Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 89

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
13.04.2022 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Anton Kári Halldórsson skipulagsfulltrúi, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2204142 - Uppbygging innviða - byggingarhæfi lóða
Með bréfi dags. 12.04.2022 vekur mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar athygli byggingarfulltrúa á stöðu orkuöflunar í Sveitarfélaginu Árborg en vöxtur sveitarfélagsins hefur leitt til þess að afhendingargeta Selfossveitna nálgast þolmörk.
Bent er á að samkvæmt reglum um úthlutun lóða í Sveitarfélaginu Árborg telst lóð ekki byggingarhæf nema hún geti tengst viðkomandi gatna- og lagnakerfi.
Í bréfinu er því velt upp að byggingarfulltrúi íhugi að fresta afgreiðslu umsókna um byggingaráform og útgáfu byggingarleyfis þar til tengingar við lagnakerfi hafa verið tryggðar og lóð telst vera byggingarhæf.



Með tilvísun í bréf mannvirkja- og umhverfissvið, reglur um úthlutun lóða í Sveitarfélaginu Árborg og samninga sveitarfélagsins við einkaaðila vegna framkvæmda á eignarlöndum samþykkir byggingarfulltrúi að afla umsagnar mannvirkja- og umhverfissviðs áður en ákvörðun er tekin um samþykki byggingaráforma og útgáfu byggingarleyfa.
2. 2203339 - Móstekkur 14-16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson fyrir hönd Landmanna ehf. sækir um leyfi til að byggja 10 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 884,4m2 og 2.823,0m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um samþykki skipulagsnefndar á lóðaruppdrætti.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
3. 2203394 - Austurhólar 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kristinn Ragnarsson hönnunarstjóri fyrir hönd Fagradals ehf. sækir um leyfi til að byggja 34 íbúða á fjölbýlishús á fimm hæðum. Helstu stærðir eru; 3.100,7m2 og 9.110,6m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er að mestu í samræmi við deiliskipulag. Sorpgeymsla stendur fyrir utan byggingarreit.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt en ákvörðun um sorpgeymslu er vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
4. 2204017 - Austurvegur 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Sigtún Þróunarfélag ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum innanhús.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og ekki er um að ræða breytta notkun.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirtalin gögn liggja fyrir og skilyrði eru uppfyllt sbr. byggingarreglugerð gr. 2.3.7 og 2.3.8.:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Skráningartafla
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
5. 2204048 - Nabbi 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Emil Þór Guðmundsson fyrir hönd Margrétar Sigurðardóttur sækir um leyfi til að byggja frístundahús. Helstu stærðir eru; 52,0m2 og 166,4m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulagstillögu sem hefur hlotið samþykki bæjarstjórnar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um birtingu deiliskipulagstillögu í B-deild stjórnartíðinda.
Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirtalin gögn liggja fyrir og skilyrði eru uppfyllt sbr. byggingarreglugerð gr. 2.3.7 og 2.3.8.:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
6. 2202097 - Sigtún 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Þórey Edda Elísdóttir hönnunarstjóri f.h. Sveitarfélagsins Árborgar sækir um leyfi til að reisa 34,5 m2 viðbyggingu og bæta flóttaleiðir úr húsinu. Helstu stærðir 34,5 m2 og 119,2 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirtalin gögn liggja fyrir og skilyrði eru uppfyllt sbr. byggingarreglugerð gr. 2.3.7 og 2.3.8.:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
7. 2204050 - Norðurbraut 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðlaugur Ingi Hauksson sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 52,0 m2 og 166,4 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
8. 2204063 - Nýja Jórvík 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja 6 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 556,4m2 og 1834,4m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Afgreiðslu er frestað þar til umsögn mannvirkja- og umhverfissvið varðandi byggingarhæfi lóðar liggur fyrir.
9. 2204064 - Nýja Jórvík 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja 12 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 556,4m2 og 1834,4m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Afgreiðslu er frestað þar til umsögn mannvirkja- og umhverfissvið varðandi byggingarhæfi lóðar liggur fyrir.
10. 2204065 - Nýja Jórvík 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja 6 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 556,4m2 og 1834,4m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Afgreiðslu er frestað þar til umsögn mannvirkja- og umhverfissvið varðandi byggingarhæfi lóðar liggur fyrir.
11. 2204066 - Nýja Jórvík 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja 6 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 556,4m2 og 1834,4m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Afgreiðslu er frestað þar til umsögn mannvirkja- og umhverfissvið varðandi byggingarhæfi lóðar liggur fyrir.
12. 2204067 - Nýja Jórvík 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja 6 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 556,4m2 og 1834,4m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Afgreiðslu er frestað þar til umsögn mannvirkja- og umhverfissvið varðandi byggingarhæfi lóðar liggur fyrir.
13. 2203337 - Hraunhólar 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðmundur Gunnarsson fyrir hönd Víðis Freys Guðmundssonar sækir um leyfi fyrir breytingum innanhúss. Breytingin felst í að innrétta íbúðarrými í bílskúr.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag.
Samþykkt eru áform um að íbúðarherbergi verði innréttuð í bílskúr og verði hluti af matshluta 0103 íbúð.
Gera þarf betur grein fyrir rými sem stigi liggur að og skila skráningartöflu.
Afgreiðslu frestað.
14. 2204018 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Norðurbraut 32
Óskar Ingi Gíslason tilkynnir um uppsetningu 35 m2 gestahúss á lóðinni.
Skv. byggingarreglugerð nr. 112/2012 með áorðnum breytingum falla áformin undir umfangsflokk 1 sbr. gr. 1.3.2 og eru háð byggingarheimild.
Sótt er um byggingarheimild á Mín Árborg með sama hætti og sótt er um byggingarleyfi.
Byggingarfulltrúi vísar tilkynningunni frá.

15. 2203184 - Stöðuleyfi - Hellismýri 2
Álfag ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir 2 gáma til geyma álprofila í skjóli fyrir sandroki frá nálægri steypustöð.
Óskað er eftir stöðuleyfi í 12 mánuði 14.03.2022-14.03.2023.

Samþykkt að veita stöðuleyfi með með tílvísum í byggingarreglugerð gr. 2.6.1 1 mgr. staflið b. gámar.
Stöðuleyfið gildir fyrir tvo gáma tímabilið 20.05.2022-20.05.2023.
Ekki er veitt leyfi fyrir mannvirkjagerð í tengslum við gámana.
16. 2204062 - Stöðuleyfi - Kumbaravogur
Guðni Geir Kristjánsson fyrir hönd Kumbaravogs ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir 94 m2 húsi á land nr. 165555 við hlið lóðarinnar Kumbaravogur 2 .
Sótt eru um leyfi til að staðsetja húsið fyrir tímabilið 20.05.2022-20.05.2023 vegna endurbóta á húsinu.

Umsókn hafnað vegna nálægðar við íbúðarbyggð. Umsækjanda er bent á að finna hentugri staðsetningu til endurbyggingar hússins.

17. 2204140 - Stöðuleyfi - Bankavegur 10
Sigfús Kristinsson sækir um stöðuleyfi fyrir 40-50 m2 frístundahús sem hann hyggst smíða á lóðinni.
Umsókn hafnað vegna nálægðar við íbúðarbyggð. Umsækjanda er bent á að finna hentugri staðsetningu til endurbyggingar hússins.
18. 2203386 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Fótaaðgerðastofu Grænumörk 5
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir fótaaðgerðarstofu.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemi þjónustumiðstöðar að Grænumörk 5 er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins þ.á.m. rekstur fótasnyrtistofu. Þjónustumiðstöðin er með fastanúmer F2219102.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endunýjun starfsleyfis.
19. 2203399 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Bankinn Vinnustofa Austurvegi 20
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Bankinn Vinnustofu.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við samþykkta notkun á húsinu og gerir ekki athugasemdir við að starfsleyfi verði gefið út.
20. 2203401 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Konungskaffi Brúarstræti 2
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Konungskaffi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
21. 2203404 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Subway Eyravegi 2
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Subway.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
22. 2204138 - Rekstrarleyfisumsögn - Brúarstræti 2 - Konungskaffi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Kögunarhóls ehf. um leyfi til reksturs veitinga í flokk II kaffi - Konungskaffi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica