Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 73

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
06.05.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar,
Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista,
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir varaforseti bæjarstjórnar,
Helga Lind Pálsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista,
Axel Sigurðsson varamaður, Á-lista,
Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir voru gerðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2510456 - Ársreikningur Árborgar 2025
Ársreikningur Árborgar 2025 lagður fram til síðari umræðu.
Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Axel Sigurðsson, Á-lista.

Ársreikningur 2025 er borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða með 11 atkvæðum.

Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaðir bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að mikilvægt sé að greina ársreikning Sveitarfélagsins Árborgar 2025 af yfirvegun og horfa til þeirra þátta sem raunverulega skýra bætta rekstrarniðurstöðu ársins.
Þrátt fyrir að rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins sé betri en áætlanir gerðu ráð fyrir liggur fyrir að meginskýringin er ekki afgerandi breyting á rekstri heldur verulega hærri tekjur en gert var ráð fyrir. Rekstrartekjur sveitarfélagsins jukust um rúmar 1.700 milljónir króna umfram áætlun, á meðan rekstrargjöld fóru einnig umtalsvert fram úr fjárhagsáætlun.
Þessi tekjuaukning skýrist að stórum hluta af:
- hærri skatttekjum sem nemur um 500 millj. Króna
- auknum framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem nemur um 500 millj. króna
- auknum framlögum vegna SIS-mats barna sem greidd eru úr Jöfnunarsjóði sem nema um 580 milljónum króna.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar telja því mikilvægt að halda því til haga að um tímabundna og að hluta til ófyrirséða tekjuaukningu er að ræða, fremur en varanlegan rekstrarviðsnúning. Sveitarfélagið getur ekki byggt framtíðarfjármál sín á einskiptisáhrifum eða síhækkandi álögum á íbúa og fyrirtæki.
Í sístækkandi sveitarfélagi er ljóst að skulda- og vaxtabyrði verður áfram áskorun. Samkvæmt fjárhagsáætlun er skuldahlutfall sveitarfélagsins enn nokkuð hátt og vaxtagjöld nema áfram verulegum fjárhæðum á ári hverju.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar vilja undirstrika að nauðsynlegt er á næstu árum að ráðast í markvissar umbætur í rekstri sveitarfélagsins með það að markmiði að:
- bæta rekstrarhagkvæmni,
- nýta betur stafrænar lausnir og tæknilega innviði,
- lækka álögur á íbúa og fyrirtæki,
- og tryggja sjálfbæran rekstur til lengri tíma.
Árborg er öflugt og vaxandi samfélag með mikla möguleika. Það er hins vegar ábyrgð sveitarstjórnar að tryggja að sá vöxtur byggist á traustum rekstri, gagnsæi, vandaðri áætlanagerð á öllum sviðum og sanngjörnum álögum á íbúa og fyrirtækja í sveitarfélaginu.
Undirrituð vilja færa starfsfólki sveitarfélagsins sem kom að vinnu við ársreikninginn sínar bestu þakkir fyrir þeirra mikilsverða vinnuframlag við ársreikninginn.
Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista
Sigurjón Vídalín Guðmundsson S-lista"

Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu.

Bragi Bjarnason, D-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Niðurstaða ársreiknings sveitarfélagsins er mjög ánægjuleg og vilja bæjarfulltrúar D- og Á lista þakka bæjarfulltrúum, starfsmönnum og íbúum sem hafa gert það mögulegt að skila jákvæðri niðurstöðu ársreiknings annað árið í röð, og núna með um 1,5 milljarða rekstrarafgangi.
Niðurstaðan staðfestir að aðgerðir undanfarinna ára til hagræðingar, sala eigna, tekjuaukning og skýr forgangsröðun eru að skila árangri. Rekstur sveitarfélagsins verður sterkari og m.a. náð að skapa svigrúm til lækkunar álaga og gjalda strax á þessu ári.
Meirihluti bæjarstjórnar fagnar niðurstöðunni og Sveitarfélagið Árborg sé á réttri leið. Nú reynir á að sýna áframhaldandi ábyrgð í rekstri, standast áætlanir og gera A-hluta sveitarfélagsins sjálfbæran á næstu árum. Með þeirri vinnu tryggjum við að sveitarfélagið lendi aldrei aftur í þeirri erfiðu stöðu sem blasti við okkur árið 2022.
Stefna og markmið bæjarstjórnar Árborgar var og er að takast á við rekstur sveitarfélagsins með ábyrgum hætti. Við vitum að margar ákvarðanir sl. ár hafa verið erfiðar og sársaukafullar íbúum, fyrirtækjum og starfsfólki sveitarfélagsins en þær hafa skilað tilætluðum árangri, og skapað aðstæður til lækkunar annarra álaga til framtíðar, líkt og fasteignagjalda. Því íbúar eiga alltaf að njóta ávinningsins. Við í meirihluta bæjarstjórnar erum staðráðin í að halda áfram á þessari braut ábyrgðar og árangurs í þágu íbúa sveitarfélagsins.
Axel Sigurðsson, Á-lista
Bragi Bjarnason, D-lista
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista
Helga Lind Pálsdóttir, D-lista
Kjartan Björnsson, D-lista
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista"
Árborg ársreikningur 2025 til seinni umræðu.pdf
2. 2303295 - Menningarstefna Sveitarfélagsins Árborgar
Tillaga frá 168. fundi bæjarráðs frá 22. apríl, liður 2. Menningarstefna Sveitarfélagsins Árborgar.

Margrét Blöndal, deildarstjóri menningar- og upplýsingadeildar, kemur inn á fundinn og fer yfir uppfærða menningarstefnu.

Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hana.

Til máls tekur Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Ellý Tómasdóttir, B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, varaforseti, tekur við fundarstjórn kl. 17:01.

Til máls tekur Kjartan Björnsson, D-lista.

Kjartan Björnsson, forseti, tekur aftur við fundarstjórn kl. 17:08.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.

Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Undirrituð fagna því að hér hafi verið samþykkt menningarstefna Svf. Árborgar fyrir árin 2026 ? 2030. Afar mikilvægt er að unnið sé samkvæmt skýrri stefnu í menningarmálum ásamt aðgerðaráætlun þannig að það sé engum vafa undirorpið hvar áherslur sveitarfélagsins verða í menningarmálum næstu árin. Undirrituð vilja færa Margréti Blöndal deildarstjóra menningar- og upplýsingasviðs sveitarfélagsins sérstakar þakkir fyrir vinnu við þessa metnaðarfullu menningarstefnu.
Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista
Sigurjón Vídalín Guðmundsson S-lista"
3. 2604222 - Samþykktir Héraðsnefnd Árnesinga 2026
Lagðar eru fram til fyrri umræðu tillögur að breytingum á samþykktum Héraðsnefndar Árnesinga 2026, sem samþykktar voru á 36. fundi Héraðsnefndar Árnesinga bs., sem haldinn var 14. apríl 2026.
Lagt er til að vísa samþykktum Héraðsnefndar Árnessýslu til síðari umræðu.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Samþykktir Héraðsnefndar - Uppfærð tillaga hreinsuð 27.04.2026.pdf
36. fundur - vorfundur - Héraðsnefndar Árnesinga bs 14.04.2026.pdf
4. 2507188 - Lántökur Brunavarna Árnessýslu 2025 - 2026
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja lántökur Brunavarna Árnessýslu vegna byggingar slökkvistöðvar á Flúðum og kaupa á tankbíl, í samræmi bókun af 36. fundi stjórnar Brunavarna Árnessýslu, sem haldinn var 30. apríl 2026.
Lagt er til að bæjarstjóra verði veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánssamninga vegna lánsins.

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir, samhljóða með 11 atkvæðum, hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Brunavarna Árnessýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 98.376.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til byggingar nýrrar slökkvistöðvar á Flúðum og vegna kaupa ná nýrri slökkvibifreið sem staðsett verður í Reykholti. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Bæjarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Brunavarna Árnessýslu til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra, kt. 250483-5359, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Sveitarfélagsins Árborgar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
36 stjórn 30042026 Undirritað.pdf
5. 2604307 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2026 - Brunavarnir Árnessýslu
Lagt er til að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu 2026 vegna mannaráðningar, í samræmi bókun af 36. fundi stjórnar Brunavarna Árnessýslu, sem haldinn var 30. apríl 2026. Ekki er þörf á viðauka við áætlun BÁ þar sem um er að ræða tilfærslu innan samþykktar áætlunar BÁ.
Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
36 stjórn 30042026 Undirritað.pdf
Aukaaðalfundu Brunavarna Árnesinga 14. 04.2026 (1).pdf
6. 2601383 - Merkisteinn I. L166113 - Deiliskipulag - 4 stakstæð hús
Tillaga frá 61. fundi skipulagsnefndar frá 4. maí sl. liður 1. Merkisteinn I. L166113 - Deiliskipulag - 4 stakstæð hús.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til lóðar Merkisteinsvalla 1 á Eyrarbakka innan íbúðarsvæðis ÍB45. Í skipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda fyrir fjögur stakstæð hús á tveimur
hæðum með mænisþaki eins og nánar er gert grein fyrir innan skipulags- og byggingaskilmála deiliskipulagsins.

Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Tillagan verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum.

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Axel Sigurðsson, Á-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum deiliskipulag fyrir Merkistein I, L166113 með vísan til 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að kynna aðliggjandi lóðarhöfum framlagða skipulagstillögu.
Merkivellir_ DSK.pdf
Merkisteinn I. útlit húsa. dags. 28.1.2026.pdf
7. 2601294 - Ljónsstaðir - Ljón 1-3 - Deiliskipulag
Tillaga frá 61. fundi skipulagsnefndar frá 4. maí sl. liður 2. Ljónsstaðir - Ljón 1-3 - Deiliskipulag.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til þriggja lóða úr landi Ljónsstaða hver um sig um 1 ha að stærð. Í skipulaginu felst heimild til uppbyggingar á íbúðarhúsi ásamt sambyggðri bílgeymslu auk húsnæðis fyrir landbúnaðartengda starfsemi og/eða minniháttar atvinnustarfsemi ótengdri landbúnaði.

Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Tillagan verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum.

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum deiliskipulag fyrir Ljónsstaðir - Ljón 1-3 með vísan til 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að kynna aðliggjandi lóðarhöfum framlagða skipulagstillögu.
Uppfærður uppdráttur, Ljónsstaðir dsk. 13.3.2026.pdf
8. 2301178 - Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir
Tillaga frá 61. fundi skipulagsnefndar frá 4. maí sl. liður 7. Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir.
Tillaga deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði ÍÞ2 á Selfossi var felld úr gildi með úrskurði ÚUA þess efnis þann 21. apríl 2026. Að mati Úrskurðarnefndar var ekki fjallað með fullnægjandi hætti um umhverfisáhrif deiliskipulagsins til þátta eins og lyktar, rykmyndunar, hljóðvistar, umferðarálags og áhrifa á sjónræna þætti. Er því lögð fram að nýju tillaga deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði ÍÞ2 á Selfossi með uppfærðu mati á umhverfisáhrifum skipulagstillögunnar. Meginmarkmið deiliskipulagsins er að setja fram heildstæða stefnu fyrir allt hesthúsahverfið, bæði núverandi svæði og stækkun þess til suðurs.
Deiliskipulagið byggir í megindráttum á núverandi fyrirkomulagi með áherslu á bættar reiðleiðir og þjálfunarsvæði. Á svæði til suðurs verður gert ráð fyrir nýjum lóðum og þannig fjölgar notendum innan hesthúsasvæðisins. Kröfur um bættan aðbúnað hesta og manna hafa aukist á undanförnum árum og munu skilmálar um byggingu nýrra húsa og breytingar á eldri húsum taka mið af því. Deiliskipulagið nær til alls hesthúsahverfisins, sem er núverandi keppnis- og, hesthúsasvæði og stækkaðs hesthúsasvæðis, samtals um 27 ha. Deiliskipulagsmörkin ná einnig yfir hluta af opnu svæði milli Langholts og hesthúsahverfis vegna fyrirhugaðs reiðstígs þar. Stækkun núverandi svæðis er um 7 ha að stærð. Á nýja svæðinu næst Dísastaðarlandi er gert ráð fyrir 19 nýjum hesthúsum meðfram Bæjartröð. Lóðir eru af þremur stærðum, og er gert ráð fyrir að innan þeirra verði heimilt að byggja stakstæð hús eða parhús. Hestagerði eru staðsett sunnan við hús beggja megin götu til að tryggja sól og skjól frá ríkjandi vindáttum. Auk 19 hefðbundinna hesthúsa er gert ráð fyrir tveimur stærri lóðum fyrir hesthús með litlum reiðskemmum. Skilmálar eru settir fyrir byggingu nýrra hesthúsa og eins eru settir fram skilmálar um mögulega endurbyggingu eldri húsa.
Byggingarmagn á keppnissvæði er aukið umtalsvert, bæði fyrir fipo keppnishöll en einnig fyrir minni hús til þjálfunar og fyrir áhorfendastúkur.
Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036, þar sem svæðið er skilgreint með landnotkunina ÍÞ2 hesthúsasvæði.

Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins og að brugðist hafi verið við niðurstöðu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um mat á umhverfisáhrifum skipulagsins með fullnægjandi hætti innan tillögunnar.

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista og Axel Sigurðsson, Á-lista.

Fundarhlé tekið kl. 17:52. Fundi áfram haldið kl. 17:56.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum að auglýsinga deiliskipulag fyrir hesthúsasvæði með vísan í 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati bæjarstjórnar hefur verið brugðist við niðurstöðu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um mat á umhverfisáhrifum skipulagsins með fullnægjandi hætti innan tillögunnar.

2025-0310-Hesthusasvaedi-skilmalar-e-urskurd-05.pdf
UUA2602017 Deiliskipulag hesthúsahverfi.pdf
9. 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026
Fulltrúar í kjördeildum í sveitarstjórnarkosningum 16. maí nk.
Lagt er til að eftirtaldir verði fulltrúar í kjördeildum:

Yfirkjörstjórn
Aðalmenn:
Ingimundur Sigurmundsson
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir
Steinunn Erla Kolbeinsdóttir

Varamenn:
Þórarinn Sólmundarson
Anna Ingadóttir
Jón Páll Hilmarsson

Kjördeild 1
Aðalmenn:
Íris Böðvarsdóttir
Hólmfríður Einarsdóttir
Herborg Anna Magnúsdóttir

Varamenn:
Eva Davíðsdóttir Brown
Guðrún Herborg Hergeirsdóttir
Aníta Rögnvaldsdóttir

Kjördeild 2
Aðalmenn:
Grétar Páll Gunnarsson
Dagbjört Sævarsdóttir
Valdemar Bragason

Varamenn:
Elsie Kristinsdóttir
Unnur Edda Jónsdóttir
Heiða Sólveig Haraldsdóttir

Kjördeild 3
Aðalmenn:
Elínborg Ingimundardóttir
Sigrún Helga Einarsdóttir
Ingibjörg Elfa L. Stefánsdóttir

Varamenn:
Þórdís Ólöf Viðarsdóttir
Kristín Rut Arnardóttir
Ingveldur Guðjónsdóttir

Kjördeild 4
Aðalmenn:
Sesselja Sumarrós Sigurðardóttir
Þorsteinn Tryggvi Másson
Bergdís Bergsdóttir

Varamenn:
Klara Öfjörð Sigfúsdóttir
Sigríður Sigurjónsdóttir
Atli Laugdal Árnason

Kjördeild 5
Aðalmenn:
Njáll Árnason
Magnús Gísli Sveinsson
Kristjana Hallgrímsdóttir

Varamenn:
Jóhanna Hallbjörnsdóttir
Svava Júlía Jónsdóttir
Elín Karlsdóttir

Kjördeild 6
Aðalmenn:
Ingibjörg Ársælsdóttir
Þórdís Sveinsdóttir
Jónas Welding Jónasson 

Varamenn:
Elín Dögg Haraldsdóttir
Edda Bára Höskuldsdóttir
Jason Orri Jakobsson

Kjördeild 7
Aðalmenn:
Lýður Pálsson
Rannveig Brynja Sverrisdóttir 
Vigdís Jónsdóttir

Varamenn:
Þóra Ósk Guðjónsdóttir
Víglundur Guðmundsson
Charlotte Sigrid á Kósini

Fundarhlé gert kl. 18:00, fundi haldið áfram kl. 18:08.

Tillagan er borun undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Kjörstjórnir 2026.pdf
Fundargerðir
10. 2604006F - Skipulagsnefnd - 60
60. fundur haldinn 15. apríl.
11. 2604013F - Velferðarnefnd - 25
25. fundur haldinn 16. apríl.
12. 2604020F - Bæjarráð - 168
168. fundur haldinn 22. apríl.
13. 2604014F - Eigna- og veitunefnd - 54
54. fundur haldinn 21. apríl.
Til máls tekur Sveinn Ægir Birgisson, D-lista.
14. 2604026F - Bæjarráð - 169
169. fundur haldinn 30. apríl.
Kjartan Björnsson, D-lista, tekur til máls og þakkar sérstaklega Álfheiði Eymarsdóttur, Á-lista, Axel Sigurðssyni, Á-lista, Helgu Lind Pálsdóttur, D-lista, Fjólu St. Kristinsdóttur, D-lista, Örnu Ír Gunnarsdóttur, S-lista, bæjarfulltrúum fyrir samstarfið og það sem þau hafa lagt að mörkum til sveitarfélagsins undanfarin ár, þar sem þau eru að hætta.

Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, tekur til máls og þakkar fyrir samstarfið og óskar komandi bæjarfulltrúum og íbúum velfarnaðar.

Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, tekur til máls og þakkar fyrir sig og þakkar traustið og starfsmönnum sveitarfélagsins sérstaklega fyrir samstarfið.

Axel Sigurðsson, Á-lista, tekur til máls og þakkar fyrir sig og þakkar traustið.

Kjartan Björnsson, D-lista, tekur á ný til máls. Hann þakkar bæjarfulltrúum fyrir samstarfið, Rúnari Sveini Valgeirssyni, tæknimanni fyrir upptökur og Þórdísi Sif Sigurðardóttur og Rósu Sif Jónsdóttur, fyrir fundarritun. Hann þakkar jafnframt starfsfólki sveitarfélagsins og íbúum öllum samstarf og samvinnu á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka



Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica