Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 169

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
18.03.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2603152 - Eyravegur 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eiríkur Vignir Pálsson hönnuður fyrir hönd Chamila Manel Salgado Meranjige sækir um leyfi til að breyta núverandi notkun mhl 03 0103 úr veitingahúsi yfir í gistiheimili.

Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
2. 2603044 - Norðurleið 35 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnuður fyrir hönd T.H. Smíði ehf sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 158,5m² og 604,5m³.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
3. 2603097 - Suðurbraut 29 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðmundur Hreinsson hönnuður fyrir hönd Kristófers Má Gunnarssonar sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 258,1m² og 1.023,2m³.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2602188 - Suðurbraut 45 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnuður fyrir hönd Hafliða Hafliðason sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 220,6m² og 825,1m³.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Erindinu er hafnað þar sem að umsókn er ekki í samræmi við deiliskipulagsskilmála.
Hafnað
5. 2601366 - Suðurleið 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Jón Davíð Ásgeirsson hönnuður fyrir hönd Guðrúnar Theódórsdóttur sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 201,8m² og 994,1m³.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
6. 2603147 - Tryggvagata 36 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Pálmi Pálsson sækir um leyfi til að rífa gamalt barnagæsluhús að Tryggvagötu 36.
Byggingarheimild til niðurrifs verður gefin út að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- Vottorð um að eignin sé veðbandalaus verði lagt fram.
- Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs verði lögð fram.
- Byggingarstjóri verði skráður á framkvæmdina.
Samþykkt
7. 2603148 - Björkurstekkur 2 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Árni Þór Þorsteinsson eigandi af Björkurstekk 2 & eigendur af Björkurstekk 4 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðinar nær lóðarmörkum en 3 metrar, lóðarhafi leitar einnig samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja- og Umhverfissviðs.
Samþykkt
8. 2603151 - Suðurleið 5 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Aron Kárason eigandi af Suðurleið 5 tilkynnir um framkvæmdir undanþegin byggingarleyfi vegna smáhýsis.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
9. 2603149 - Stöðuleyfi - Tryggvagata 24
Hilmar Egill Jónsson óskar eftir stöðuleyfi fyrir einum 40 feta gám vegna framkvæmda á lóð og húsnæði fyrir tímabilið 13.03.2026-12.03.2027
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir einum 40 feta gám fyrir tímabilið 13.03.2026-12.03.2027 með fyrirvara á að samþykki aðliggjandi lóðarhafa.
Samþykkt
10. 2603080 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Fischersetrið að Austurvegi 21
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Fischersetrið á Selfossi vegna endurnýjunar á starfsleyfi.
Starfstöð : Austurvegur 21, 800 Selfoss F218397

Byggingarfulltrúi veitir umsögn þegar skoðun eldvarnareftirlits og úttektarmanni byggingarfullrúa liggur fyrir.
Frestað
11. 2603139 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Vasast sf. að Brúarstræti 12
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Vasast sf. vegna útgáfu starfsleyfis.
Starfstöð : Brúarstræti 12, 800 Selfoss F2520506

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica