1. 2503463 - Borholuhús SE-45 - Selfossvegur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ari Guðmundsson hönnunarstjóri fyrir hönd Selfossveitna sækir um leyfi til að byggja dælustöð. Helstu stærðir eru; 59,9m2 og 218,5 m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við aðalskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2503431 - Breiðamýri 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd G.G. Tré ehf. skilar inn breytingar teikningum af Breiðamýri 3, um er að ræða breytingu á rými 01 0106 sem verður að tveimur rýmum eins og upphaflega teikning sýndi fram á.
Byggingarfulltrúi samþykkir framlagða uppdrætti með fyrirvara á að smávægilegar athugasemdir verði lagfærðar.
Samþykkt
3. 2503388 - Sigtún 3 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Stræti fasteignafélag ehf. sækir um leyfi til að rífa geymslu að Sigtún 3.
Um er að ræða matshluta 02, geymslu 26,8m². Fyrir liggur minnisblað um tilhögun niðurrifsins. Veðbókarvottorð liggur ekki fyrir.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að eignin sé veðbandalaus. Byggingarheimild verður gefin út þegar byggingarstjóri hefur verið skráður á umsóknina.
Samþykkt
4. 2503450 - Stöðuleyfi - Suðurleið 8
Myrkraborgir ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir tvo 20 feta gáma vegna byggingaframkvæmda á Suðurleið 8 tímabilið 09.04.2025-09.04.2026
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir tveimur 20 feta gámum tímabilið 09.04.2025-09.04.2026 þar sem byggingarframkvæmdir eru í gangi á lóðinni.
Hulda Ósk Gunnarsdóttir eigandi af Björkurstekk 10, Haukur Gunnarsson og Linda Guðmundsdóttir eigendur að Björkurstekk 8 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar einnig óskar eigandi eftir samþykki Sveitarfélagsins Árborg.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Hulda Ósk Gunnarsdóttir eigandi af Björkurstekk 10, Haukur Gunnarsson og Linda Guðmundsdóttir eigendur að Björkurstekk 8 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar nær lóðarmörkum en 3 metrar einnig óskar eigandi eftir samþykki Sveitarfélagsins Árborg.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5.e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. um skjólveggi og girðingar. Byggingarfulltrúi vekur athygli á tæknilýsinguu sveitarfélagsins nt.t. Kafla 3. (lóðamál varðandi hæðir og staðsetningu gagnvart sjónlengdum)
Samþykkt
7. 2503535 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Eyr veitingar að Eyravegi 2
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna Eyr veitingar ehf. um starfsleyfi til veitinga í flokki II, Veitingahús. Heiti staðar: Hótel Selfoss, Eyravegur 2, 800 Selfoss F2185689, rýmisnúmer 01 0108 og 0201.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.