| Bæjarráð - 4 |
Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, 09.07.2026 og hófst hann kl. 08:10 |
|
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir varaformaður, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista, Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista, Heiðrún Kristmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista, Bragi Bjarnason bæjarstjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2603146 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2026 |
| Bæjarstjóri kynnir milliuppgjör út maí 2026 og fer yfir skýringar. |
|
|
|
| 2. 2606021 - Húsnæði undir frístundastarf og starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs |
Kynnt er minnisblað bæjarstjóra, dags. 7. júlí 2026, um húsnæði undir frístundastarfsemi og mögulega hluta starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs.
Í auglýsingu sveitarfélagsins eftir húsnæði undir starfsemi á vegum sveitarfélagsins óskað sveitarfélagið eftir upplýsingum um hentungt húsnæði til leigu eða kaups fyrir frístundastarfsemi og eftir atvikum hluta af starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs. Í auglýsingunni kom fram að sveitarfélagið myndi meta allar innsendar upplýsingar á grundvelli kostnaðar við kaup eða leigu, afhendingartíma, staðsetningar, nálægð við íbúabyggð og áætlaðan framkvæmdakostnað vegna aðlögunar húsnæðisins.
Bæjarráð hefur yfirfarið tilboðin og tekur vel í að ganga frá leigusamningi vegna húsnæðis fyrir frístundastarfsemi á vegum sveitarfélagsins og ganga að hagstæðara tilboðinu að Eyravegi 42 á Selfossi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna í samráði við leigusala drög að leigusamningi sem lagður verði fyrir bæjarráð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun Árborgar fyrir árið 2026 vegna leigu húsnæðisins. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 3. 2606314 - Rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar |
| Bæjarráðs samþykkir að heimila bæjarstjóra að leita verðtilboða í rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar. Tilboð verði lögð til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði, ásamt viðauka fyrir rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 4. 2210290 - Gjaldskrár mannvirkja- og umhverfissviðs |
| Bæjarráð, sem fer með sömu heimildir og bæjarstjórn í sumarleyfi bæjarstjórnar, samþykkir samhljóða breytingar á gjaldskrá vatnsveitu sem fela í sér hækkun í samræmi við ákvæði um vísitölubreytingu í júní ár hvert. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 5. 2607017 - Graffiti listaverk - Pakkhús Austurvegur 2B |
| Bæjarráð samþykkir að listamaðurinn Laurids Wielandt Larsen og Hrafnhildur "Raven" Sigurjónsdóttir, fyrir hönd Pakkhússins að Austurvegi 2b, vinni í samstarfi að vegglistaverki á húsnæði Pakkhússins í tilefni Norrænnar menningarhátíðar heyrnarlausra. Verkefnið felur ekki í sér kostnað fyrir sveitarfélagið. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 6. 2607018 - Ný heimasíða Sveitarfélagsins Árborgar |
| Bæjarráð samþykkir að farið verði í markaðskönnun vegna nýrrar heimasíðu fyrir Sveitarfélagið Árborg á árinu 2026. Þegar tilboð hafa borist frá þátttakendum verði málið lagt að nýju fyrir bæjarráð, áður en tilboðum er tekið, með tillögu að viðauka til að mæta áætluðum kostnaði á árinu 2026. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 7. 2607074 - Þjónustusamningur Umf. Stokkseyrar og Árborgar 2026-2030 |
| Bæjarráð samþykkir samninginn. Jafnframt er bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins, ekki er þörf á viðauka þar sem gert er ráð fyrir fjármagninu í fjárhagsáætlun 2026. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 8. 2402372 - Rekstrarsamningur - leikskólinn Árbær - Hjallastefnan ehf. |
Í samningi Hjallastefnunnar ehf. og Sveitarfélagsins Árborgar, dags. 12. júlí 2024, kemur fram að endurskoða skuli einingaverð á tveggja ára fresti. Með bréfi Hjallastefnunnar til Árborgar, dags. 6. júlí 2026 gerir Hjallastefnan grein fyrir því hvers vegna þau leggja til að einingaverð hækki um 4,5%.
Bæjarráð samþykkir hækkun á einingaverðs um 4,5% í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Bæjaráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun vegna hækkunar á einingaverði á árinu 2026, að fjárhæð kr. 8.000.000,- til samþykktar. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 9. 2607052 - Vallaskóli - Beiðni um viðauka v. húsbúnaðar |
Bæjarráð tekur vel í kaup á húsgögnum í Vallaskóla, þar sem verið er að fjölga bekkjardeildum 1. bekkjar í skólanum úr tveimur í þrjár.
Bæjaráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun vegna kaupa á húsgögnum í Vallaskóla á árinu 2026, að fjárhæð kr. 2.500.000,- til samþykktar og leggja að nýju fram beiðni um kaup á húsgögnunum samhliða viðaukanum. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 10. 2607072 - Nýtt gólf í íþróttahúsið á Stokkseyri |
Þörf er talin á að skipta um gólfefni á íþróttahúsinu á Stokkseyri, vegna slæmrar hljóðvistar í húsinu er ekki hægt að nýta húsið að fullu til íþróttakennslu. Lagt er til að ráðist verði í lagfæringar á gólfinu til að bæta nýtingu húsnæðisins til kennslu.
Leitað hefur verið tilboða í skipti á gólfefnum íþróttahússins á Stokkseyri.
Bæjarráð samþykkir hagkvæmasta tilboðið frá Sport-Tækni ehf., í gólfefni sem uppfyllir skilyrði verðkönnunarinnar ásamt vinnu við skipti á gólfefni. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun vegna framkvæmdarinnar á árinu 2026, að fjárhæð kr. 9.420.000,- til samþykktar. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 11. 2105457 - Fyrirhuguð byggingaráform á lóð MS Selfossi - Austurvegur 65 |
| Bæjarráð samþykkir samkomulag um áætlaða uppbyggingu Mjólkursamsölunnar (MS) og færslu á kvöðum vegna lagna innan lóðar MS á Selfossi. Bæjarstjóra er jafnframt veitt heimild til að undirrita samkomulagið, kvaðir og önnur nauðsynleg skjöl vegna samkomulagsins. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 12. 2607071 - Orlof á yfirvinnu vegna dóms Landsréttar |
Í kjölfar dóms Landsréttar um að orlof skuli greitt á fasta yfirvinnu, sé ekki kveðið skýrt á um það í ráðningarsamningi að orlofsfé sé innifalið í greiðslu fastrar yfirvinnu sé hún greidd alla mánuði ársins, var ákveðið að fara yfir alla virka ráðningarsamninga sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að ráðist verði í leiðréttingu á greiðslu orlofs á yfirvinnu til þeirra starfsmanna sveitarfélagsins sem falla undir þær forsendur sem fram koma í dómi Landsréttar í máli nr. 361/2024.
Bæjaráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun vegna kostnaðar við leiðréttinguna á árinu 2026, að fjárhæð kr. 53.500.000,- til samþykktar. Jafnframt felur bæjarráð stjórnsýslu- og fjármálasviði að finna leið til að tryggja skýran samningsgrundvöll og samræmda framkvæmd til framtíðar varðandi greiðslu fastrar yfirvinnu og/eða önnur laun. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 13. 2601204 - Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting |
Bókun frá 2. fundi skipulagsnefndar:
Að mati skipulagsnefndar hefur verið brugðist við athugasemdum og umsögnum sem bárust vegna tillögunnar með fullnægjandi hætti innan framlagðrar breytingartillögu og samantektar vegna umsagna og athugasemda. Fallið hefur verið frá hækkun hámarkshæða bygginga, ekki er gengið á opin græn svæði auk þess sem fallið hefur verið frá niðurfellingu gestastæða við fjölbýlishús þótt svo að viðmið um gestastæði hafi verið minnkuð úr 1 stæði á hverjar 4 íbúðir í 1 stæði á hverjar 5 íbúðir. Þrátt fyrir fjölgun íbúða innan viðkomandi lóða helst heildarbyggingarmagn óbreytt. Breytingin felur fyrst og fremst í sér fleiri og smærri íbúðir en ekki sambærilega aukningu íbúafjölda. Skipulagsnefnd bendir á að meirihluti hverfisins er óbyggður enn sem komið er. Aukning umferðar um hverfið er því óhjákvæmileg til framtíðar þrátt fyrir minnkun og fjölgun íbúða á viðkomandi lóðum. í fyrri afgreiðslum nefndarinnar hafa auk þess komið fram athugasemdir við að í hönnun húsa á reitunum verði sett fram skilyrði um mismunandi stærðir íbúða til að koma í veg fyrir einhæft búsetumynstur. Mælist skipulagsnefnd til þess við bæjarstjórn Árborgar að tillagan verð samþykkt eftir auglýsingu og taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þeim sem athugasemdir gerðu við tillöguna verði kynnt niðurstaða sveitarfélagsins, auk þess sem niðurstaða bæjarstjórnar/bæjarráðs verði auglýst skv. 3.mg. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt.
Bæjarráð, sem fer með sömu heimildir og bæjarstjórn í sumarleyfi bæjarstjórnar, samþykkir samhljóða að uppfærð deiliskipulagstillaga fyrir Jórvíkurhverfið með vísan í 3.mg. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 verði samþykkt og taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda. Að mati bæjarráðs hefur verið brugðist við athugasemdum og umsögnum sem bárust. |
| Samþykkt |
| Samantekt vegna umsagna og athugasemda eftir kynning og tillögur að viðbrögðum; Jórvík.pdf |
| Athugasemd Ægir Björn Ólafsson 21.5.2026, Jórvík 1 dskbr..pdf |
| Athugasemd Björgvins Njáls Ingólfssonar 20.5.2026, Jórvík 1 dskbr..pdf |
| Athugasemd Margrétar Steinu Hilmarsdóttur 19.05.2026, Jórvík 1 dskbr..pdf |
| Athugasemd Arons Arnar Reynissonar 18.05.2026, Jórvík dskbr..pdf |
| Athugasemd Kolbrúnar Höllu G 17.5.2026, Jórvík 1 dskbr..pdf |
| Athugasemd Ingibjargar Hilmarsdóttur 11.5.2026, Jórvík 1 dskbr. .pdf |
| Athugasemdir Arons Ágústssonar 11.5.2026, Jórvík 1 dskbr..pdf |
| 1000008893.pdf |
| 1000008892.pdf |
| Athugasemdir Daníels Þórs 8.5.2026, Jóvrík1 dskbr. .pdf |
| Athguasemdir Oddnýjar v. Jórvík 1 dskbr. 8.5.2026.pdf |
| Athugasemdir Heiðrúnar v. Jórvíkur dsk. 6.5.2026.pdf |
| Athugasemdir íbúa Aðalvíkur 1, 3 og 5 v. Jórvík 1 dskbr, 26.4.2026 - undirritanir.pdf |
| Jórvík1 - breyting á deiliskipulagi 1 áfangi_5.pdf |
|
|
|
| 14. 2607022 - Selfosslína 1 - Breyting á legu jarðstrengs - Aðalskipulagsbreyting |
Bókun frá 2. fundi skipulagsnefndar:
Lögð er fram tillaga óverulegrar breytingar á aðalskipulagi frá Landnet hf. unnin ef EFLU verkfræðistofu dags. 24.6.2026 er varðar breytta legu Selfosslínu 1 í Hellisskógi. Jarðstrengur fyrir Selfosslínu 1 í Hellisskógi er færður til vesturs auk smávægilegrar tilfærslu við sv.félagamörk Flóahrepps. Breytingin er norðan þéttbýlismarka Árborgar. Í gildandi skipulagi er lega hans skilgreind nærri bakka Ölfusár. Í breyttu skipulagi er skilgreind strengleið færð ofar í landið, í vesturmörk skilgreinds skógræktarsvæðis, Hellislands (L162991)og skógrækt þar er skemmra á veg komin. Strengur verður tengdur við mastur 99, loftlínu sem liggur til norðurs að Íra- og Ljósafossvirkjunum. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar. Samþykkt Bæjarráð, sem fer með sömu heimildir og bæjarstjórn í sumarleyfi bæjarstjórnar, samþykkir samhljóða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins Vegna Selfosslínu 1 í Hellisskógi með vísan í 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar. |
| Samþykkt |
| 115166-01-ASKBR-001-V02-Selfosslína 1 Hellisskógi.pdf |
|
|
|
| 15. 2607062 - Áskorun um mislæg gatnamót við Biskupstungnabraut |
| Bæjarráð Árborgar skorar á ríkisstjórnina og Vegagerðina að nýta núverandi framkvæmdatíma og klára allar framkvæmdir tengda færslu Suðurlandsvegar um nýja brú yfir Ölfusá. Hluti af því er að klára einnig mislæg gatnamót við Biskupstungnabraut núna meðan svæðið er lokað undir framkvæmdir. Þar sem fjármögnun framkvæmdarinnar verður gegnum nýtt innviðafélag og áætlanir eru um að innheimta veggjald yfir nýja brú til að standa straum af kostnaði telur bæjarráð eðlilegt að allar framkvæmdir tengdar færslu hringvegarins og byggingu nýrrar brúar verði kláraðar í einum áfanga. Slíkt ætti alltaf að vera hagkvæmara heldur en að þurfa að raska umferð síðar um hringveginn meðfram Selfoss. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 16. 2607021 - Fýsileikakönnun um samþættan sérakstur og almenningssamgöngur í Árnessýslu. |
| Lagt fram til kynningar. |
| Skýrsla A10-Almenningssamgöngur.pdf |
|
|
|
| 17. 2607034 - Heilbrigðiseftirlit - fyrirhugaðar breytingar á eftirlitinu |
| Lagt fram til kynningar. |
| Bráðabirgðasamantekt - verkefni sveitarfelaga_A3_prentun.pdf |
|
|
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 19. 2606023F - Eigna- og veitunefnd - 2 |
|
|
|
|
| Fundargerðir til kynningar |
| 20. 2604229 - Fundargerðir Listasafns Árnesinga bs 2026 |
| Lagt fram til kynningar. |
| Fundur 8. júní 2026.pdf |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 |
|