Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulags og byggingarnefnd - 11

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
09.11.2022 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Bragi Bjarnason formaður, D-lista,
Ari B. Thorarensen nefndarmaður, D-lista,
Rebekka Guðmundsdóttir nefndarmaður, D-lista,
Björgvin Guðni Sigurðsson nefndarmaður, S-lista,
Axel Sigurðsson nefndarmaður, Á-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Ásdís Styrmisdóttir starfsmaður, Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson, Skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2210414 - Umsókn um stækkun á byggingarreit - Suðurbraut 41
Árni Þór Helgason f.h. eiganda lóðarinnar Suðurbraut 41, í Árborg, leggur fram ósk um stækkun á byggingarreit í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Skipulags- og byggingarnefnd telur núverandi byggingarreiti í Tjarnarbyggð vera vel rúma og því ekki ástæða til stækkunar. Einnig bendir skipulags- og byggingarnefnd á að komi til breytinga á gildandi deiliskipulagi þurfi það að gerast heildstætt fyrir allar lóðir innan svæðisins, en ekki einstaka lóðir.
Hafnað
2. 2210447 - Deiliskipulag - Heiðarbrún 6-6b
Kjartan Sigurbjartsson Pro-Ark Teiknistofu, leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðina Heiðarbrún 6, L165659, á Stokkseyri. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að lóðin Heiðarbrún 6, sem er 853m2 að stærð verði parhúsalóð (6-6b), og að heimilt verði að byggja parhús. Húsið verði á einni hæð með risi. Hámarksvegghæð allt að 3,0m og mænishæð allt að 5,0m. Nýtingarhlutfall allt að 0,2.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn Árborgar að tillagan verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt
3. 2209103 - Umsókn um stækkun lóðar - Háheiði 10
Kjartan Sigurbjartsson f.h. Pípulagna Suðurlands, leggur fram fyrirspurn, um hvort leyfi fáist til að stækka lóðina Háheiði 15, um ca 590m2, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að láta mæla upp lóð og gera tillögu að nýju lóðarblaði, í samræmi við óskir umsækjanda.
Frestað
4. 2210419 - Björkurstekkur 61 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa dags. 2.11.2022:
„Kjartan Sigurbjartsson hönnuður fyrir hönd Bergþórs Inga Sigurðssonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru: 470,9m2 og 1549,9m3. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Nýtingarhlutfall er hærra en deiliskipulag gerir ráð fyrir. Vísað til skipulags- og byggingarnefndar. „
Aðaluppdrættir gera grein fyrir kjallara undir hluta húss.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að setja af stað vinnu í samvinnu við skipulagshönnuð,deiliskipulagsbreytingu, sem miðar að því að gefa rými til byggingar kjallara undir íbúðarhús í deiliskipulagi Björkurstykkis og þá sérstaklega m.t.t. nýtingarhlutfalls lóða.
Samþykkt
Fundargerð
5. 2210020F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 104
5.1. 2210274 - Engjavík 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 187,2m2 og 774,4m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir að húsið verði hitað upp með hitaveitu. Samkvæmt upplýsingum frá Selfossveitum hefur ekki hefur verið samið um afhendingu á heitu vatni í samræmi við samkomulag milli Svf. Árborgar og umsækjanda.

Niðurstaða þessa fundar
5.2. 2210275 - Engjavík 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 204,1m2 og 815,6m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir að húsið verði hitað upp með hitaveitu. Samkvæmt upplýsingum frá Selfossveitum hefur ekki hefur verið samið um afhendingu á heitu vatni í samræmi við samkomulag milli Svf. Árborgar og umsækjanda.

Niðurstaða þessa fundar
5.3. 2210276 - Boðavík 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 226,8m2 og 933,7m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir að húsið verði hitað upp með hitaveitu. Samkvæmt upplýsingum frá Selfossveitum hefur ekki hefur verið samið um afhendingu á heitu vatni í samræmi við samkomulag milli Svf. Árborgar og umsækjanda.

Niðurstaða þessa fundar
5.4. 2210277 - Boðavík 30 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 226,8m2 og 933,7m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir að húsið verði hitað upp með hitaveitu. Samkvæmt upplýsingum frá Selfossveitum hefur ekki hefur verið samið um afhendingu á heitu vatni í samræmi við samkomulag milli Svf. Árborgar og umsækjanda.

Niðurstaða þessa fundar
5.5. 2210278 - Boðavík 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 203,8m2 og 788,1m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir að húsið verði hitað upp með hitaveitu. Samkvæmt upplýsingum frá Selfossveitum hefur ekki hefur verið samið um afhendingu á heitu vatni í samræmi við samkomulag milli Svf. Árborgar og umsækjanda.

Niðurstaða þessa fundar
5.6. 2210279 - Boðavík 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 203,2m2 og 828,3m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir að húsið verði hitað upp með hitaveitu. Samkvæmt upplýsingum frá Selfossveitum hefur ekki hefur verið samið um afhendingu á heitu vatni í samræmi við samkomulag milli Svf. Árborgar og umsækjanda.

Niðurstaða þessa fundar
5.7. 2210418 - Gagnheiði 17 0103 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson hönnuður fyrir hönd Snæbjarnar Ottesen Guðmundssonar sækir um leyfi fyrir breytingum innanhúss á iðnaðarhúsnæði, eignarhluta 0103. Breytingin er vegna áforma um að nýta húsnæðið fyrir æfingastöð.
Um er að ræða breytingar á snyrtingu auk þess sem bætt við snyrtingu, ræstikompu og geymslu á millilofti.
Framkvæmdin er undanþegin byggingarheimild og -leyfi en tilkynningaskyld skv. byggingarreglugerð gr. 2.3.6.
Tilskilin gögn vegna tilkynningaskyldra framkvæmda liggja fyrir ásamt samþykki eigenda annarra eignarhluta hússins.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin.

Niðurstaða þessa fundar
5.8. 2210419 - Björkurstekkur 61 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson hönnuður fyrir hönd Bergþórs Inga Sigurðssonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 470,9m2 og 1549,9m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Nýtingarhlutfall er hærra en deiliskipulag gerir ráð fyrir.

Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.



Niðurstaða þessa fundar
5.9. 2210420 - Suðurleið 41 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eiríkur Vignir Pálsson hönnuður fyrir hönd Rúnars Tryggvasonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 124,5 m2 og 345,6 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
5.10. 2210451 - Gagnheiði 37 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
ÞH Blikk ehf. sækir um leyfi fyrir viðbyggingu við iðnaðarhúsnæði. Helstu stærðir eru 93,3 m2 og 319,2m3.
Málið var til umfjöllunar á fundi skipulags- og byggingarnefndar 12.10.2022 og gerir nefndin ekki athugasemdir við að byggingarheimild verði gefin út.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda í Gagnheiði 37 og eigenda Gagnheiði 35.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.


Niðurstaða þessa fundar
5.11. 2210339 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Bjarmaland 16
Magnús Daníel Ingólfsson tilkynnir um byggingu 15 m2 garðskála innan byggingarreits.
Fyrir liggur samþykki nágranna.
Framkvæmdin er háð byggingarheimild, er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag.
Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla.
- Staðfesting byggingarstjóra og starfsábyrgðartrygging.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
5.12. 2210393 - Nauthagi 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bjarki Guðmundsson hönnuður fyrir hönd Bergrisans bs. sækir um leyfi til að hefja jarðvinnu.
Tilskilin gögn hafa ekki borist.

Niðurstaða þessa fundar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica