Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 49

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
04.12.2024 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar,
Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista,
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Helga Lind Pálsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir bæjarfulltrúi, Á-lista,
Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2206047 - Breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar kjörtímabilið 2022-2026
Fyrri umræða.
Tillaga frá 108. fundi bæjarráðs, liður 3. Breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar kjörtímabilið 2022-2026.

Lagðar eru fram tillögur að breytingum á samþykktum Sveitarfélagsins Árborgar um stjórn og fundarsköp ásamt viðauka við samþykktirnar. Breytingarnar eru til að skýra fullnaðarafgreiðsluheimildir sveitarfélagsins og gera breytingar er snúa að nefndaskipan.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að klára tillögur að breytingunum á samþykktunum og viðaukanum í samræmi við umræður á fundinum og vísi til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Lagt er til við bæjarstjórn að vísa samþykktunum til síðari umræðu.

Er tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
2. 2411247 - Reglur - styrkur til náms í leikskólakennarafræðum í Árborg
Tillaga frá 16. fundi fræðslu- og frístundanefndar frá 27. nóvember sl. liður 4. Reglur - styrkur til náms í leikskólakennarafræðum í Árborg.

Breyting á reglum um styrk til náms í leikskólakennarafræðum til afgreiðslu.

Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir reglubreytingarnar fyrir sitt leiti samhljóða og vísar erindinu áfram til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Til máls tók Brynhildur Jónsdóttir, D-lista.

Reglurnar eru bornar undir atkvæði og samþykktar samhljóða með 11 atkvæðum.
Reglur um styrki til náms í leikskólakennarafræðum í sveitarfélaginu Árborg Nýjasta (1).pdf
3. 2312151 - Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar I. á ASK 2024
Tillaga frá 37. fundi skipulagsnefndar, frá 27. nóvember sl. liður 1.
Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar I. á ASK 2024.
Mál áður á dagsskrá skipulagsnefndar 6. nóvember.
Gerð hefur verið smávægileg breyting á greinargerð.
Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar I. á ASK 2024.
Sveitarfélagið Árborg hefur haft til meðferðar breytingu á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Nokkrar breytingar eru gerðar á aðalskipulaginu, sem snúa einkum að þéttbýlinu á Selfossi, ásamt breytingum á landbúnaðarsvæði og nýju svæði fyrir samfélagsþjónustu í dreifbýli.
Um er að ræða eftirtaldar breytingar á greinargerð og uppdráttum:
1. Miðsvæðið M3 breytist í íbúðarbyggð. Heimilt er að vera með hverfisverslun á lóðum næst hringtorgi Eyrarvegar og Suðurhóla.
2. Athafnasvæði fyrir utan á. Unnið er að deiliskipulagi athafnasvæðis AT2. Gerðar eru lítilsháttar breytingar á afmörkun afþreyingar- og ferðamannasvæðis AF6 vegna þess og skógræktar- og landgræðslusvæðis SL1.
3. Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ8 og þeim hluta samfélagsþjónustu S5 sem nær til leikskólans Glaðheima er breytt í miðsvæði.
4. Iðnaðarsvæðinu I1 er að hluta til breytt í verslunar- og þjónustusvæði.
5. Sett er inn iðnaðarsvæði I21 og I22 fyrir borholur hitaveitu fyrir utan á. Einnig iðnaðarsvæði I23 fyrir borholur hitaveitu á suðurbakka Ölfusár.
6. Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ11 er breytt í athafnasvæði.
7. Íbúðarbyggðinni ÍB27 er breytt til baka í athafnasvæði (AT5), eins og var í eldra skipulagi.
8. Á hluta af opnu svæði OP1, norðan við Sunnulækjarskóla, er heimilt að útbúa aðstöðu fyrir skátana.
9. Skilmálum fyrir miðsvæðið M5 er breytt og byggingar lækkaðar.
10. Skilmálum fyrir miðsvæðið M6 er breytt og byggingar lækkaðar.
11. Sýslumannstúninu er breytt úr íbúðarbyggð í opið svæði.
12. Syðsta hluta Votmúla 1, Lóustaða 1 og Votmúla 3 er breytt úr landbúnaðarsvæði L2 í L3.
13. Sett er inn nýtt svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Stóra-Hrauns og minnkar landbúnaðarsvæði samsvarandi.
14. Settir eru skilmálar fyrir skuggavarp og vindvist. 15. Endurskoðuð er afmörkun svæða sem vinna á rammahluta aðalskipulags fyrir.
Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda skilmálar eldra aðalskipulags, með síðari breytingum.
Lýsing á verkefninu hefur verið kynnt/auglýst í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 28. febrúar til 26. mars 2024. Óskað var eftir umsögnum umsagnaraðila. Tillagan hefur verið kynnt í samræmi við
2. mgr. 30.gr. skipulagslaga með auglýsingum í blöðum, auk þess að vera aðgengileg á heimasíðu Árborgar og skipulagsgátt.is. Kynningartími tillögu var frá 19. júní til 10. júlí 2024. Á fundi bæjarstjórnar Árborgar þann
21. ágúst 2024 var tillagan samþykkt til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og til athugunar hjá Skipulagsstofnun í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga. Breytingin var send Skipulagsstofnun til athugunar með bréfi dags. 22. ágúst 2024, þar sem óskað er eftir heimild til auglýsingar. Athugun Skipulagsstofnunar barst
skipulagsfulltrúa Árborgar með bréfi dags. 19.9.2024, þar sem nokkrar athugasemdir eru gerðar við greinargerð og stafræn gögn. Óskaði stofnunin eftir viðbrögðum við athugasemdum áður en tillagan yrði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga. Athugasemdir Skipulagsstofnunar innan greinargerðar snúa að skipulagsákvæðum vegna hámarksfjölda íbúða á landnotkunarreitum og áætlað heildarbyggingarmagn þar sem áformuð uppbygging er. Bent er á að samræma þurfi upplýsingar um áætlaðan heildarfjölda íbúða og óbyggðra íbúða fyrir ÍB7, fella þarf út ákvæði fyrir VÞ11 og að lokum vísa í nýju Landsskipulagsstefnuna 2024-2038.
Athugasemdir vegna stafrænna gagna snúa að því að samræma þurfi upplýsingar stafrænna gagna um stærð andnotkunarreita við það sem kemur fram í greinargerð og taka fram heildarfjölda heimilla íbúða en ekki fjölda óbyggðra íbúða. Einnig þarf að taka fram heildarbyggingarmagn og setja á stærð landnotkunarreita fram í hekturum (ha) með einum aukastaf.
Bætt hefur verið í greinargerð Aðalskipulags Árborgar 2020-2036, frá því að athugun skipulagsstofnunar barst.
Bætt var við umfjöllun um vatnaáætlun og vatnshlot. Í umhverfismatsskýrslu var bætt við mati á áhrifum á vatn og gróður og dýralíf. Unnið er að deiliskipulagi svæðis fyrir samfélagsþjónustu á Stóra-Hrauni og stækkar það svæði úr um 69 ha í um 114 ha vegna nákvæmari útfærslu. Settir eru ýtarlegri skilmálar fyrir uppbyggingu og að forðast skuli
að raska stærra landi en nauðsyn krefur.

Viðbrögð skipulagsnefndar við athugun skipulagsstofnunar dags.
19.9.2024: Um athugasemdir greinargerðar: Í gildandi aðalskipulagi er ekki fjallað um hámarksfjölda íbúða heldur aðeins mögulegan fjölda nýrra íbúða. Það verði einnig gert í aðalskipulagsbreytingunni. Áætlaður fjöldi nýrra íbúða á ÍB7 verður leiðréttur. Ákvæði fyrir verslunar- og þjónustusvæðið VÞ11 verða felld út og verður þar vísað í nýja
Landskipulagsstefnu. Um athugasemdir stafrænna gagna: Ekki verður tekið fram heildarbyggingarmagn. Ekki sé þörf á breytingu á samræmingu upplýsinga um stærð landnotkunarreita, en stærð þeirra er sú sama og í stafrænum gögnum og í greinargerð, einnig fyrir I1 og AF6. Ekki er talin þörf á breytingu vegna stærð landnotkunarreita í hekturum með einum aukastaf, þar sem það er nú þegar sett fram á þann hátt. Í eigindatöflu dettur út aukastafur ef hann er 0.

Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti þær breytingar sem fram hafa komið á tillögunni og einnig viðbrögð við athugun Skipulagsstofnunar, og mælist til við bæjarstjórn Árborgar að samþykkja ofangreindar breytingar og viðbrögð við athugun Skipulagsstofnunar á breyttu Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 til auglýsingar, í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista og Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur til að málinu verði frestað og aðalskipulagsbreytingin verði kynnt á fundi með bæjarfulltrúum.

Tillaga Sigurjóns VÍdalíns Guðmundssonar borin undir atkvæði, tillagan felld með 6 atkvæðum, með 1 atkvæði Á-lista og 5 atkvæðum D-lista á móti 2 atkvæðum S-lista, 2 atkvæðum B-lista og 1 atkvæði Fjólu St. Kristinsdóttur, D-lista.

Viðbrögð bæjarstjórnar Árborgar við athugun skipulagsstofnunar dags. 19.9.2024:
Um athugasemdir greinargerðar:
Í gildandi aðalskipulagi er ekki fjallað um hámarksfjölda íbúða heldur aðeins mögulegan fjölda nýrra íbúða. Það verði einnig gert í aðalskipulagsbreytingunni. Áætlaður fjöldi nýrra íbúða á ÍB7 verður leiðréttur. Ákvæði fyrir verslunar- og þjónustusvæðið VÞ11 verða felld út og verður þar vísað í nýja Landskipulagsstefnu.
Um athugasemdir stafrænna gagna:
Ekki verður tekið fram heildarbyggingarmagn. Ekki sé þörf á breytingu á samræmingu upplýsinga um stærð landnotkunarreita, en stærð þeirra er sú sama og í stafrænum gögnum og í greinargerð, einnig fyrir I1 og AF6. Ekki er talin þörf á breytingu vegna stærð landnotkunarreita í hekturum með einum aukastaf, þar sem það er nú þegar sett fram á þann hátt. Í eigindatöflu dettur út aukastafur ef hann er 0.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir þær breytingar sem fram hafa komið á tillögunni og einnig viðbrögð við athugun Skipulagsstofnunar á breyttu Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 til auglýsingar, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan samþykkt með 6 atkvæðum, 1 atkvæði Á-lista og 5 atkvæðum D-lista á móti 1 atkvæði Sigurjóns Vídalín Guðmundssonar, S-lista. Bæjarfulltrúar B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista sátu hjá við afgreiðslu.
Athugun Skipulagsstofnunar v.auglýsingar 19.9.2024, ASKbreyting I.pdf
109018 ASKBR Breytt skipulag Selfossi.pdf
109018-ASKBR-Gildandi skipulag Selfossi.pdf
109018-ASKBR-Gildandi og breytt skipulag dreifbýli.pdf
109018-01-GRG-V03-Selfoss og dreifbýli ask breytingar.pdf
4. 2411188 - Miðbær Selfoss. Tryggvatorg og árbakkasvæði - Dælustöð - DSK.Br.
Tillaga frá 37. fundi skipulagsnefndar frá 27. nóvember sl. liður 3. Miðbær Selfoss. Tryggvatorg og árbakkasvæði - Borholuhús. DSK.Br.
Erla Bryndís Kristjánsdóttir, Verkís f.h. Selfossveitna leggur fram tillögu að breytingu deiliskipulags miðbæjar Selfoss, Tryggvatorg og Árbakkasvæði skv. meðfylgjandi uppdrætti og greinargerð dags. 14.11.2024. Breytingin tekur til vestasta hluta gildandi deiliskipulags og er svæðið um 0,37 ha að stærð. Afmörkuð er 334 m2 lóð fyrir nýja dælustöð fyrir vinnslu og dælingu jarðhitavatns úr borholu SE45. Lóðin er í minnst 10m fjarlægð frá árbakka og er byggingarreitur afmarkaður 2m frá lóðarmörkum. Tildrög breytingarinnar er aukin þörf fyrir afhendingu heitavatns á Selfossi vegna mikillar uppbyggingar og íbúafjölgunar. Nýtanlegt jarðhitavatn hefur fundist með borun holu SE45 á bökkum Ölfusár innan marka deiliskipulagsins.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingartillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. sömu laga, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna skv. 43. gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41. gr. sömu laga.

Til máls tók Sveinn Ægir Birgisson, D-lista.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir breytingartillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að tillagan verði auglýst skv. 41 gr. sömu laga.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
24125-001-DSK miðbæjar - BR SE45 (ID 437081).pdf
5. 2302244 - Eyravegur 42 - 44. - Deiliskipulag verslunar- og þjónustu auk íbúðabyggðar
Tillaga frá 37. fundi skipulagsnefndar frá 27. nóvember sl. liður 5.
Eyravegur 42 - 44. - Deiliskipulag verslunar- og þjónustu auk íbúðabyggðar.
Lagfærð gögn vegna deiliskipulags verslunar- og þjónustu auk íbúðarbyggðar við Eyraveg 42-44 eru hér lögð fram á ný eftir afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Tillagan var auglýst fyrst frá 20.12.2023 til 31.1.2024.
Engar almennar athugasemdir bárust á þeim tíma. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni. Vegagerðin gerði athugasemd við tillöguna í umsögn sinni dags. 9.1.2023, þar sem ekki var fallist á nýja aðkomu inn á lóð 44 við Eyraveg. Í kjölfarið var breytt tillaga lögð fram sem gerir ráð fyrir að aðkoma að lóð 44 verði frá Fossvegi. Þá hafði
uppstillingu byggingarklasa fyrir lóð 44 verið snúið við, þannig að opið svæði innan lóðar snúi að Eyravegi.
Tillagan var í framhaldi auglýst á ný frá 19.06.2024 til 31.07.2024. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni. Vegagerðin gerði athugasemd við tillöguna með bréfi dags.
18.7.2024, sem bendir á fyrri umsögn Vegagerðar frá 09.01.2024, þar sem fjallað er um aðkomur af Eyrarbakkavegi og leggur Vegagerðin til að syðri aðkoma að Eyrarvegi 42 verði lögð af. Tillagan er lögð fyrir skipulagsnefnd að nýju, þar sem villa var í bókun fundar skipulagsnefndar 14.8.2024. Skipulagsnefnd hefur komið til móts við fyrri athugasemdir Vegagerðarinnar og fært aðkomu að Eyravegi 44 inn á Fossveg. Nefndin telur að athugasemdir í umsögn Vegagerðarinnar dags. 18.7.2024 muni rýra verulega gæði lóðarinnar Eyravegur 42.
Við lóðina hafa í gegnum tíðina verið tvær aðkomur og hafa þær þjónað vel tilgangi verslunar á lóðinni. Skipulagsnefnd telur að með því að hafa einungis útakstur af syðri aðkomu muni það bæta umferðarflæði frá lóð og auka öryggi
Tillagan var send til afgreiðslu Skipulagsstofnunar með bréfi dags.
5.9.2024 og niðurstaða bæjarstjórnar Árborgar auglýst í Dagskránni, Lögbirtingablaði og á heimasíðu Árborgar dags. 19.9.2024.
Skipulagsstofnun bendir á nokkra þætti sem þarf að bregðast við áður en hægt er að samþykkja deiliskipulag í B-deild Stjórnartíðinda með bréfi dags. 26.9.2024. Gera þurfi grein fyrir umhverfismati áætlunarinnar og niðurstöðu í greinargerð, niðurstöðu kortlagningar af hávaða, samræma upplýsingar um heimilaðan fjölda íbúða og setja fram í skilmálatöflu heimilað byggingarmagn ofan- og neðanjarðar, þar sem gert er ráð fyrir
bílakjöllurum.
Komið hefur verið til móts við ábendingar Skipulagsstofnunar með uppfærðum uppdrætti, hljóðvistargreiningu og umhverfisskýrslu og eru báðar skýrslur lagðar fram í skipulagsnefnd skv. meðfylgjandi gögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir framkomið minnisblað um hljóðvistargreiningu og umhverfisskýrslu auk uppfærslu á uppdrætti og greinargerð skipulagsins.

Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Komið hefur verið til móts við ábendingar Skipulagsstofnunar með uppfærðum uppdrætti, hljóðvistargreiningu og umhverfisskýrslu og eru báðar skýrslur lagðar fram í bæjarstjórn Árborgar skv. meðfylgjandi gögnum.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir framkomið minnisblað um hljóðvistargreiningu og umhverfisskýrslu auk uppfærslu á uppdrætti og greinargerð skipulagsins. Bæjarstjórn Árborgar samþykkir tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 9 atkvæðum, bæjarfulltrúar S-lista sátu hjá.
Afgreiðsla Skipulagsstofnunar 26.9.2024, Eyravegur 42-44 DSK.pdf
22-014-2.90.01 Deiliskipulagsuppdráttur Eyrarvegur 42-44 20241115.pdf
6. 2410079 - Austurvegur 61-63. - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 37. fundi skipulagsnefndar frá 27. nóvember sl. liður 7. Austurvegur 61-63. - Deiliskipulagsbreyting.
Kristinn Ragnarsson f.h. Reyrus ehf. leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 61 og 63 á Selfossi. Á lóðinni Austurvegur 61 stendur einnar hæða íbúðarhús með risi ásamt stakstæðri bílgeymslu og á lóðinni Austurvegur 63 stendur tveggja hæða tvíbýlishús ásamt stakstæðri bílgeymslu. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðunum verði rifnar og lóðirnar sameinaðar í eina lóð. Gert er ráð fyrir byggingu á 3-4 hæða fjölbýlishúsi auk kjallara. Fjöldi íbúða allt að 21 . Þá er einnig gert ráð fyrir bílgeymslu neðanjarðar fyrir 20 bíla og 4 bílastæðum ofanjarðar ásamt leiksvæði. Fyrir liggur skuggavarpsgreining sem sýnir áhrif, bæði af 3 hæðahús og 4 hæða húsi.

Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingartillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. sömu laga, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna skv. 43. gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41. gr. sömu laga. Skipulagsnefnd telur að þar sem lágreist byggið standi nærri skipulagsmörkun sé nauðsynlegt að íbúum við Heiðmörk verði kynnt tillagan sérstaklega.

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista.

Bragi Bjarnason leggur til að málinu verði frestað og vísað aftur til frekari úrvinnslu byggingar- og skipulagsnefndar.

Tillaga Braga Bjarnason er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Austurvegur 61-63 DSK.br. - Tillaga dags. 23.11.2024.pdf
7. 2411340 - Breytingar á reglum um akstursþjónustu við fatlað fólk
Tillaga frá 13. fundi velferðarnefndar frá 28. nóvember, liður 8.
Breytingar á reglum um akstursþjónustu við fatlað fólk
Lagt er fyrir Velferðarnefnd uppfærðar reglur um akstursþjónustu fatlaðra.
Velferðarnefnd tekur undir mikilvægi þess að sett séu inn ákvæði um aðstoð fylgdarmanna í ferðaþjónustu fatlaðra. Að mati nefndarinnar er þjónustan mikilvæg viðbót við þjónustu við fatlaða og er ætlað að auka tækifæri þeirra til að taka þátt í samfélaginu og lifa sjálfstæðu lífi.

Velferðarnefnd samþykkir reglurnar og felur deildarstjóra að útfæra verklag varðandi mat á fylgd í ferðaþjónustu. Velferðarnefnd vísar þeim til bæjarstjórnar til samþykktar.

Til máls tók Helga Lind Pálsdóttir, D-lista.

Reglurnar eru bornar undir atkvæði og samþykktar samhljóða með 11 atkvæðum.
Uppfærðar reglur um akstursþjónustu fatlaðra 26.11.2024.pdf
8. 2401306 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2024
Viðauki nr. 8.
Á 108. fundi bæjarráðs, 21. nóvember sl. var tekinn fyrir viðauki nr. 8 og eftirfarandi bókað: Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024 vegna uppgjörs á samningi um Bankann - vinnustofu sem gerður var 1. júlí 2021.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 9.285.000. Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 9.285.000,- og er því rekstrarafgangur í A hluta kr. - 976.680.000,-.
Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 9.285.000,- og er því rekstrarafgangur samantekins A og B hluta kr.-68.996.000,-
Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Viðauki 8 fjárhagsáætlun 2024.pdf
9. 2411097 - Gjaldskrár 2025
Síðari umræða.

1) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir frístundaheimili, frístundaklúbba og sumarfrístund 2025
2) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir leikskólum Árborgar 2025
3) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir fæði í grunnskólum Árborgar 2025
4) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Árborg 2025
5) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir bókasöfn Árborgar 2025
6) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir félagslega stuðningsþjónustu í Árborg 2025
7) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir leigubílaakstur aldraðra í Árborg 2025
8) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir Grænumörk 5 og Austurveg 51 2025
9) Tillaga að breytingu á gjaldskrá húseigna 2025
10) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir sundstaði í Árborg 2025
11) Tillaga að breytingu á gjaldskrá íþróttahúsa í Árborg 2025
12) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir heimsendan mat í Árborg 2025
13) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir fánaborgir 2025
14) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir skipulags- og byggingardeild 2025
15) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir fráveitu (tæming rotþróa) í Árborg 2025
16) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir sorphirðu í Árborg 2025
17) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir gámasvæði Árborgar 2025
18) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir Selfossveitur 2025
19) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir vatnsveitu 2025

Lagt er til að gjaldskrárnar verði samþykktar.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillaga að gjaldskrám 2025 eftir atvikum með áorðnum breytingum eru bornar undir atkvæði og samþykktar með alls 9 atkvæðum, 6 atkvæðum D-lista, 1 atkvæði Á-lista og 2 atkvæðum B-lista. Bæjarfulltrúar S-lista sitja hjá.

Gjaldskrá 2025 frístund og sumarfrístund.pdf
Gjaldskrá leikskóla 2025.pdf
Gjaldskrá fyrir fæði í grunnskólum í Árborg 2025.pdf
Gjaldskrá hunda og kattahald 2025.pdf
Gjaldskrá Bókasafna Árborgar 2025.pdf
Gjaldskrá fyrir félagslega stuðningsþjónustu 2025.pdf
Gjaldskrá fyrir leigubílaakstur aldraðra í Árborg 2025.pdf
Gjaldskrá fyrir útleigu eigna við Grænumörk og Austurveg - 2025.pdf
Gjaldskrá húseigna(kennslustofur, íþróttasalur og fl) 2025.pdf
Gjaldskrá Sundlauga Árborgar frá 1.jan 2025_2.pdf
Gjaldskrá - Íþróttahús í Árborg 2025.pdf
Gjaldskrá fyrir heimsendan mat í Árborg 2025.pdf
Leiga á fánaborgum ofl - 2025.pdf
Gjaldskrá skipulags- og byggingadeildar Árborgar 2025_2.pdf
Gjaldskrá vegna fráveitu í Árborg 2025_2.pdf
Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs og sorphirðu í Árborg 2025_1.pdf
Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs og gámasvæði í Árborg 2025_1.pdf
Gjaldskrá Selfossveitna fyrir heitt vatn 2025_2.pdf
Gjaldskrá vatnsveitu Árborgar 2025_2.pdf
10. 2410311 - Fjárhagsáætlun 2025-2028
Síðari umræða.

Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja fjárhagsáætlun 2025-2028.

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Ellý Tómasdóttir, B-lista.

Fundarhlé er tekið kl. 18:14.
Fundi fram haldið kl. 18:19.

Fundarhlé er tekið kl. 18:43.
Fundi fram haldið kl. 18:52.

Fjárhagsáætlun 2024 og 3ja ára áætlun eru bornar undir atkvæði og samþykktar með 7 atkvæðum, 6 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista. Bæjarfulltrúar B-lista og S-lista sitja hjá.

Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:
Eftir krefjandi rekstrarár, erfiðar aðgerðir og endurskipulagningu í rekstri sveitarfélagsins er sá viðsnúningur sem átt hefur sér stað á fjárhag Sveitarfélagsins Árborgar síðustu tvö ár ekkert minna en kraftaverk!
Það er mikilvægt að rifja upp þann tímapunkt vorið 2023 þegar bæjarfulltrúar voru boðaðir á fund með ráðgjöfum og eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga en á þessum tíma var staða sveitarfélagsins grafalvarleg, ekkert handbært fé og lítill sem enginn aðgangur að lánsfé enda sveitarfélagið þá nýbúið að skila ársreikningi fyrir árið 2022 og komið yfir 150% viðmiðið. Í framhaldinu skrifuðu allir bæjarfulltrúar undir skjal þar sem þeir staðfestu að álag yrði lagt á íbúa sveitarfélagsins Árborgar til eins árs, enda ekki hægt að sækja um slíka heimild nema eitt ár í senn!
Það var öllum ljóst að mikilvægt væri að staðfesta það að álag yrði lagt á! fyrst og fremst til að sýna fjárfestum og lánastofnunum fram á að þannig myndum við auka framlegð og bæta reksturinn samhliða fjölgun íbúa. Við vitum það jú öll að það er erfitt að sækja um lán ef þú ert yfir veðsettur.
Þetta sumar náðum við að hækka yfirdrátt til að eiga fyrir launum, við náðum að veðsetja eignir í söluferli til að eiga fyrir launum, við sóttum 500 milljónir. kr. á markaði auk þess sem Lánasjóðurinn kom inn með viðbótarlán um haustið. Á þessum tímapunkti vorum við bundin í risa framkvæmd við Stekkjaskóla, áfanga tvö svo útgjöld voru vel rúmlega það sem kallast hefðbundin rekstrargjöld.
Það er hins vegar alveg ljóst að heimild til að setja álag á íbúa fékkst aðeins til eins árs og var umræða okkar bæjarfulltrúa að álagið fær af um leið og aðstæður leyfðu. Það voru mér því mikil vonbrigði eftir að sex mánaða uppgjör ársins 2024 lá fyrir, að ekki væri farið í það af fullum þunga að aflétta álagi.
Það má alveg spyrja sig hvort það sé löglegt að halda álagi á íbúa árið 2024 til streitu þegar sveitarfélagið er sannarlega komið undir 150% skuldviðmið A og B hluta skv. jafnvægis- og skuldareglu sveitarstjórnarlaga.
Kjörnir fulltrúar bera ábyrgð á fjárhag sveitarfélags og samkvæmt 63.gr sveitarstjórnalaga er óheimilt að víkja frá fjárhagsáætlun en það á þó ekki að koma í veg fyrir sveigjanleika í fjármálastjórnun sveitarfélaga eða því að bæjarstjórn geti brugðist við nýjum forsendum.
Það er allra hagur að rekstrarafkoma sveitarfélagsins sé jákvæð og traust en þannig veitum við íbúum sem allra besta þjónustu en á sama tíma viljum við að álögum á íbúa sé haldið í lágmarki eins og hægt er hverju sinni!
Ég samþykki fjárhagsáætlun ársins 2025, en lýsi um leið yfir miklum vonbrigðum með það að álagi hafi ekki verið aflétt strax í lok sumars þegar ljóst var að rekstrarafkoma Sveitarfélagsins er langt umfram áætlanir.
Að lokum vill ég þakka öllu starfsfólki og nefndarfólki sveitarfélagsins fyrir frábæra vinnu við gerð fjárhagsáætlunar en sú vinna sem á sér stað við gerð slíkrar áætlunar er yfirgripsmikil nákvæmnisvinna sem er ekki sjálfgefin.

Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi D-lista

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur fram eftirfarandi bókun:

Í ljósi þessa að jöfnuður er að nást í fjárhag Sveitarfélagsins þá er ljóst að innheimta á viðbótarútsvari frá Íbúum Árborgar vegna tekjuársins 2025 er ekki lengur heimil eins og fram kom í bréfi frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga til bæjarstjórnar á haustmánuðum 2024.
Á árinu 2023 var skuldaviðmið sveitarfélagsins komið undir 150% lögboðið hámark, langt á undan áætlun, og því ljóst að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024 - 2027 sem tók mið af ráðgjöf KPMG og fulltrúum eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga voru rangar sem leiddu til mjög íþyngjandi aðgerða sem m.a. fólst í álagningu á útsvar íbúa sveitarfélagsins vegna tekjuársins 2024 og kemur til greiðslu 1. júní 2025.
Það er umhugsunarefni að íbúar í Sveitarfélaginu Árborg skyldu vera einu íbúarnir sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga gekk jafn hart gegn, og raun varð á, með kröfu á álagningu viðbótarútsvars, þrátt fyrir að þriðjungur sveitarfélaga í landinu væru yfir 150% skuldaviðmiðinu.
Í því ljósi leggja undirritaðir bæjarfulltrúar til að horfið verði alfarið frá innheimtu á viðbótarútsvari frá íbúum fyrir árið 2024 og fundin leið, í samstarfi við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, til að endurgreiða Jöfnunarsjóði sveitarfélaga viðbótarframlagið á næstu 5 ? 10 árum sem greitt var til Sveitarfélagsins Árborgar 2024, þannig að ekki þurfi að koma til innheimtu þess þann 1. júní 2025.
Undirritaðir bæjarfulltrúar hvetja meirihluta bæjarstjórnar að leita skynsamlegra leiða til aukinnar hagræðingar og skilvirkni í rekstrinum. Það eru því enn á ný mikil vonbrigði að laun formanns bæjarráðs hafi ekki verið lækkuð til samræmis við það sem þau voru áður og eins og til stóð í fjárhagsáætlunarvinnu ársins 2024. Það orkar því tvímælis og sætir furðu að finnast í lagi að hafa haft dagdvölina Árblik lokaða í sumarfríi 2024 í sparnaðarskyni en finnast áfram sanngjarnt að greiða formanni bæjarráðs 42% af þingfarakaupi í stað 21% eins og var þegar meirihluti D-lista komst til valda.
Undirritaðir bæjarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Undirrituð vilja koma á framfæri þakklæti til starfsfólks sveitarfélagsins fyrir þeirra mikilsverða framlag við fjárhagsáætlunargerðina og margar góðar tillögur til þess að bæta rekstur Svf. Árborgar.

Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi B-lista
Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi B-lista
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi S-lista
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi S-lista

Bragi Bjarnason, D-lista leggur fram eftirfarandi bókun:
Hér liggur fyrir samþykkt fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árin 2025-2028. Það er bæjarfulltrúum D- og Á-lista gleðilegt að geta tekið af viðbótarálag á útsvar íbúa ári fyrr en áætlað hafði verið. Í fjárhagsáætluninni er lögð áhersla á að tryggja grunnþjónustu við íbúa á öllum aldri og leitast við að forgangsraða velferð.
Þrátt fyrir góðan árangur á árinu verðum við áfram að gæta aðhalds í rekstrinum, forgangsraða og selja eignir til að viðhalda traustum rekstri til framtíðar. Árangurinn sýnir um leið að stefna bæjarstjórnar er að virka. Við viljum standa við loforðið að snúa rekstri sveitarfélagsins til betri vegar en um leið lækka álögur á íbúa í samræmi við það svigrúm sem rekstur sveitarfélagsins leyfir.
Bæjarfulltrúar D- og Á-lista sem skipa meirihluta bæjarstjórnar vilja þakka öllum þeim sem hafa komið að vinnunni og lagt ómetanlegt framlag til verksins. Gleðjumst yfir áfanganum en höldum fókus á stefnuna að ná meiri árangri fyrir Árborg okkar allra.

Bragi Bjarnason, D-lista
Kjartan Björnsson, D-lista
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista
Helga Lind Pálsdóttir, D-lista
Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista
Fjárhagsáætlun 2025 - 2025_ til birtingar.pdf
Fjárhagsáætlun 2025-2028 - kynning uppfært 4.des´24.pdf
Fundargerðir
11. 2411013F - Bæjarráð - 108
108. fundur haldinn 21. nóvember.
Til máls tók Brynhildur Jónsdóttir, D-lista.
12. 2411020F - Bæjarráð - 109
109. fundur haldinn 28. nóvember.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:06 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica