Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 45

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
29.08.2019 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Eggert Valur Guðmundsson formaður, S-lista,
Tómas Ellert Tómasson bæjarfulltrúi, M-lista,
Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1908133 - Áskorun vegna hamfarahlýnunar - grænkerafæði hjá hinu opinbera
Áskorun frá Samtökum grænkera á Íslandi, dags. 20. ágúst, til umhverfisráðherra, ríkisstjórnar og sveitarfélaga á Íslandi.
Bæjarráð leggur áherslu á að fæði í skólamötuneytum sveitarfélagsins byggist á fjölbreytileika, enda er fjölbreytt fæða ein af forsendum fyrir góðum námsárangri og eðlilegum þroska barna og unglinga.
askorun_SGI[1].pdf
2. 1908181 - Tillaga að tilraunaverkefni í fjarnámi
Beiðni um greiðsluþátttöku Árborgar í námi nemenda TÁ með lögheimili utan sveitarfélaga.
Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni.
3. 1908182 - Beiðni um viðbótarframlag vegna húsgagnakaupa - viðauki við fjárhagsáætlun 2019
Beiðni frá skólastjóra BES, dags. 26. ágúst, um viðauka við fjárhagsáætlun vegna húsgagnakaupa í Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Bæjarráð vísar erindinu til vinnu við fjárhagsáætlun 2020.
4. 1806107 - Samningur - persónuverndarfulltrúi
Framlenging á þjónustusamningi vegna þjónustu persónuverndarfulltrúa.
Bæjarráð samþykkir að framlengja til ársloka 2019 samning þann sem gerður var við Dattaca labs til eins árs árið 2018.
5. 1812008 - Drög - reglugerð um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga
Erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags. 19. ágúst, þar sem vakin er athygli á að ráðuneytið hefur birt til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033.
Lagt fram til kynningar.
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga.pdf
6. 1901308 - Ósk um umsögn vegna starfsleyfis í Hellislandi
Starfsleyfisskilyrði frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands dags. 21. ágúst, fyrir starfsstöð Íslenska gámafélagið ehf. í Hellislandi.
Lagt fram til kynningar.
Isl_gamafelagid_Jardg_gamasv_starfsleyfisskilyrði__2019_auglysing.pdf
7. 1901293 - Heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun og sveitarfélögin
Erindi frá félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, félagið mun standa fyrir málstofu um innleiðingu sveitarfélaga á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á LÝSU (http://www.lysa.is/)
Lagt fram til kynningar.
1901293 - Heimsmarkmið SÞ.pdf
8. 1908184 - Styrkbeiðni - forvarnarstarf SAMAN-hópsins 2019
Erindi frá Samanhópnum, dags. í maí, þar sem óskað er eftir fjárstuðningi við forvarnarstarf SAMAN-hópsins.
Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við erindinu.
bæjarfélög 2019.pdf
9. 1908191 - Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa D-lista - upplýsingar um minnisblöð og verðkönnun vegna leikskóla í Engjalandi
Bæjarfulltrúar meirihluta svöruðu erindinu með eftirfarandi bókun:

Forseti bæjarstjórnar hefur ekki vísað í nein minnisblöð um þessi mál, hvorki í fjölmiðlum né á fundi bæjarstjórnar. Hinsvegar skýrði forseti það út á bæjarstjórnarfundi að samkvæmt sínum upplýsingum, sem hann vissi ekki annað en væru réttar, þá hefði þáverandi sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs kallað til vinnunnar þá hönnuði sem unnu að nýjum leikskóla, Undralandi, í Hveragerði. Taldi forseti að sviðsstjóri hefði kannað verðhugmyndir þessara hönnuða og „væntanlega“ borið saman við aðra.
Það er augljóst af fundargerðum faghóps fyrir nýjan leikskóla í Engjalandi 21 að sviðsstjóri hefur kallað til vinnunnar, vegna leikskólans í Engjalandi, hönnuðateymið sem vann að leikskólanum Undralandi á árunum 2015-2017. Það er fullkomlega eðlilegt að sviðsstjóri hafi kallað til þetta teymi hönnuða, í ljósi þess að almenn umræða meðal bæjarfulltrúa hafði verið á þann veg að byggja skyldi á hönnuninni í Undralandi, sem væri í raun byggð á hönnun sömu arkitekta á Hulduheimum á Selfossi. Þetta ætti að gera til að spara bæði tíma og peninga.
Úr því ætlunin var að vinna á grunni hönnunarinnar í Undralandi var engin önnur leið fyrir sviðsstjóra en að kalla til hönnuðina að því verki, sem voru m.a. ASK arkitektar og Landhönnun. Þar sem um höfundarrétt er að ræða er ekki heimilt að kalla aðra arkitekta að vinnu með sömu hönnun og rökrétt að teymið allt verði hið sama eins og frekast er unnt.
Nú er hinsvegar komið að þeim tímapunkti að ráðast í útboð og munu tillögur þar að lútandi lagðar fyrir bæjarráð á næstunni.
Það er af öllu ljóst að Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi hefur enga aðkomu átt að vali eða ráðningu hönnuða og lágkúrulegt af Gunnari Egilssyni bæjarfulltrúa að reyna að nota veru hennar í faghópnum sem pólitískt áróðursbragð til að grafa undan trausti í hennar garð. Bæjarstjórn kaus Örnu Ír til setu í faghópnum vegna formennsku hennar í fræðslunefnd með öllum greiddum atkvæðum. Öllum bæjarfulltrúum mátti þá vera ljóst að stefnt skyldi að því að nota sömu hönnun og við Undraland í Hveragerði.

Eggert Valur Guðmundsson S-lista
Tómas Ellert Tómasson M-lista
Fyrirspurn bæjarfulltrúa D-lista um minnisblöð og verðkönnun vegna leikskóla Engjalandi.pdf
10. 1908197 - Umsögn um áhrif áfengis á Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Umsögn IOGT á Íslandi um innleiðingu Íslands á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Lagt fram til kynningar.
Umsögn um áhrif áfengis á Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.pdf
11. 1907067 - Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Keldnakotsvegar af vegaskrá
Svar frá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðrar niðurfellingar á héraðsvegi, Keldnakotsvegi (3069-01), að bænum Keldnakoti af vegaskrá.
Lagt fram til kynningar svar Vegagerðarinnar við ályktun bæjarráðs.
Svar frá Vegagerðinni.pdf
12. 1908198 - Beiðni - samstarf við endurhönnun á deiliskipulagi Einarshafnarhverfis
Erindi frá Lifandi samfélagi, dags. 25. ágúst, um hugsanlegt samstarf um uppbyggingu Einarshafnarhverfis á Eyrarbakka.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og byggingarnefndar til umfjöllunar. Einnig óskar bæjarráð eftir umsögn hverfisráðs Eyrarbakka um þessar hugmyndir.
Bréf til Árborgar 1.1.pdf
Einar V.pdf
13. 1908186 - Kæra - synjun á byggingarleyfi á Laxabakka 4
Afrit af bréfi frá Land lögmenn, dags. 22. ágúst, vegna kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna synjunar á byggingaleyfi án rökstuðnings.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðir
14. 1908007F - Félagsmálanefnd - 8
8. fundur haldinn 20. ágúst.
Fundargerðir til kynningar
15. 1901272 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands 2019
198. fundur haldinn 20. ágúst.
16. 1901176 - Fundargerðir stjórnar SASS 2019
548. fundur haldinn 16. ágúst.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica