|
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista, Linda Björk Hilmarsdóttir varamaður, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista, Ellý Tómasdóttir varaáheyrnarfulltrúi, B-lista, Heiðrún Kristmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista, Bragi Bjarnason bæjarstjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri |
|
Matthías Bjarnason, B-lista og Brynhildur Jónsdóttir, D-lista boðuðu forföll og í þeirra stað komu Ellý Tómasdóttir, B-lista og Linda Björk Hilmarsdóttir, D-lista inn á fundinn. |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2606314 - Rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar |
| Bæjarráð samþykkir framlagðan samning við Strategíu ehf., um stjórnsýsluúttekt Sveitarfélagsins Árborgar. Jafnframt er bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 2. 2601307 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2026 |
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2026.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Sveitarfélagsins Árborgar (A og B hluta) er neikvæð um kr. 10.000.000,- og lækkar rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta um kr. 10.000.000,- og er áætlaður kr. 174.288.000,-. Áhrif viðaukans á A hluta er neikvæð um kr. 10.000.000,- og lækkar því handbært fé um kr. 10.000.000,- eftir að viðauki er samþykktur. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 3. 2608093 - Víkurheið 13; Beiðni um úthlutun - afnot; Geymslusvæði |
| Bæjarráð tekur undir með skipulagsnefnd um framlagðar áætlanir um beiðni um afnot af lóðinni Víkurheiði 13 fyrir geymslusvæði. Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að afnotasamningi vegna lóðarinnar og leggja fyrir bæjarráð. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 4. 2606021 - Húsnæði undir frístundastarf - Eyravegur 42 |
| Bæjarráð vísar framlögðum leigusamning við Eik fasteignafélag hf., vegna húsnæðis undir frístundastarf að Eyravegi 42 til staðfestingar hjá bæjarstjórn. Bæjarráð veitir bæjarstjóra umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 5. 2608215 - Útboð - raforka fyrir Sveitarfélagið Árborg |
| Bæjarráð samþykkir að fara í örútboð á raforku innan rammasamnings no. 22088 Raforka fyrir Sveitarfélagið Árborg. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 6. 2608193 - Æskulýðsstarf Selfosskirkju |
| Bæjarráð felur bæjarstjóra að funda með sóknarnefnd Selfosskirkju vegna erindisins. Einnig felur bæjarráð bæjarstjóra í samráði við fjölskyldusvið að skoða hugmyndir um samkomulag vegna æskulýðsstarf í Selfosskirkju. |
| Samþykkt |
| Erindi frá Sóknarnefnd Selfosskirkju - Æskulíðsstarf í Selfosskirkju.pdf |
|
|
|
| 7. 2608189 - Vindorkuhugmynd - 6. áfangi rammaáætlunar |
| Lagt fram til kynningar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera tillög að áliti og leggja fyrir bæjarráð. |
| Samþykkt |
| Bréf Árborg.Mosfellsheiðarvirkjanir I.pdf |
| Lög um breytingu á ramma (vindorka og verndarflokkur), samþykkt 19.6.2026.pdf |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 8. 2607013F - Skipulagsnefnd - 3 |
|
|
|
|
| Fundargerðir til kynningar |
| 9. 2608217 - Fundargerðir Tónlistarskóla Árnesinga bs 2026 -2030 |
| Lagt fram til kynningar. |
| Fundur 220 - 25.8.2026.pdf |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:55 |