019 |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
10. 1902097 - Fundargerðir fagráðs Tónlistarskóla Árnesinga 2019 |
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vill koma á framfæri þeirri leiðréttingu að tónlistarkennsla sem rætt er um í 2. lið fundargerðar mun flytjast í húsnæði BES á Stokkseyri. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:05 |
|