Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 140

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
16.10.2024 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2201383 - Bæjartröð 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson hönnunarstjóri f.h. Jón Reynir Jónsson sækir um leyfi til að byggja hesthús. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 85 og var frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Helstu stærðir: 154,4 m2 og 631,2 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1.
Framlögð gögn eru ófullnægjandi.
Frestað
2. 2410138 - Hafnarbrú 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnunarstjóri f.h. Björgunarsveitina Björg Eyrarbakka sækir um leyfi til að byggja aðstöðuhús.
Helstu stærðir: 543,4 m2 og 3.226,7 m3.

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd
3. 2409105 - Norðurslóð 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Gunnar Örn Sigurðsson hönnunarstjóri fyrir hönd Ólafshaga ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 138 og var því frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Helstu stærðir eru; 263,6m² & 1429,8m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 1911148 - Suðurleið 29 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Svanur Þór Brandsson hönnunarstjóri f.h. Lilju Ómarsdóttur sækir um leyfi til að byggja bílskúr.
Helstu stærðir: 166,8 m2 og 940,7 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
5. 2410191 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Box800 ehf.að Eyravegi 57
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Box800 að Eyravegi 57. Uppdráttur aðstöðu til líkamsræktar liggur fyrir.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
6. 2410192 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir söluturninn King Kong að Eyraveg 15
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna útgáfu starfsleyfis fyrir söluturninn King Kong að Eyraveg 15.
Uppdráttur af verslunarrými liggur ekki fyrir, afgreiðslu frestað.
Frestað
7. 2408055 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Snyrti Barinn að Heiðarvegi 5
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna starfsleyfisumsóknar frá Friðsemd Steinarsdóttur vegna reksturs nagla- og hárstofunnar Snyrti Barinn að Heiðarvegi 5.
Erindinu er vísað til skipulagsnefndar
Vísað í nefnd

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica