Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 79

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
24.11.2021 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Anton Kári Halldórsson skipulagsfulltrúi, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2111170 - Björkurstekkur 58 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson fyrir hönd Jóns Inga Lárussonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 227,7m2 og 767,1 m3
Ekki liggja fyrir fullnægjandi gögn skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um skil á greinargerð hönnunarstjóra skv. gr. 4.1.3 ásamt mæli- og hæðarblaði, orkurammaútreikngum, og yfirliti hönnunarstjóra um ábyrgarsvið hönnuða.
Byggingsstjóri og iðnmeistararar hafa verið skráðir.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Gögn vegna fyrirvara við samþykkt byggingaráforma.
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
2. 2111191 - Austurvegur 1-5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Freyr Frostason fyrir hönd Festi hf. sækir um leyfi fyrir breytingum innanhús á verslun og veitingasvæði ásamt því að setja upp loftræsingu/útsogsháf sem liggur upp fyrr þakskyggni á 2. hæð.
Fyrir liggur samþykki eigenda annarra eignarhluta í húsinu.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdráttu, undirritaður af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
3. 2111192 - Gagnheiði 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Fossmót ehf. sækir um leyfi til að byggja iðnaðarhúsnæði við hlið núverandi húss. Helstu stærðir eru; 580,6 m2 og 2.695,0 m3.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
4. 2111193 - Skógarflöt - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon fyrir hönd Skógarflöt ehf. sækir um leyfi til að byggja bílgeymslu. Helstu stærðir eru; 210.5m2 og 1033,9 m3
Fyrirhugðuð staðsetning húss er ekki í samræmi við samþykkt deiliskipulag frá 2006.
Erindinu hafnað.
5. 2111325 - Miðtún - Dæluhús - Umsókn um byggingarleyfi. L232688
Jón Sæmundsson f.h. Selfossveitna óskar eftir til að byggja dælustöð. Helstu stærðir eru; 23,5m2 og 64,0 m3.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
6. 2111337 - Björkurstekkur 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Hafsteinsson f.h. Silfurtaks ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir: 394,0 m2 og 1.552,0 m3.
Ekki liggja fyrir fullnægjandi gögn skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um skil á greinargerð hönnunarstjóra skv. gr. 4.1.3 ásamt mæli- og hæðarblaði, gátlista og yfirliti hönnunarstjóra um ábyrgarsvið hönnuða.
Ábyrgðaryfirlýsing byggingarstjóra liggur fyrir.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Gögn vegna fyrirvara við samþykkt byggingaráforma
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
-- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
7. 2111249 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir endurnýtingu úrgangs til landmótunnar á Stokkseyri
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir endurnýtingu úrgangs til landmótunar á Stokkseyri.
Svæðið er efnistöku/efnislosunarsvæði á gildandi aðalskipulagi.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
8. 2111303 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir ÞH Blikk ehf Gagnheiði 37
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir ÞH blikk ehf. vegna reksturs blikksmiðju.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun hússins og gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfisins.

9. 2111319 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir bókakaffi Eyravegi 15b
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir bóksölu og kaffisölu að Eyravegi 15b Selfossi, hluta 030103 Fasteignanúmer 2323235
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun húsnæðisins og gerir ekki athugasemdir við að starfsleyfi verði gefið út.
10. 2111343 - Umsókn um stöðuleyfi - Björkurstekkur 1c
Jón Ingi Lárusson sækir um stöðuleyfi fyrir vinnugám í 2-3 mánuði vegna byggingar veituhúss á lóðinni.
Óskað er eftir að gámurinn verði staðsettur við gangstætt utan lóðar.
Samþykkt með fyrirvara um samþykki samráðsfundar með Mannvirkja- og umhverfissviði.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica