Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 159

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
12.02.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2602033 - Vor í Árborg 2026
Margrét Blöndal, deildarstjóri menningar- og upplýsingadeildar kemur inn á fundinn.
Margrét Blöndal kemur inn á fundinn og fer yfir dagskrá Vor í Árborg 2026 og barnamenningarhátíð.
2. 2509431 - Menningarsalur Suðurlands í Hótel Selfoss
Kauptilboð í Menningarsal Suðurlands í Hótel Selfoss.
Lagt fram kauptilboð í Menningarsal Suðurlands. Bæjarráð hafnar framlögðu kauptilboði.
3. 2512321 - Þjónustusamningur - Golfklúbbur Selfoss 2026 - 2030
Minnisblað bæjarstjóra dags. 9. febrúar, ásamt drögum að þjónustusamningi við Golfklúbb Selfoss.
Málinu frestað og óskað frekari gagna að beiðni S-lista og B-lista.
4. 2602028 - Samráðsgátt - Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga
Erindi frá innviðaráðuneytinu dags. 3. febrúar, þar sem kynnt er til samráðs mál nr.S-27/2026. Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga Umsagnarfrestur er til 10. mars nk.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á stjórnsýslu- og fjármálasviði.
5. 2601386 - Samráðsgátt - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum
Erindi frá umhverfis- orku og loftslagsráðuneytinu dags. 26. janúar, þar sem kynnt er til samráðs mál nr.S-3/2026. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
Umsagnarfrestur er til 17. febrúar nk.


Bæjarráð felur bæjarstjóra að klára umsögn sveitarfélagsins við frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum og setja inn í samráðsgátt.
Samanburðarskjal_lög um hollustuhætti og mengunarvarnir.pdf
Frumvarp til laga um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.pdf
Samráðsgátt - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.pdf
6. 2602085 - Samráðsgátt - Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs
Erindi frá atvinnuvegaráðuneytinu dags. 5. febrúar, þar sem kynnt er til samráðs mál nr.S-31/2026. Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverð. Umsagnarfrestur er til 20. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á stjórnsýslu- og fjármálasviði.
Úr Samráðsgátt - Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.pdf
Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.pdf
7. 2602071 - Hvatning - umsögn um þingsályktun um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar
Erindi frá Atlantsflugi, dags. 2. febrúar sl. þar sem vakin er athygli á þingsályktunartillögu sem liggur fyrir Alþingi 16. mál á 157. löggjafarþingi, um að koma á fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands (LHG) á Akureyri.
Í erindinu eru sveitarstjórnir hvattar til að senda inn umsögn um málið. Umsagnarfrestur er til 12. febrúar nk.

Að gefnu tilefni bendir bæjarráð á mikilvægi þess að þyrlur verði með fasta starfsstöð í öllum landfjórðungum, þar sem fjarlægðir eru miklar og nauðsynlegt sé að hafa viðbragð sem skjótast.
Tölvpóstur - Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar.pdf
Tillaga til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Langhelgisgæslunnar á Akureyri.pdf
20250910 HEMS vs sjúkrabílar.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:40 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica