| Bæjarráð - 163 |
Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, 12.03.2026 og hófst hann kl. 08:10 |
|
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista, Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista, Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista, Bragi Bjarnason bæjarstjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn erindi |
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs kemur inn á fundinn kl.8:10
|
| 1. 2603071 - Reglur um heimgreiðslur |
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs kemur inn á fundinn og fer yfir tillögur að nýjum reglum um heimgreiðslur til foreldra. Fram kemur að heimgreiðslurnar séu ætlaðar foreldrum barna á aldrinum 12-30 mánaða sem eru búsett í Svf. Árborg og ekki komin með pláss á leikskóla eða í öðru dagvistunarúrræði. Gert er ráð fyrir að reglurnar taki gildi frá og með 1. apríl 2026 og upphæð heimgreiðslu með hverju barni verði kr. 110.000- sem er greidd mánaðarlega eftirá í allt að 11 mánuði á ári, en ekki er greitt fyrir júlímánuð.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglur um heimgreiðslur og vísar áfram til afgreiðslu í bæjarstjórn Árborgar. Bæjarráð vísar málinu einnig til umsagnar í velferðarnefnd og fræðslu- og frístundanefnd sem fylgi með til umræðu og afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjaráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka vegna aukins fjármagns í heimgreiðslur á árinu 2026, að fjárhæð kr. 5.000.000,- til samþykktar. |
| Samþykkt |
|
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs fer af fundinum kl.8:40
|
|
|
| 2. 2601190 - Húsaleigusamningur - Austurvegur 2a Jarðskjálftamiðstöð |
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
Árni Magnússon, verkefnastjóri úrgangsmála hjá SASS, Ágúst Þór Bragson, deildastjóri þjónustumiðstöðvar og Atli Marel Vokes, sviðstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs koma inn á fundinn kl.8:50
|
| 3. 2603076 - Kortlagning úrgangsmála hjá SASS |
| Árni Magnússon, nýráðinn verkefnastjóri úrgangsmála hjá SASS, Ágúst Þór Bragson, deildastjóri þjónustumiðstöðvar og Atli Marel Vokes, sviðstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs koma inn á fundinn til að ræða stöðu úrgangsmála í Svf. Árborg. Farið yfir helstu verkefni, þjónustu við heimili og fyrirtæki, gámasvæðið, gjöld vegna úrgangsmála og fleira sem tengist málaflokknum. Árni upplýsir einnig um hver hans helstu verkefni verða á næstu mánuðum fyrir sveitarfélögin á Suðurlandi og hlakkar til samstarfsins. |
|
Árni Magnússon, verkefnastjóri úrgangsmála hjá SASS, Ágúst Þór Bragson, deildastjóri þjónustumiðstöðvar og Atli Marel Vokes, sviðstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs fara af fundinum kl.9:30
|
|
|
| 4. 2603066 - Umsögn - Sveitarstjórnarlög - 505. mál - nefnda- og greiningarsvið Alþingis |
| Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á stjórnsýslu- og fjármálasviði. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 5. 2603070 - Umsögn - Varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum - 499. mál |
| Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á stjórnsýslu- og fjármálasviði. |
| Samþykkt |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:35 |
|