2. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2026 - 2030
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn mánudaginn 22. júní 2026 í Grænumörk 5, Selfossi, kl. 16:00.
https://youtu.be/mXn0ZyRBDm0
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2605365 - Breytingar á samþykktum um stjórn Árborgar og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar - kjörtímabilið 2026-2030
Á 1. fundi bæjarstjórnar sem hjaldinn var 3. júní sl. var breytingum á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar vísað til síðari umræðu. - 2605193 - Kosning í embætti og nefndir 2026-2030
Kosning í menningarnefnd til fjögurra ára, sbr. B-lið 46. gr. nýsamþykktra breytinga á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar. Kosnir skulu 5 fulltrúar og 5 til vara. - 2601095 - Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting
Á 1. fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 19. júní sl., var lögð fram tillaga er varðar breytingar á skilmálum aðalskipulags Árborgar 2020-2036, fyrir íbúðarbyggðina ÍB17 á Selfossi. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af
Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi. Skipulagssvæðið sem aðalskipulagsbreyting nær til er tæpir 6 ha. Megin breytingin fellst í að gerð er ítarlegri grein fyrir í samantektartöflu fyrir Mörk og Grænumörk, fjölgun íbúða á svæðinu, auk fjölda hæða. Samhliða breytingu aðalskipulags verður unnið nýtt deiliskipulag fyrir svæðið. Tillagan var kynnt almenningi með auglýsingu skv. 2. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, frá 30. apríl til 26. maí 2026. Umsagnir liggja fyrir frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Vegagerðinni. Þá komu fram athugasemdir frá íbúum við Austurveg og Heiðmörk auk húsfélags innan svæðisins.
Skipulagsnefnd mælist til þess við bæjarstjórn Árborgar að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Grænumarkar verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt
Skipulagsstofnunar.
Við afgreiðslu málsins er lögð fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust við kynningu málsins ásamt viðbrögðum. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að deiliskskipulagstillaga sem er í vinnslu fyrir svæðið verði sérstaklega kynnt íbúum svæðisins þegar hún liggur fyrir og leitað verði umsagnar hjá öldungaráði sveitarfélagsins. - 2605177 - Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036; Breyting á skilmálum vegna vatnasvæða V1
Á 1. fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 19. júní sl. var lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Árborgar sem tekur til skilmála innan kafla um vatnasvæði V1.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega
breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar. - 2606057 - Fossmúli; Breyting á aðalskipulagi Árborgar; íbúðarsvæði ÍB44
Á 1. fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 19. júní sl. var erindi Ægis Sigurðssonar, f.h. landeiganda að Fossmúla í Árborg, dags. 1. júní 2026. Landeigendur óska er eftir því að sveitarfélagið geri breytingu á aðalskipulagi sem unnin verði við næstu endurskoðun og/eða vegna breytinga á aðalskipulagi Árborgar. Í breytingunni fælist að svæðið ÍB44 verði stækkað sem nemur aðliggjandi íbúðarbyggð í landi Jórvíkur. Innan deiliskipulags Jórvíkur er gert ráð fyrir mögulegum götutengingum inn á land Fossmúla m.a. inn á það svæði sem í dag er skilgreint sem landbúnaðarland á aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða beiðni um breytingu á aðalskipulagi og að hún verði unnin samhliða endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins og/eða vegna
breytingar sem sveitarfélagið ætlar sér að vinna á gildandi aðalskipulagi. - 2606061 - Hásteinsvegur 30; Deiliskiplagsbreyting
Á 1. fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 19. júní sl. var lögð fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til lóðar Hásteinsvegar 30, skv. beiðni sem fram kom í bréfi Undra f.h. lóðarhafa, dags. 3. júní sl. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja á lóðinni allt að fimm stakstæð tveggja hæða timburhús innan byggingarreita sem koma fram á skipulagsuppdrætti. Fjórir byggingarreitir eru eru staðsettir í röð við syðri hluta lóðar og einn við norðurhluta nær
Hásteinsvegi. Byggingar á syðri hluta lóðar skulu vera tvíhalla með mænisstefnu skv. skipulagsuppdrætti en sú sem stendur á nyrðri hluta má vera tvíhalla eða með valmaþaki. Nota skal byggingarefni sem samræmast heildarhugmyndafræði tillögunar, þ.e. að klæðningar veggja verði úr timbri og þak verði annaðhvort bárujárn í náttúrulegum ál-lit eða timburklæðning. Áhersla skal lögð á lágreista byggð, einföld húsform, náttúruleg efni og að byggðin falli að sögulegu byggðarmynstri og landslagi Stokkseyrar. Ekki eru gerðar breytingu á lóðarstærð eða hámarks nýtingarhlutfalli samkvæmt núverandi deiliskipulagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir heimild fyrir raðhúsi og bílskúrum.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að framlögð deiliskipulagsbreyting verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Tillagan verði sérstaklega kynnt íbúum nærliggjandi lóða. - 2606025 - Fundartími bæjarstjórnar og bæjarráðs kjörtímabilið 2026-2030
Forseti leggur til að bæjarstjórn taki sumarleyfi og að fundir bæjarstjórnar falli niður í allan júlí og hluta ágúst mánaðar. Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fari bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefði ella. Bæjarráð tekur ákvarðanir um að víkja frá fundartímum skv. bæjarmálasamþykkt eftir því sem þurfa þykir.
Fundargerðir - 2605026F - Bæjarráð - 1
1. fundur haldinn 4. júní 2026. - 2606007F - Bæjarráð - 2
2. fundur haldinn 18. júní 2026 - 2606006F - Eigna- og veitunefnd - 1
1. fundur haldinn 9. júní 2026. - 2606008F - Fræðslu- og frístundanefnd - 1 - 2026
1. fundur haldinn 10. júní 2026.
Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri

