Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Eigna- og veitunefnd - 2

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
30.06.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Olga Bjarnadóttir nefndarmaður, D-lista,
Ragnar Óskarsson nefndarmaður, D-lista,
Matthías Bjarnason nefndarmaður, B-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson nefndarmaður, S-lista,
Ingunn Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Atli Marel Vokes sviðsstjóri, Hákon Garðar Þorvaldsson veitustjóri.
Fundargerð ritaði: Atli Marel Vokes, Sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2210290 - Gjaldskrár mannvirkja- og umhverfissviðs
Farið yfir gjaldskrár vatns- og hitaveitu.
Nefndin samþykkir hækkuna á gjaldskrám vatns- og hitaveitu í samræmi við ákvæði þeirra um vísitölubreytingar í júní ár hvert.
Nefndin samþykkir að vísa gjaldskrá vatnsveitu til samþykktar í bæjarstjórn og að vísa gjaldskrá hitaveitu til samþykktar hjá Umhverfis, - orku- og loftslagsráðuneytinu.
2. 2604308 - Endurgerð á ráðhúströppum
Farið yfir niðurstöðu útboðs.
Einungis barst eitt tilboð í framkvæmdina.

Vörðufell ehf. 109.733.373 kr. 58% yfir kostnaðaráætlun
Kostnaðaráætlun: 69.317.574 kr.

Nefndin samþykkir að nýta sér ákvæði 0.4.6 í útboðsgögnum þar sem áskilinn er réttur til að hafna tilboðum sem eru yfir 10 % af kostnaðaráætlun og felur sviðsstjóra að bjóða verkið út aftur í haust.

3. 2006052 - Bygging grunnskóla í Björkurstykki - Stekkjaskóli
Farið yfir skilmála frumhönnunar 3.áfanga Stekkjaskóla
Sviðsstjóra falið að semja við hönnunarteymi um frumhönnun 3.áfanga Stekkjaskóla.
Erindi til kynningar
4. 21044712 - Ný Ölfusárbrú
Framvinduskýrsla 005 lögð fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.
5. 2606298 - Led-væðing gatnalýsingar
Farið yfir verðfyrirspurn vegna innkaupa á Led lömpum í sveitarfélaginu
Lagt fram til kynningar væntanleg innkaup á um 300 led lömpum sem hluti af ledvæðingu gatnalýsingar í Árborg.
6. 2308149 - Launaáætlun mannvirkja- og umhverfissviðs
Farið yfir drög launaáætlunar sviðsins fyrir 2027
Sviðsstjóri fór yfir drög að launaáætlun sviðsins fyrir árið 2027.
7. 2406376 - Staða orkuöflunar
Farið yfir stöðu orku- og vatnsmála í sveitarfélaginu.
Veitustjóri fór yfir stöðu orkuöflunar í sveitarfélaginu.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:55 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica