Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 101

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
05.10.2022 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi
Rúnar Guðmundsson tók þátt um fjarfundarbúnað.


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2208249 - Austurvegur 67 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ari Guðmundsson hönnunarstjóri fyrir hönd Selfossveitna bs sækir um leyfi til að byggja hitaveitutank ásamt tæknirými. Helstu stærðir eru; 693,0 m2 og 5.166,2 m3.
Var áður á dagskrá á 99. fundi.

Deiliskipulag var birt í B-deild 22.09.2022.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.


Austurvegur 67 - A mótt.pdf
2. 2207194 - Hásteinsvegur 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sæmundur Eiríksson hönnunarstjóri f.h. Stefáns Geirs Stefánssonar sækir um byggingarheimild til að:
- Byggja bílgeymslu 59,5m2 og 199,3 m3
- Skrá geymslu/garðhús 26,2 m2 og 60,9m2
- Endurnýja utanhússklæðningu íbúðarhúss með aluzink-klæðningu í stað timburs.

Var áður til umfjöllunar á 97. fundi og á 4. fundi skipulags- og byggingarnefndar sem gerir ekki athugasemdir við áformin. Fyrir liggur undiritað samþykki nágranna.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Hásteinsvegur 22 A mótt 02.08.2022.pdf
Hásteinsvegur 22 A mótt 14.07.2022.pdf
3. 2209300 - Starengi 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Guðrúnar Lúðvíksdóttur sækir um leyfi til að byggja stakstæða bílgeymslu og sólskála. Helstu stærðir eru; 79,4 m2 og 264,4 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Deiliskipulag hefur ekki verið gert.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar og mannvirkja- og umhverfissviðs.
Starengi 9 A mótt26.09.2022.pdf
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
4. 2209301 - Boðavík 28 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Jórvíkur fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 182,6m2 og 724,0m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Lóðin telst ekki byggingarhæf skv. Reglum Árborgar um úthlutun lóða þar ekki er búið að tengja götulagnir við dreifikerfi hitaveitu og ekki liggur fyrir hvenær það verður gert. Þá hafa ákvæði samkomulags milli landeigenda og Sveitarfélagins Árborgar varðandi afhendingu byggingarlóða, samninga við veitufyrirtæki og framlagningu tímaáætlana ekki verið uppfyllt að hálfu landeiganda
Afgreiðslu frestað.
Boðavík 28 A mótt 26.09.2022.pdf
_Fylgigögn_Boðavík 28.pdf
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
5. 2209304 - Brekkuholt - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Svanur Þór Brandsson hönnuður fyrir hönd Steins Inga Árnasonar sækir um leyfi fyrir breytingum á þaki þannig að það verði hefðbundið risþak í stað valmaþaks.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1, deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Byggingarfulltrúi telur að breytingin sé óveruleg og þurfi ekki umfjöllun skipulagsnefndar sbr. byggingarreglugerð gr. 2.3.4.
Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Brekkuholt A mótt 27.09.2022.pdf
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
6. 2209305 - Björkurstekkur 1-3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Kára Helgasonar sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 394,2m2 og 1723,9m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Björkurstekkur 1-3 A mótt 26.09.2022.pdf
_Fylgigögn.pdf
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
7. 2209306 - Fossnes 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Bílasölu Suðurlands ehf. sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við iðnaðarhúsnæði. Helstu stærðir eru; 199,4m2 og 886,1m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Samþykkt deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
Fossnes 14 A mótt 26.09.2022.pdf
_Fylgigögn.pdf
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
8. 2209314 - Engjavík 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Jórvíkur fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 203,8m2 og 788,1m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Lóðin telst ekki byggingarhæf skv. Reglum Árborgar um úthlutun lóða þar ekki er búið að tengja götulagnir við dreifikerfi hitaveitu og ekki liggur fyrir hvenær það verður gert. Þá hafa ákvæði samkomulags milli landeigenda og Sveitarfélagins Árborgar varðandi afhendingu byggingarlóða, samninga við veitufyrirtæki og framlagningu tímaáætlana ekki verið uppfyllt að hálfu landeiganda
Afgreiðslu frestað.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Engjavík 17 A mótt 26.09.2022.pdf
9. 2209324 - Gagnheiði 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson hönnuður fyrir hönd Kökugerðar H.P. ehf. sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við iðnaðarhúsnæði . Helstu stærðir eru; 143,2 m2 og 535,0 m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Gagnheiði 15 mótt 27.09.2022.pdf
10. 2204321 - Búðarstígur 23 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson fyrir hönd Iron fasteignir ehf. leggur inn endurgerða uppdrætti þar sem tekið hefur verið tillit til fyrirvara í áður samþykktum byggingaráformum.
Málið var áður á dagskrá á 91. fundi. Fyrir liggur umsögn Minjaverndar og gert hefur verið grein fyrir innra skipulagi lóðar.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Búðarstígur 23 A mótt 30.9.2022.pdf
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
11. 2209318 - Heiðarstekkur 9a - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Ómar Sigurðsson leitar samþykkis Sveitarfélagsins Árborgar vegna áforma um að reisa skjólveggi á sérafnotareit við íbúð sína.
Gerð skjólveggja allt að 1,8 m að hæð sem eru fjær lóðamörkum en 1,8 m er undanþegin byggingarheimild og -leyfi skv. byggingarreglugerð gr. 2.3.5 e.
Leggja skal fram samþykki meðeigenda að Heiðarstekk 9b, 11a og 11b.
Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingaleyfi..pdf
Útskýringar og hönnun..pdf
12. 2209264 - Heiðarstekkur 8 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Guðlaug Ingibjörg Albertsdóttir tilkynnir um framkvæmdir undanþegnar byggingaleyfi vegna skjólveggja og girðinga á lóð.
Á samþykktum aðaluppdrætti er gert ráð fyrir 8,4 m2 sérafnotafleti fyrir utan íbúðir á jarðhæð. Ekki þarf að sækja um leyfi eða leita samþykkis til að setja pall á þennan flöt.

Til að gera eitthvað annað á lóðinni s.s. að setja stærri pall (eða setja skjólveggi ) þarf að afla samþykkis allra eigenda íbúða að Heiðarstekk 8 (eða samþykki húsfélags) og leggja fram hjá byggingarfulltrúa.
Umsækjandi (eigandi - einstaklingur/ fyrirtæki) - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi.pdf
13. 2209362 - Lækjarbakki 10 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Kári Jónsson og Guðborg Bjarnadóttir tilkynna samþykki nágranna að Lækjarbakka 8 og Laxabakka 9 vegna áforma um að reisa skjólgirðingu á lóðarmörkum.
Skila þarf inn samþykki nágranna að Laxabakka 7. Byggingarfulltrúi gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við áformin enda komi skjólveggurinn/girðingin ekki nær lóðarmörkum við götu/gangstétt en 0,5 m s.k.v. gr. 3.2 í Tæknilýsingu fyrir ný hverfi í Árborg og að öðru leyti farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5.
Útskýringamynd..pdf
Samþykki nágranna..pdf
14. 2209366 - Suðurbraut 33 - Umsókn um stöðuleyfi
Máni Barkarson sækir um stöðuleyfi fyrir 20 feta gámi 01.10.2022-30.09-2023 vegna fyrirhugaðra byggingarframkvæmda.

Samþykkt að veita stöðuleyfi fyrir 20 feta gámi 01.10.2022-30.09.2023 sbr. byggingarreglugerð gr. 2.6.1 b.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:45 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica