Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 164

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
19.03.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
Margrét Blöndal og Hera Fjölnisdóttir koma inn á fundinn kl.8:10.
1. 2602033 - Vor í Árborg 2026
Margrét Blöndal, deildarstjóri menningar- og upplýsingadeildar og Hera Fjölnisdóttir, verkefnastjóri miðlunar og menningar koma inn á fundinn.
Margrét Blöndal og Hera Fjölnisdóttir koma inn á fundinn og fara yfir dagskrá Vor í Árborg sem fram fer 22.- 26. apríl 2026. Fram kemur að hátíðin í ár sé tileinkuð barnamenningu og í samstarfi við önnur sveitarfélög á Suðurlandi. Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og hvetur íbúa og aðra aðila til að taka þátt í hátíðinni.
Samþykkt
Margrét Blöndal og Hera Fjölnisdóttir fara af fundinum kl.8:35
2. 2603146 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2026
Lagt fram milliuppgjör út janúar 2026.
Lagt fram milliuppgjör út janúar 2026.
3. 2602236 - Tillaga að undirbúningi næsta grunnskóla í Árborg
Tillaga frá 5. fundi starfshóps um frekari uppbyggingu leik- og grunnskóla í Sveitarfélaginu Árborg frá 23. febrúar sl. liður 2. Fjöldi barna í Sveitarfélaginu Árborg - útlistun úr Íbúasýn 23.2.2026.
Starfshópur leggur til við bæjarráð að hafinn verði undirbúningur að fjórða grunnskóla á Selfossi.

Bæjarráð samþykkir að hafinn verði undirbúningur að stofnun næsta grunnskóla í Árborg. Starfshópi um uppbyggingu leik- og grunnskóla í Árborg verði falið að leiða undirbúningsvinnuna í samráði við fulltrúa fjölskyldusviðs og mannvirkja- og umhverfissviðs.
Samþykkt
4. 2603142 - Húsnæði - Vallaskóli
Minnisblað skólastjóra Vallaskóla, dags. 13. febrúar, vegna húsnæðismála við Vallaskóla á vorönn 2026.
Farið er yfir minnisblað frá skólastjóra Vallaskóla vegna húsnæðismála skólans á vorönn 2026. Bæjarráð þakkar fyrir erindið. Bæjarstjóra falið að skipuleggja heimsókn bæjarráðs í Vallaskóla og vinna málið áfram í samráði við fagsvið sveitarfélagsins.
Samþykkt
5. 2603167 - Umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóð aldraðra
Lögð er fram umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra.
Sótt er um styrk til endurbóta á matsal, eldhúsaðstöðu og rýmum fyrir félagsstarf í félagsmiðstöð eldri borgara í Grænumörk 5.

Bæjarráð samþykkir umsóknina í framkvæmdasjóð aldraðra.
Samþykkt
6. 2509155 - Uppbygging á atvinnustarfsemi - Austurvegur 69
Lagt er fram samkomulag milli Árborgar og Árfoss vegna uppbyggingar á Austurvegar 69, Selfossi. Samkomulagið er undirritað af bæjarstjóra með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir framlagt samkomulag milli Árborgar og Árfoss vegna uppbyggingar á Austurvegi 69, Selfossi.
Samþykkt
7. 2602073 - Jaðar - Afhending - götur, gangstígar, bílastæði
Samningur við Finnboga Guðmundsson vegna uppgjörs í tengslum við framkvæmdir á lóðum hans að Jaðri.
Bæjarráð samþykkir samning við Finnboga Guðmundsson vegna uppgjörs í tengslum við framkvæmdir á lóðum hans að Jaðri. Bæjarstjóra er falið að ganga frá samningi og er veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt
8. 2603094 - Umsókn um styrk - Sterkari út í lífið
Styrkbeiðni frá verkefnastjórum "Sterkari út í lífið", vegna verkefnis er varðar forvarnir, æskulýðsmál, lýðheilsu, sjálfsmynd barna og unglinga og valdeflingu foreldra.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur því miður ekki orðið við beiðninni.
Hafnað
Sterkari út í lífið.pdf
9. 2603130 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026
Fundarboð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. mars nk.
Lagt fram til kynningar.
Fundarboð - Scan_Óttar Guðjónsson_202602271403.pdf
10. 2603136 - Aðalfundur Veiðifélags Árnesinga 2026 - breytingar á samþykktum
Fundarboð á aðalfund Veiðifélags Árnesinga sem haldinn verður á Hótel Selfossi, fimmtudaginn 26. mars n.k. kl. 13:30.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að tilnefna Svein Ægi Birgisson, bæjarfulltrúa til að fara með atkvæði Sveitarfélagsins Árborgar á aðalfundi Veiðifélags Árnesinga og Álfheiði Eymarsdóttur, bæjarfulltrúa til vara.
Samþykkt
Aðalfundarboð 26. mars 2026.pdf
Fundargerðir
11. 2602027F - Starfshópur um frekari uppbyggingu leik- og grunnskóla í Sveitarfélaginu Árborg - 5
5. fundur haldinn 23. febrúar.
12. 2603006F - Skipulagsnefnd - 58
58. fundur haldinn 12. mars.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:55 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica